Fara beint í leiðarkerfi vefsins.
Vefsíða Borgarbókasafns
Fréttalisti
29.11.2010
Áttu orð aflögu?
Taktu þátt í alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty International í Borgarbókasafni Reykjavíkur frá 4. til 14. desember og skrifaðu undir kort í þágu þolenda mannréttindabrota á aðventunni.
26.11.2010
Jólaföndur í Grófarhúsi
Sunnudaginn 28. nóvember kl. 15 mun Kristín Arngrímsdóttir myndlistarkona aðstoða gesti við gerð jólaföndurs. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
25.11.2010
Friður og fjölmenning í Viðey sunnudaginn 28. nóvember
Opin listsmiðja og notaleg samverustund fyrir börn og fullorðna verður í Viðeyjarstofu sunnudaginn 28. nóvember frá kl. 14:00-16:00.
22.11.2010
Ayurveda á foreldramorgni
Þriðjudaginn 23. nóvember mun Flore Nicolas segja frá því hvernig hægt sé að forðast og lækna kvef barna með kryddjurtum, matvörum og öðrum náttúruvörum sem til eru í eldhúsinu
22.11.2010
Mjallhvít sló í gegn
Um 200 manns komu að sjá leikritið Mjallhvíti sem sýnt var í Foldasafni laugardaginn 20. nóvember.
22.11.2010
Fjölmenni á Lennondagskrá
Fjölmennt var á Lennondagskrá sem haldin var á aðalsafni laugardaginn 20. nóvember.
17.11.2010
Gerður Kristný og krakkabíó
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergssafni og þá er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
15.11.2010
Fyrsta íslenska rafbókin
Nú hefur verið brotið blað í bókaútgáfu á Íslandi með útgáfu fyrstu íslensku rafbókarinnar. Bókin er Zen og listin að viðhalda vélhjólum og er gefin út af bókaforlaginu Eddu.
12.11.2010
Brúðuleikhús á Foldasafni 20. nóvember
Laugardaginn þann 20. nóvember kl. 15 mun brúðuleikhúsið Tíu fingur sýna brúðuleikritið Mjallhvít.
11.11.2010
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergssafni
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergi og þar er alltaf eitthvað að um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
11.11.2010
Sunnudagar eru barnadagar í Gerðubergssafni
Sunnudagar eru barnadagar í Gerðubergssafni. Klukkan 14 á hverjum sunnudegi gerum við eitthvað skemmtilegt saman.
10.11.2010
Furðuverur á Foldasafni
Myndlistasýning frá Myndlistaskóla Grafarvogs stendur nú yfir á Foldasafni og verður nóvember.
08.11.2010
Raddir úr fjarlægð
Raddir úr fjarlægð: smásögur er nýúkomin bók hjá bókaforlaginu Sögur. Höfundur hennar er Ingvi Þór Kormáksson, starfsmaður Borgarbókasafns til margra ára.
04.11.2010
TÖLUM SAMAN - LETS TALK- HABLEMOS-PAKALBĖKIM-POROZMAWIAJMY RAZEM- ДABAЙTE ПOГOBOPИM- HÃY CÙNG NÓI CHUYÊN-เราขาคยกันเถอะ
Fjölmenningarþing verður haldið í fyrsta sinn á Íslandi næstkomandi laugardag. Þingið verður í Borgarleikhúsinu kl. 10-14.
02.11.2010
Pantið í febrúar!
Nú eru "jólabækurnar" farnar að streyma inn á söfn Borgarbókasafns. Eins og undanfarin ár verður ekki hægt að panta þessar bækur fyrr en í febrúar.
02.11.2010
Kryddjurtir og matur gegn kvefi
Fimmtudaginn 4. nóvember mun Flore Nicolas mæta á fjölskyldumorgun í aðalsafni og segja frá því hvernig forðast megi og lækna kvef barna með ýmsu úr eldhúsinu.
28.10.2010
Dagksrá tileinkuð John Lennon 20. nóvember
Minningahylki, tileinkað John Lennon, er komið til landsins og inn á aðalsafn. Hylki þetta og tvö önnur voru innsigluð þann 9. október síðastliðinn, á afmælisdegi Lennons.
11.10.2010
Minningahylki um John Lennon á Borgarbókasafni
Í tilefni þess að 9. október síðastliðinn voru liðin sjötíu ár frá fæðingu John Lennons voru þann dag innsigluð í Rock and Roll Hall of Fame and Museum þrjú minningahylki til heiðurs honum og friðarboðskap hans.
01.10.2010
Riff í kamesinu
Í tilefni af RIFF-kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir sýnum við yfir helgina í kamesi aðalsafns, Grófarhúsi, úrval stutt- og hreyfistuttmynda frá ýmsum löndum.
01.10.2010
Sýningaropnun, myndlist og sköpun í Söguhring kvenna
Sunnudaginn 3. október býður bókasafnið Söguhring kvenna á sýningaropnun kl. 15.00 á 1. hæð í aðalsafni, Tryggvagötu 15. Allar konur velkomnar!
30.09.2010
Lennon lifir - viltu taka þátt?
Við í Borgarbókasafni erum nú önnum kafin við að kaupa inn efni, fylla upp í eyður og almennt að búa okkur undir þau tímamót að John Lennon hefði orðið sjötugur 9. október næstkomandi. Í millitíðinni viljum við vekja athygli á síðunni Box of Vision þar sem aðdáendum gefst færi á að senda inn video á netinu með afmælisóskum...
29.09.2010
Sýning á myndum úr afrískum bókum
Nú stendur yfir sýning á myndskreytingum úr afrískum barnabókum á aðalsafni. Sýningin er í samstarfi við Alliance française.
28.09.2010
Daði Guðbjörnsson með listamannaspjall
Laugardaginn 2. október, kl. 13.30-15 mun Daði Guðbjörnsson fjalla um sýningu sína í Artóteki.
23.09.2010
Prjónakaffi í Ársafni og Sólheimasafni
Nú er prjónað af kappi í Ársafni en þar hófst prjónakaffi í byrjun september.
16.09.2010
Sahaja yoga á Borgarbókasafni
Kynning verður á Sahaja yoga laugardaginn 18. september í aðalsafni Borgarbókasafns Tryggvagötu 15.
14.09.2010
Gefandi sjálfboðastarf í boði!
Ertu 18 ára eða eldri? Viltu leggja þitt af mörkum, auka við reynslu þína og kynnast um leið skemmtilegum krökkum?
07.09.2010
Alþjóðlegur dagur læsis 8. september
Alþjóðlegur dagur læsis er miðvikudaginn 8. september. Á þessum degi er fólk víða um heim hvatt til þess að lesa, fyrir sjálft sig sem og aðra.
05.09.2010
Borgarbókasafn um alla borg
Borgarbókasafnið er aldrei langt undan þar sem safn eða viðkomustaður bókabíls er alltaf innan eins kílómetra göngufæris.
03.09.2010
Getraun mánaðarins
Nú fer hver að verða siðastu til að taka þátt í getraun mánaðarins. Spurt er um 4 tónlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að hafa látist á sviplegan hátt.
03.09.2010
Sögubíllinn Æringi og Sóla á hverfahátíð
Sóla sögukona og sögubílinn Æringi verða á hverfahátíð Miðborgar og Hlíða á Klambratúni, laugardaginn 4. september.
30.08.2010
Söguhringur kvenna
Nú er Söguhringur kvenna kominn úr sumarfríi og verður fyrsti söguhringur haustsins sunnudaginn 5. september í aðalsafni.
25.08.2010
Menningarnótt í Borgarbókasafni
Fjölmennt var að vanda í aðalsafni á Menningarnótt. Áhersla var lögð á ljóðlistina og 10 ára veru aðalsafns í Grófarhúsi.
13.08.2010
Borgarbókasafn á Twitter
Nú er Borgarbókasafn komið á Twitter og geta allir fylgst með fréttum og öðru á þeim vettvangi.
09.08.2010
Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns: Pöbbaganga í miðbænum
Síðasta kvöldganga sumarsins er fimmtudaginn 12. ágúst og er hún í boði allra safnanna sem standa fyrir göngunum. Í göngunni verður næturlíf miðbæjarins tekið fyrir.
06.08.2010
Foldasafn og Gerðuberg úr sumarfríi
Foldasafn og Gerðuberg opna aftur eftir sumarleyfi mánudaginn 9. ágúst.
23.07.2010
Æringi, Sóla og Krummi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag, 26.- 28. júlí, verður sögubíllinn Æringi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Sóla sögukona segir börnunum sögur í bílnum og hver veit nema Krummi komi líka í heimsókn.
29.06.2010
Ársafn og Sólheimasafn í sumarfrí
Lokað verður í Ársafni og Sólheimasafni frá 28. júní til og með 18. júlí.
28.06.2010
Bókmenntagöngur á ensku / Reykjavik Literally
Borgarbókasafn býður erlendum ferðamönnum og öðrum sem ekki tala íslensku upp á bókmenntagöngur á ensku alla fimmtudaga kl. 17 í júlí og ágúst.
28.06.2010
Útilistaverk borgarinnar
Næsta kvöldganga í hverfunum er í umsjón Listasafns Reykjavíkur. Sigurlaug Ragnarsdóttir leiðir gönguna og verða útlistverk borgarinnar verða skoðuð út frá hugmyndafræðilegum grundvelli.
09.06.2010
Mararþaraborg - kvöldganga um gömlu höfnina
Fimmtudaginn 10. júní, kl. 20.00, er önnur kvöldganga sumarsins. Gengið verður um gömlu höfnina í Reykjavík.
03.06.2010
Lesum og lesum í sumar!
Sumarlestur stendur yfir í öllum söfnum Borgarbókasafns frá 1. júní til 31. ágúst. Sumarlesturinn er ætlaður börnum og unglingum.
03.06.2010
Inspired by Iceland
Inspired By Iceland er nýr vefur sem opnaður hefur verið til að kynna land og þjóð. Sendu tengilinn á vini og vandamenn um allan heim!
01.06.2010
Kvöldgöngur í hverfunum
Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndasafn og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur í hverfunum á fimmtudagskvöldum í sumar.
31.05.2010
Allar heimsins konur í Viðey
Söguhringur kvenna rak endahnútinn á vetrarstarfið með ánægjulegum degi í Viðey sunnudaginn, 30. maí.
25.05.2010
John Hart bestur
Ein helstu spennubókaverðlaun heims eru svonefnd Edgar-verðlaun vestanhafs en þau hafa nafn sitt frá bandaríska skáldinu Edgar Allan Poe.
19.05.2010
Kristín Arngrímsdóttir hlýtur viðurkenningu frá Ibby
Kristín Arngrímsdóttir, listamaður og starfsmaður Borgarbókasafns, hlaut viðurkenningu Ibby fyrir bók sína Arngrímur apaskott og fiðlan.
19.05.2010
Farfuglar og ferðalög í Kamesinu
Á næstu vikum verða sýndar heimildamyndir tengdar íslenskri náttúru í Kamesinu.
12.05.2010
Frí skírteini fyrir atvinnulausa
Atvinnulausir og þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg fá nú frítt skírteini á Borgarbókasafni.
03.05.2010
Lausn á getraun aprílmánaðar
Í síðasta mánuði var spurt um hryngeirameðlimi og hljómsveitirnar sem þeir voru í.
23.04.2010
Nonni og Konni slá í gegn
Borgarbókasafnið og Myndlistaskólinn í Reykjavík stóðu fyrir samkeppni í vetur um myndasögur undir yfirskriftinni „Skrípó: Lítil saga í fáeinum römmum“, og er þetta í annað sinn sem slík keppni er haldin.
23.04.2010
Núll núll 9 eftir Þorgrím Þráinsson og Stórskemmtilega stelpubókin vinsælastar
Bókaverðlaun barnanna voru afhent á Borgarbókasafni í gær, sumardaginn fyrsta.
08.04.2010
Sóla á sunnudegi
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og þar er alltaf eitthvað um að vera á sunnudögum klukkan þrjú fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Næsta sunnudag, 11. apríl, verður sögustund í umsjón Sólu.
07.04.2010
Getraun aprílmánaðar
Getraunin, sem er frekar seint á ferðinni núna vegna páskaanna, snýst um söngvara úr hryngeiranum og hljómsveitir.
06.04.2010
Lokun Seljasafns mótmælt
Fulltrúar íbúa Seljahverfis afhentu formanni menningar- og ferðamálaráðs undirskriftalista þar sem lokun Seljasafns er mótmælt.
30.03.2010
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Finnski rithöfundurinn Sofi Oksanen hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fyrir bókina "Puhdistus"
29.03.2010
Afgreiðslutími um páskana
Lokað verður í öllum söfnum Borgarbókasafns frá 1. - 5. apríl að báðum dögum meðtöldum. Verið velkomin í söfnin þriðjudaginn 6. apríl. Gleðilega páska.
29.03.2010
Þrjúbíó í Kamesinu
Sunnudaginn 28. mars var myndin Tales of Beatrix Potter sýnd í Kamesinu. Þetta er í fyrsta skipti sem þrjúbíó fer fram í Kamesinu og tóku börn og foreldrar þessari nýbreytni vel.
29.03.2010
Kristin trú í Kamesinu
Páskarnir nálgast og í tilefni þess sýnum við í Kamesinu rúmlega 20 mínútna mynd Sigurðar Inga Ásmundssonar um kristna trú.
12.03.2010
Búið að draga í Safnanæturleiknum!
Dregið hefur verið í Safnanæturleiknum. Um 500 manns tóku þátt í þessum skemmtilega leik, enda vinningarnir sérlega veglegir.
11.03.2010
Kristín R. Vilhjálmsdóttir tilnefnd til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins
Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni, er tilnefnd til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins í flokkinum „Til atlögu gegn fordómum"
10.03.2010
Kamesið um helgina
Í tilefni átaksins „Karlmenn og krabbamein“ sem nú stendur yfir, verður myndin Krabbamein í blöðruhálskirtli frá 2005 sýnd í Kamesinu laugardag 13. mars
10.03.2010
Foldasafn breytir um svip
Foldasafn tók stakkaskiptum í lok febrúar. Barnadeildin er komin á neðri hæð safnsins og er nú mun stærri og glæsilegri en áður.
08.03.2010
Skýrsla um fjölmenningarlegt starf í Borgarbókasafni
Undanfarin tvö ár hefur öflugt fjölmenningarlegt starf farið fram í Borgarbókasafni. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar, hefur sett saman ítarlegt yfirlit um fjölmenningarleg verkefni og starf á safninu.
03.03.2010
Slammhelgi í Kamesinu
Helgina 6. og 7. mars verða sýndar í Kamesinu upptökur frá ljóðaslammi Borgarbókasafns 2010.
01.03.2010
Krílasálmar á fjölskyldumorgnum
Kynning verður á Krílasálmum á fjölskyldumorgnum í Gerðubergi, þriðjudaginn 2. mars og aðalsafni fimmtudaginn 4. mars kl. 10.30-11.30.
01.03.2010
Getraun marsmánaðar
Getraunin tengist að þessu sinni fjórum kvikmyndaleikurum, sem allir eru frægari fyrir líkamlegt atgervi fremur en afburða leikhæfileika.
01.03.2010
Úr grárri forneskju í glansandi bók
Laugardaginn 13. mars verður haldin ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
01.03.2010
Pétur og úlfurinn í aðalsafni
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og þar er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra kl. 15.00. Næsta sunnudag, 7. mars, verður brúðuleikhús.
01.03.2010
Lausn á getraun febrúarmánaðar
Í febrúar var spurt um tiltölulega nýlátna nafna, rokkkóng og titil á kvikmynd.
01.03.2010
Fjölskyldudagur á sunnudaginn
Mikið var um að vera á aðalsafni sunnudaginn 28. febrúar. Sóla sögukona mætti með afmæliðsbarnið Æringja, sagði sögur og útdeildi kókómjólk í boði Mjólkursamsölunnar.
25.02.2010
Æringi tveggja ára og þrjúbíó
Nú á æringinn hann Æringi tveggja ára afmæli. Af því tilefni verður bíllinn fyrir framan aðalsafn sunnudaginn 28. febrúar kl. 14.00-15.00.
23.02.2010
Una Margrét Jónsdóttir og Söngvaleikir
Miðvikudaginn 24. febrúar mun Una Margrét Jónsdóttir fjalla um íslenska söngvaleiki og tengsl þeirra við sams konar söngva erlendis.
22.02.2010
Fjölmennt í Brúðusögustund
Fjölmennt var í Brúðusögustund í aðalsafni síðastliðinn sunnudag. Sigrjún Jóna Kristjánsdóttir sagði sögu með aðstoð leikbrúða og skemmtu ungir og fullorðnir sér afar vel.
22.02.2010
Lögfræðiráðgjöf á Borgarbókasafni
Orator, félag laganema við Háskóla Íslands, mun á næstu vikum bjóða borgarbúum upp á lögfræðiráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu, á Borgarbókasafni.
19.02.2010
Húmor og Amor á konudaginn
Söguhringur kvenna býður upp á notalega samverustund á konudaginn sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15.
18.02.2010
Brúðusögustund á sunnudaginn
Næsta sunnudag klukkan þrjú verður brúðusögustund í barnadeild Borgarbókasafnsins við Tryggvagötu.
16.02.2010
Myndir af fjölskyldunámskeiði
Það var sérlega góð mæting á fjölskyldunámskeið í bolluvanda- og öskupokagerð sem haldið var á aðalsafni sunnudaginn síðastliðinn.
15.02.2010
Úrslit ljóðaslamms 2010
Borgarbókasafn Reykjavíkur hélt keppni í ljóðaslammi þriðja árið í röð á Safnanótt föstudaginn 12. febrúar. Þema kvöldsins var væmni og brugðu keppendur ólíku ljósi á þetta vandmeðfarna viðfangsefni, þótt ástin hafi óneitanlega sett sterkan svip á kvöldið.
12.02.2010
Kamesið um helgina
Himininn yfir Berlin og Heyrðu! saga frá Íslandi verða á dagskrá Kamesins um helgina.
11.02.2010
Fjölskyldunámskeið í gerð öskupoka og bolluvanda
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og næsta sunnnudag kl. 15.00 verður boðið upp á námskeið í gerð öskupoka og bolluvanda.
09.02.2010
Áfram lokað í Foldasafni
Lokað verður í Foldasafni miðvikudaginn 10. febrúar vegna breytinga.
08.02.2010
Fjölskyldumorgunn í Gerðubergi
Fjölskyldumorgunn verður í Gerðubergi þriðjudaginn 9. febrúar kl. 10.30 - 11.30. Fjölskyldur með börn á aldrinum 0-6 ára velkomnar.
05.02.2010
Kamesið um helgina
Ljóðslamm Borgarbókasafns verður á Safnanótt 12. febrúar. Af því tilefni verða fyrri slömm safnins sýnd í Kamesinu um helgina.
05.02.2010
Skrípó 2010
Borgarbókasafn og Myndlistaskólinn í Reykjavík standa fyrir myndasögusamkeppni - og sýningu fyrir fólk á aldrinum 10 - 20+.
04.02.2010
Húmor, Amor, ljóðlist og notaleg samvera
Vertu hjartanlega velkomin í Söguhring kvenna sunnudaginn 7. febrúar kl. 15.00 – 16.30, Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15, 6. hæð.
04.02.2010
Getraun mánaðarins
Getraunin tengist að þessu sinni viskí, tónlist og kvikmyndum. Spurt er um nafna tvo. Báðir eru þeir tiltölulega nýlátnir.
28.01.2010
Fjölmenni í barnadeild aðalsafns
Fjölmennt var á fjölskyldumorgni í aðalsafni fimmtudaginn 28. janúar þegar Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir leikskólaráðgjafi fjallaði uma um málþroska barna frá fæðingu til 5-6 ára aldurs.
22.01.2010
Kamesið helgina 23. og 24. janúar
Fyrri ljóðaslömm og sögur af álfum, tröllum og draugum verða á dagskrá í Kamesinu um helgina.
22.01.2010
Starfsfólk Borgarbókasafns vinnur til verðlauna
Jónína Óskarsdóttir og Ingibjörg Hafliðadóttir, starfsmenn Borgarbókasafns, unnu fyrstu og önnur verðlaun í smásagnasasamkeppni.
21.01.2010
Fjölskyldumorgnar á bókasafninu – fræðsla um málþroska barna 26. og 28. janúar
Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir leikskólaráðgjafi mun spjalla um málþroska barna frá fæðingu til 5-6 ára aldurs.
20.01.2010
Sjálfboðaliðar óskast
Viltu leggja þitt af mörkum, auka við reynslu þína og kynnast um leið skemmtilegum krökkum? Ertu laus á þriðjudögum eða fimmtudögum kl.14.30 - 16.00?
15.01.2010
Dagskrá í Kamesinu um helgina
Upptökur af Ljóðaslammi og heimildamyndir verða á dagskrá í Kamesinu um helgina.
14.01.2010
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni
Næsta sunnudag, þann 17. janúar klukkan þrjú, ætlar Ragnheiður Gestsdóttir að koma og hitta krakkana.
12.01.2010
Heilahristingur.is
Þriðjudaginn 12. janúar var opnuð heimasíða Heilahristings - heimanámsaðstoðar á bókasafninu. Heilahristingur er heimanámsaðstoð við nemendur í 5.-10. bekk í grunnskólum Breiðholts og á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti.
05.01.2010
Ánægður gestur í Borgarbókasafni
Sally Chambers skrifaði þessi notalegu ummæli á Facebooksíðu safnsins.
05.01.2010
Getraun janúarmánaðar
Getraunin snýst að þessu sinni um riddarabókmenntir, kvikmyndleikara og nafn á hljómsveit.
05.01.2010
Lausn á getraun desembermánaðar
Í síðasta mánuði var spurt um „söngelska“ og nokkuð þéttvaxna norska grínhetju.
21.12.2009
Kamesið
Kamesið er herbergi fyrir viðburði af ýmsu tagi, s.s. sýningar á kvikmyndum og vídeóverkum, upplestur, söguflutning, kynningar, uppistand og leiksýningar.
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi
Lei�arkerfi vefsins
Afgreiðslutími
Söfn og bílar
Gjaldskrá
Börn&unglingar
Þjónusta
Um safnið
Fl�tilei�ir
Skráðu þig á póstlista
Hafðu samband
Veftré
Skipta um leturst�r�
A-
A+
Tungum�l
Polski version
English version
Icelandic version
Danish version
Spanish version
Lithauen version
French version
Russian version
Thailand version
�� ert h�r
Forsíða
::
Fréttir
::
Fréttir - nánar
Leitarvefur sem býður upp á leitir í fjölbreyttum safnkosti bókasafna og efni valinna sérsafna