Leshringir Borgarbókasafns eru farnir af stað eftir sumarfríið. Þeir verða þrír í vetur, glæpasögur og gamalt og gott í aðalsafni og „konu- og karlabækur“ í Ársafni. Leshringirnir eru öllum opnir á meðan pláss leyfir. Áhugasamir hafi samband við umsjónaraðila.
Ef þú hefur hug á að stofna leshring erum við reiðubúin til að bjóða fram húsnæði safnsins á opnunartíma. Hafðu samband við Guðríði Sigurbjörnsdóttur, gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is ef þú hefur áhuga.
GLÆPASÖGUR Hvenær: Fyrsta fimmtudagur í mánuði, kl. 17.15-18.15. Hvar: 5. hæð aðalsafns, Tryggvagötu 15 Umsjón: Ingvi Þór Kormáksson, ingvi.thor.kormaksson@reykjavik.is
KONU- og KARLABÆKUR Hvenær: Fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 16.15 til 17.15 Hvar: Ársafn, Hraunbæ 119 Umsjón: Jónína Óskarsdóttir, jonina.oskarsdottir@reykjavik.is
GAMALT OG GOTT Hvenær: Þriðji þriðjudagur í mánuði. kl. 17:15-18:15 Hvar: 5. hæð aðalsafns, Tryggvagötu 15 Umsjón: Fríða Magnúsdóttir, netfang: fritha@simnet.is