Verðlaunahafi sumarlestursins í síðustu viku var Aþena Mist, 7 ára. Hún fékk að launum bókina Dagbók Ólafíu Arndísar eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur frá Forlaginu. Hún var einnig bókaormur vikunnar á Krakkasíðu Fréttablaðsins síðasta laugardag. Í sumar verður leikurinn endurtekinn vikulega, þ.e. heppinn þátttakandi fær bók frá Forlaginu og Fréttablaðið tekur viðtal og birtir það ásamt mynd á Krakkasíðu blaðsins. Í lok sumars fær síðan einn þátttakenda reiðhjól frá Erninum í verðlaun. Auk Borgarbókasafns, Forlagsins og Fréttablaðsins tekur Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO þátt í sumarlestrinum.