Borgarbókasafnið leggur áherslu á að vera í góðu samstarfi við kennara á öllum skólastigum. Auk fastra liða eins og safnfræðslu og sögustunda er starfsfólk Borgarbókasafns ávallt opið fyrir heimsóknum, nýjum hugmyndum og samstarfi. Hafið samband við Þorbjörgu Karlsdóttur, thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is, s. 4116100.
Safnfræðsla Öllum nemendum í 4. bekk ásamt kennara er boðið í heimsókn í safnið í sínu hverfi og fá þeir kynningu á safninu og starfsemi þess. Borgarbókasafn býður auk upp á safnfræðslu fyrir nemendur á öllum aldri sé þess óskað. Hafið samband við viðkomandi safn.
Sögustundir og safnfræðsla Leikskólakennarar og kennarar yngri nemenda geta pantað sögustundir og safnfræðslu í söfnum Borgarbókasafns. Hafið samband við viðkomandi safn.
Bókakoffort Koffortin eru farandbókasafn sem Borgarbókasafn lánar á leikskóla Reykjavíkur. Börnin geta fengið bækur lánaðar heim. Hafið samband við viðkomandi safn.
Æringi Sögubíllinn Æringi ekur um bæinn og heimsækir leikskóla og frístundaheimili. Börnum er boðið í bílinn að hlusta á sögur og ævintýri. Verkefnastjóri Æringja er Ólöf Sverrisdóttir, olof.sverrisdottir@reykjavik.is, gsm. 664 7718.
Höfðingi Hægt er að panta bókabílinn Höfðingja í heimsókn t.d. á hverfahátíðir og annað. Vinsamlegast hafið samband við Dóru Thoroddsen, safnstjóra Kringlusafns, dora.thoroddsen@reykjavik.is, s. 5806200.
Heilahristingur og fljúgjandi teppi - menningarmót Borgarbókasafnið býður upp á fjöllbreytta þjónustu svo sem heimanámsaðstoð, Fljúgandi teppi eða menningarmót, kynningu á safninu og ratleiki. Verkefnastjóri fjölmenningarlegra verkefna er Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is, gsm. 6181420. Sjá nánar um fjölmenningarleg verkefni.
Það er alltaf eitthvað um að vera í Borgarbókasafninu fyrir börn á grunnskólaaldri: námskeið, sýningar, smiðjur, upplestrar o.s.frv. Til þess að láta kennara og starfsfólk frístundaheimila vita af þessum viðburðum í Borgarbókasafninu erum við með póstlista sem er sérstaklega ætlaður þeim. Skráðu þig á póstlistann ef þú vilt fylgjast með!
Skrá á póstlistann