Í öllum söfnum Borgarbókasafns eru deildir sem eru sérstaklega ætlaðar börnum. Í barnadeildunum er fjölbreytt efni fyrir börn, myndabækur, léttlestrarbækur, vísnabækur, ævintýri, tónlist, hljóðbækur, kvikmyndir, fræðsluefni og annað fyrir börn. Þar er notalegt andrúmsloft og aðstaða til að setjast niður, lesa og spjalla. Ferð á bókasafnið er hin besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Öll söfn Borgarbókasafns bjóða upp á viðburði fyrir börn og eru þeir auglýstir sérstaklega. Fjölskyldumorgnar eru einu sinni í viku yfir vetrartímann í aðalsafni og Gerðubergi
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergssafni yfir vetrartímann og þá er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn.
Bókalistar fyrir yngri börn