Um safnið


Borgarbókasafn Reykjavíkur
Tryggvagötu 15
IS-101 Reykjavík
Kennitala: 530269-7609

Sími 411 6100
Fax 411 6159

Skrifstofa opin mánudaga - föstudaga frá 10-16

Forstöðumaður: Anna Torfadóttir, anna.torfadottir@reykjavik.is

Borgarbókasafn er almenningsbókasafn Reykvíkinga og öllum opið. Það starfar samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn nr. 36 frá 1997, yfirlýsingu Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco) um almenningsbókasöfn frá 1994 (PDF 14KB) menningarstefnu Reykjavíkurborgar og samþykkt fyrir Borgarbókasafn frá 2002.

Borgarbókasafn heyrir undir Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar.

Safnið var stofnað 1919 en hóf starfsemi 19. apríl 1923. Í safninu eru nú um 500.000 bækur og tímarit auk geisladiska, myndbanda og margmiðlunarefnis svo eitthvað sé nefnt. Í öllum söfnunum eru svo kallaðir heitir reitir fyrir þá sem vilja koma með eigin tölvur og vinna á Netinu.

Safnkosturinn er allur skráður í tölvukerfi safnsins, Gegni.

Útlánsstaðir safnsins eru sjö. Auk þess rekur safnið bókabíl með viðkomustaði víðs vegar um borgina og sögubílinn Æringja sem heimsækir leikskóla.

Bókasafnið í Mosfellsbæ og Bókasafn Seltjarnarness eru samstarfssöfn Borgarbókasafns.



Til baka





Skipta um leturst�r�