Verðlaunahafi sumarlestursins í síðustu viku var Gylfi Hugi Harðarson, 8 ára. Hann fékk að launum bókina Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason frá Forlaginu. Hann var einnig bókaormur vikunnar á Krakkasíðu Fréttablaðsins síðasta laugardag.
Í sumar verður leikurinn endurtekinn vikulega, þ.e. heppinn þátttakandi fær bók frá Forlaginu og Fréttablaðið tekur viðtal og birtir það ásamt mynd á Krakkasíðu blaðsins. Í lok sumars fær síðan einn þátttakenda reiðhjól frá Erninum í verðlaun. Auk Borgarbókasafns, Forlagsins og Fréttablaðsins tekur Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO þátt í sumarlestrinum.