Starfsmenn upplýsingaþjónustunnar leitast við að mæta þörfum notenda fyrir safngögn á hvaða formi sem er, svara fyrirspurnum og leita heimilda. Starfsmenn upplýsingaþjónustunnar leiðbeina notendum á sviði upplýsingalæsis, s.s. varðandi val og notkun viðeigandi hjálparmiðla við upplýsingaöflun.
Hér er hægt að senda fyrirspurnir og verður þeim svarað eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan tveggja sólarhringa. Sendu okkur fyrirspurn á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is .
Við veitum einnig upplýsingaþjónustu á Facebook á opnunartíma safnsins. Settu fyrirspurn á vegginn okkar og við svörum eins fljótt og auðið er. Kíktu á okkur á Facebook!
Þjónustuyfirlýsing upplýsingaþjónustunnar Upplýsingaþjónusta Borgarbókasafns er alltaf til staðar þegar safnið er opið. Upplýsingaþjónustan er á ábyrgð bókasafns- og upplýsingafræðinga eða annarra háskólamenntaðra starfsmanna safnsins sem hafa þjálfun í að veita faglega upplýsingaþjónustu. Upplýsingaþjónustan er fyrir alla, einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki. Áhersla er lögð á upplýsingaþjónustu fyrir þá sem ekki hafa aðgang að upplýsingaþjónustu á vinnustað sínum eða skóla. Hún er veitt án endurgjalds og er fyllsta trúnaðar gætt. Aðgangur er að úrvali uppsláttar- og fræðirita á hvaða formi sem er. Leiðbeiningar eru veittar varðandi safnkost Borgarbókasafns og um notkun rafrænna gagnasafna, innlendra sem erlendra. Notendur eru aðstoðaðir við heimildaöflun og við að finna svör við staðreyndaspurningum. Ef viðeigandi gögn og heimildir finnast ekki í Borgarbókasafni er notendum bent á önnur bókasöfn eða leiðbeint með millisafnalán. Fyrirspurnum sem berast með tölvupósti er svarað eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan tveggja virkra daga.