Þær Sunna og Saga voru með leshring fyrir 12-14 ára börn í Borgarbókasafninu núna í júlí. Krakkarnir lásu bækur, spjölluðu um þær, fengu rithöfunda í heimsókn og fóru í bókmenntagöngu. Leshringurinn heppnaðist sem sagt sérstaklega vel og vonandi verður framhald á honum.
Höfundar Rökkurhæða-bókanna, Birgitta Elín og Marta Hlín, kíktu í heimsókn og sögðu frá því hvernig sögurnar þeirra verða til.
Ein bókanna sem krakkarnir lásu var Garðurinn eftir Gerði Kristnýju sem er spennandi draugasaga og gerist einmitt í nágrenni við Aðalsafnið í miðbænum. Það var því tilvalið að skella sér í bókmenntagöngu á söguslóðir. Fyrst settust krakkarnir í gamla stóla í forngripabúðinni Fríðu frænku og lásu upp úr bókinni, en eitt það óhugnalegasta í sögunni er einmitt dularfullur stóll sem kemur úr forngripabúð í miðbænum.
Næst stoppuðu þau í Fógetagarðinum við Aðalstræti.
Síðan var haldið upp á Ljósvallagötu þar sem aðalsöguhetjan Eyja á heima.
Bókmenntagöngunni lauk í gamla kirkjugarðinum, Hólavallagarði, þar sem dularfullir atburðir gerast í sögunni.
Og þar var borðað nesti.