Útlánareglur

Skírteini
Bækur og annað safnefni Borgarbókasafns er lánað gegn framvísun bókasafnsskírteinis.
Við kaup á skírteini ber að sýna persónuskilríki. Skírteinin veita aðgang að öllum söfnum Borgarbókasafns og bókabíl auk Bókasafns Seltjarnarness og Bókasafns Mosfellsbæjar.
Gildistími skírteinis er eitt ár.

Börn og unglingar yngri en 18 ára, ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini endurgjaldslaust. Verð á skírteinum fyrir aðra fer eftir gjaldskrá hverju sinni.
Börn og unglingar yngri en 18 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu safnanna.

Lán og lánstími
Einungis er hægt að fá safnefni að láni gegn framvísun eigin skírteinis. Lánþegi (eða ábyrgðarmaður barns) ber fulla ábyrgð á því safnefni sem tekið er að láni gegn framvísun skírteinis hans.
Lánstími safnefnis er venjulega 30 dagar. Sé hann styttri er þess sérstaklega getið. Fyrir hvern umframdag greiðist sekt samkvæmt gjaldskrá.

Lykilorð
Viðskiptavinir Borgarbókasafns geta fengið lykilorð á safninu til að:

  • Skoða útlánastöðu sína
  • Leggja inn pantanir á efni sem er í útláni
  • Breyta heimilisfangi sínu og símanúmerum
  • Skoða útlánasögu sína

Lán má endurnýja einu sinni ef engin pöntun liggur fyrir. Hægt er að endurnýja í gegnum
síma eða á söfnunum.
Panta má safnefni sem er í útláni. Hægt er að panta á söfnunum eða á Netinu.
Lánþega er heimilt að skila í hvaða safni Borgarbókasafns sem er, í bókabíl, í Bókasafni Seltjarnarness eða Bókasafni Mosfellsbæjar.

Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega greiðir hann andvirði þess.
Glati lánþegi skírteini ber að tilkynna safninu það hið fyrsta.

Tölvur
Borgarbókasafn bauð fyrst upp á almenningsaðgang að Netinu í bókasafninu í Gerðubergi árið 1995. Nú eru tölvur á öllum söfnunum þar sem hægt að komast á Netið. Þar er einnig aðgangur að margmiðlun og ritvinnsluforritum.Svo kallaðir "heitir reitir" eru í öllum söfnunum þar sem hægt er að tengjast Netinu.
Fyrir aðgang að tölvum safnsins er greitt samkvæmt gjaldskrá.

Gjaldskrá
Nýtt skírteini fyrir glatað
400 kr.

Tölvuaðgangur: 1/2 tími 125 kr., 1 tími 250 kr., 5 tímar 900 kr. og 10 tímar 1600 kr.

Dagsektir
Bækur og önnur gögn 20 kr.
Öll myndbönd og mynddiskar 300 kr.

Hámarkssektir
Hámarkssekt á gagn 500 kr.
Hámarkssekt á myndbönd og mynddiska 1200 kr.
Hámarkssekt á einstakling 4000 kr.

Viðmiðunargjald fyrir glötuð gögn og gögn sem skemmast í meðförum lánþega
Bækur og hljóðbækur 3.000 kr.
Tungumálanámskeið 3.000 kr.
Myndbönd og mynddiskar 2.500 kr.
Tónlistardiskar 2.000 kr.
- Bæklingur með tónlistardiskum 2.000 kr.
Nótur og snældur 1.000 kr.
Tímarit 200 kr.
Ef um ný gögn er að ræða (innan við tveggja ára) gildir innkaupsverð.

Annað:
Ljósrit og útprentun 20 kr. hvert blað
Símtal 30 kr.
Plastpokar 20 kr.
Taupokar 700 kr.
Sérsniðnar bókmenntagöngur 20 000 kr.
Sögubíllinn Æringi 30.000 kr. (2 tímar)

Gjaldskráin gildir frá 15. janúar 2010



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�