Á síðasta ári sendi Kristín frá sér bókina Við tilheyrum sama myrkrinu - Af vináttu: Marylin Monroe og Greta Garbo. Þar birtir hún sögur og teikningar sínar af þeim stöllum og nú má sjá leikkonurnar tvíefldar á veggjum bókasafnsins.
„Ég byrjaði að teikna Marilyn Monroe og Gretu Garbo fyrir mörgum árum. Það gerðist alveg óvart:, allt í einu í hreinasta bríaríi teiknaði ég mynd af Marilyn eftir ljósmynd og gaf vinkonu minni sem hengdi teikninguna upp á vegg, síðan var ekki aftur snúið. Ég fór að hafa það fyrir sið að teikna Marilyn, upp úr bókum sem ég hafði keypt á fornmörkuðum og sem urðu á vegi mínum, og á ferðalögum, og því næst af ljósmyndum af Internetinu. Þegar ég skrifaði fyrstu söguna um leikkonurnar tvær fór ég að teikna Gretu upp úr bókum sem ég hafði eignast fyrir fjölda mörgum árum og lesið, en bækur um hana voru nú horfnar úr hillum og borðum bókabúða; en ekki af Internetinu. Þá fór ég leynt og ljóst að búa til þessa bók með sögum og teikningum af leikkonunum tveimur. Ég lifði mig inn í viðfangsefnið. Það var í einstaka tilfelli að ég brá mér yfir girðinguna og kíkti frá öðru sjónarhorni inn í vinnuherbergið, að mér sýndist ég vera að fást við eitthvað sem ég gæti kallað unglingslegt, þá brosti ég út í annað, hló að sjálfri mér, og öðrum, og öllum heiminum, klifraði til baka yfir girðinguna og settist aftur dáleidd og utan við mig niður við vinnuborðið.“
Kristín Ómarsdóttir
Sýningin er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Bókmenntaborgarinnar og Hinsegin daga.