Vefsíða Borgarbókasafns

Sögubíllinn Æringi


Sögubíllinn æringi

Sími í sögubíl:

664 7718.

Æringi, sem er litli bróðir bókabílsins Höfðingja, heimsækir leikskóla Reykjavíkur og býður börnunum í sögustund. Æringi hefur aðsetur í Ársafni.

Ævintýralegar myndir prýða bílinn en efnt var til samkeppni meðal myndlistarmanna um skreytingar og bar Brian Pilkington sigur úr býtum. Sögubíllinn er ekki bara ævintýralegur að utan heldur einnig að innan, dökk flauelstjöld og stjörnur í lofti skapa skemmtilega og spennandi umgjörð um sögurnar.

Hægt er að panta sögubílinn í heimsókn til dæmis í stofnanir, hverfahátíðir eða aðra viðburði í borginni. Allar nánari upplýsingar veitir Ólöf Sverrisdóttir í síma 664 7718,
olof.sverrisdottir@reykjavik.is

Bókanir Æringja

Viltu vita meira um Æringja? „Googlaðu“ Æringi og lestu skemmtilegar greinar um heimsóknir hans í leikskóla og frístundaheimili!

Taktu þátt?


Sögubílstjórinn auglýsir sérstaklega eftir eldri borgurum sem langar að koma í bílinn og segja þeim yngri frá atburðum eða aðstæðum úr eigin bernsku. Það verður ánægjulegt að brúa kynslóðabilið í sögubílnum.

Hekla hf og Þróunarsjóður leikskólaráðs veittu styrk til að koma sögubílnum í gang.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna

Tengt efni

Áætlun bókabíls



Skipta um leturst�r�