Ritsmiðja fyrir 8-12 ára börn verður í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, dagana 13.-17. ágúst frá kl. 13-15.
Í ritsmiðjunni er áhersla lögð á skapandi skrif barnanna sjálfra og þeim til aðstoðar verður Vera Knútsdóttir ásamt starfsmönnum safnsins.
Það kostar ekkert að taka þátt í ritsmiðjunni og skráning er hafin. Áhugasamir sendið póst á netfangið thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is.