Útlánareglur
Skírteini fyrir þig
Skírteini Borgarbókasafns eru gefin út á einstakling og er óheimilt að nota skírteini annarra. Skírteinin gilda í öllum söfnum og bókabíl Borgarbókasafns, í Bókasafni Seltjarnarness og Bókasafni Mosfellsbæjar. Skírteini eru frí fyrir eldri borgara og öryrkja og fyrir börn að 18 ára aldri. Aðrir greiða árgjald.
Lykilorð fyrir þig
Þegar skírteini er gefið út fær eigandi lykilorð. Lykilorðið er notað í sjálfsafgreiðsluvélunum og til að komast á „mínar síður“ á www.gegnir.is. Þar er hægt að endurnýja safnefni ef ekki liggur fyrir pöntun á því, skoða útlánasögu og panta efni sem er í útláni.
Útlán fyrir þig
Lánstími er mismunandi, bækur eru að jafnaði lánaðar út í 30 daga, tónlist í 2 vikur, kvikmyndir í 2 daga og annað myndefni í viku. Hægt er að skila safnefni í öllum söfnum Borgarbókasafns sem og Bókasafni Seltjarnarness og í Bókasafni Mosfellsbæjar. Endurnýja má lán á safnefni einu sinni, á safninu, á www.gegnir.is eða með símtali á bókasafni.
Á réttum tíma fyrir þig
Allir dagar eru sektarlausir á Borgarbókasafn... ef skilað er á réttum tíma. Ef gögnum safnsins er skilað eftir að útlánstími rennur út eru greiddar dagsektir samkvæmt gjaldskrá. Innheimtubréf er sent 4 vikum eftir skiladag. Forráðamenn fá innheimtubréf vegna vanskila barna og unglinga.
Þinn hagur
Það er allra hagur að vel sé farið með safnefnið. Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega er það á hans ábyrgð og þarf hann að greiða andvirði þess. Forráðamenn bera ábyrgð á því efni sem börn fá að láni.
Til baka