Sögubíllinn Æringi

Sögubíllinn æringiSími í sögubíl: 664 7718

Æringi, sem er litli bróðir bókabílsins Höfðingja, heimsækir leikskóla Reykjavíkur og býður börnunum í sögustund.

Ævintýralegar myndir prýða bílinn en efnt var til samkeppni meðal myndlistarmanna um skreytingar og bar Brian Pilkington sigur úr býtum. Sögubíllinn er ekki bara ævintýralegur að utan heldur einnig að innan, dökk flauelstjöld og stjörnur í lofti skapa skemmtilega og spennandi umgjörð um sögurnar.

Hægt er að panta sögubílinn í heimsókn til dæmis í stofnanir, hverfahátíðir eða aðra viðburði í borginni.

Viltu vita meira um Æringja? Googlaðu Æringi og lestu skemmtilegar greinar um heimsóknir hans í leikskóla og frístundaheimili!

Taktu þátt?
Sögubílstjórinn auglýsir sérstaklega eftir eldri borgurum sem langar að koma í bílinn og segja þeim yngri frá atburðum eða aðstæðum úr eigin bernsku. Það verður ánægjulegt að brúa kynslóðabilið í sögubílnum.

Allar nánari upplýsingar veitir Ólöf Sverrisdóttir í síma 664 7718, 
olof.sverrisdottir@reykjavik.is  

Hekla hf og Þróunarsjóður leikskólaráðs veittu styrk til að koma sögubílnum í gang. 



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�