Borgarbókasafnið verður sem fyrr með fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á Menningarnótt. Japönsk menning verður áberandi en nú stendur yfir í Aðalsafni fræðslu- og ljósmyndasýning um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasaki. Þá verður boðið upp á sögustundir fyrir börn með sögum sem tengjast kjarnorku og Íslensk-japanska félagið ætlar að bjóða upp á japanskt te og origami.
Sýning á myndum Kristínar Ómarsdóttur af Marilyn Monroe og Gretu Garbo stendur nú yfir á Bókatorgi, teiknismiðja sem er hluti af alþjóðlegri teiknisamkeppni verður fyrir börn á aldrinum þriggja til fjórtán ára og Söguhringur kvenna ætlar að leggja lokahönd á Prjónahúsið í Hafnarhúsi.
Kynnið ykkur dagskrá Borgarbókasafnsins hér fyrir neðan og líka á menningarnott.is.
Borgarbókasafnið tekur þátt í alþjóðlegu teiknisamkeppninni Colorful Rights á vegum ítölsku samtakanna Fondazione Malagutti onlus og er keppninni ætlað að vekja athygli á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Milli klukkan 15 og 17 verður teiknismiðja fyrir börn á aldrinum þriggja til fjórtán ára og verður þátttakendum boðið að senda myndirnar inn í keppnina. Leiðbeinendur verða listamennirnir Erna G. Sigurðardóttir og Kristín Arngrímsdóttir.
Sögustundir fyrir börn með japönskum sögum og myndum sem tengjast kjarnorku.
Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Á Menningarnótt munu þær leggja lokahönd á Prjónahúsið sem stendur uppi í A-sal Hafnarhússins og velta fyrir sér spurningum á borð við „hvað gerið heimili að heimili? “ og „hvað gerir heimaland að heimalandi?“
Boðið verður upp á japanskt te og rískökur og kennslu í origami.
Á síðasta ári sendi Kristín frá sér bókina Við tilheyrum sama myrkrinu - Af vináttu: Marylin Monroe og Greta Garbo. Þar birtir hún sögur og teikningar sínar af þeim stöllum og nú má sjá leikkonurnar tvíefldar á veggjum bókasafnsins.
Sýning á vegum The Nagasaki National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb Victims sem lýsir í máli og myndum kjarnorkusprengjunum sem varpað var á Hírósíma og Nagasaki árið 1945 og afleiðingum þeirra.