Safnkostur

Borgarbókasafn leggur metnað sinn í að bjóða upp á fjölbreyttan safnkost sem höfðar til og nýtist börnum og fullorðnum. Safnið leggur áherslu á að kaupa inn íslenskt efni, skáld- og fræðirit, tónlist, kvikmyndir og fræðimyndir en einnig að fylgjast með og kaupa inn áhugavert efni sem gefið er út erlendis.

Í Borgarbókasafni er meðal annars að finna:

Skáldrit á íslensku og erlendum tungumálum
Fræðirit á íslensku og erlendum tungumálum (aðallega ensku)
Myndasögur
Hljóðbækur
Tónlist á geisladiskum og vínil
Kvikmyndir á myndböndum og –diskum
Tímarit
Tungumálanámskeið
Nótur
Rafræn gögn á hvar.is

Er bókin/diskurinn/myndin inni? Leitaðu í Gegni!

Í öllum deildum safnsins er hægt að setjast niður og fletta dagblöðum og nýjum tímaritum. Þar eru líka til afnota alfræðibækur, orðabækur og önnur uppsláttarrit.

Finnst þér eitthvað vanta á safnið? Sendu okkur innkaupatillögu að efni (bók, tímariti, tónlist, myndefni eða einhverju öðru).




Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�