Vefsíða Borgarbókasafns

Fréttalisti

13.01.2012

Talaðu frá hjartanu/Speak from your heart!

Næsti Söguhringur kvenna verður haldinn á sunnudaginn 15. janúar, kl. 14.00 á Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15. Að þessu sinni mun Valgerður Jónsdóttir kynna og stjórna því sem á ensku hefur verið kalla "intercultural dialogue" eða samræða milli menninga.Lesa meira
13.01.2012

Krakkabíó og origami

Sunnudagar eru barnadagar í Borgarbókasafni og sunnudaginn 15. janúar verður boðið upp á krakkabíó í Gerðubergssafni kl. 14 og origami í aðalsafni kl. 15.Lesa meira
29.12.2011

Opið í aðalsafni á gamlársdag

Opið verður í aðalsafni á gamlársdag frá kl. 10-14. Lokað er í öðrum söfnum.Lesa meira
27.12.2011

Lokað í þremur söfnum þriðjudaginn 27. desember

Lokað er í Foldasafni, Gerðubergssafni og Kringlusafni þriðjudaginn 27. desember. Opið er í öðrum söfnum samkvæmt afgreiðslutíma.Lesa meira
15.12.2011

Didda Hjartardóttir Leaman sýnir í Artóteki

Nú stendur yfir sýning á verkum Diddu Hjartardóttur Leaman myndlistarmanns, í Artóteki á 1. hæð í aðalsafni. Lesa meira
12.12.2011

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna

Miðvikudaginn 14. desember var gert opinbert hvaða bækur hljóta tilnefningar í ár til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna.Lesa meira
07.12.2011

Lennon í Kamesinu 8. desember

Fimmtudaginn 8. desember, á dánardegi John Lennons, verður myndin Lennon Legend : the very best of John Lennon sýnd í Kamesinu, á 5. hæð í aðalsafni.Lesa meira
05.12.2011

Dot.com

Sunnudaginn 4. desember var nafn á listaverki sem unnið var af Söguhring kvenna gert opinbert.Lesa meira
01.12.2011

Unglingalestur í aðalsafni

Vel á annað hundrað unglingar úr 7., 8., 9. og 10. bekk heimsóttu aðalsafn í vikunni og hlustuðu á rithöfundana Rögnu Sigurðardóttur, Stefán Mána, Jónínu Leósdóttur og Arndísi Þórarinsdóttur lesa úr nýúkomnum verkum sínum. Lesa meira
30.11.2011

Hvað á verkið að heita? Úrslit úr nafnasamkeppni kynnt

Síðastliðið sumar efndu Borgarbókasafn og Mannréttindaskrifstofa til samkeppni um nafn á listaverk sem unnið var af Söguhring kvenna.Lesa meira
30.11.2011

Föndrað fyrir jólin í aðalsafni

Jólaföndursmiðja fyrir börn og fjölskyldur þeirra verður í aðalsafni sunnudaginn 4. desember í umsjón Kristínar Arngrímsdóttur.Lesa meira
30.11.2011

Friður og fjölmenning í Viðey

Hugsa sér frið... Skapandi smiðja og notaleg samverustund fyrir börn og fullorðna verður haldin í Viðeyjarstofu laugardaginn 3. desember frá kl. 14:00. Lesa meira
28.11.2011

Bréf til bjargar lífi. Ert þú búin/n að skrifa nafnið þitt?

Dagana 4.-14. desember stendur yfir bréfamaraþon Amnesty International í aðalsafni, Foldasafni og Gerðubergssafni.Lesa meira
25.11.2011

Bréfamaraþon Amnesty International á Foldasafni

Dagana 4. - 14. desember verður bréfamaraþon Amnesty International á Foldasafni.Lesa meira
25.11.2011

Kirkjutónlist í Kamesinu

Sunnudaginn 27. nóvember, á fyrsta degi í aðventu, verður heimildarmyndin „Kirkjutónlist á Íslandi“ sýnd í Kamesinu kl. 15 og 16. Lesa meira
24.11.2011

Sögustund og spil

Sunnudagar eru barnadagar og þá er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Gerðubergssafni og aðalsafni.Lesa meira
24.11.2011

Gímaldin og Skúli mennski í aðalsafni

Tónleikar verða á 1. hæð Borgarbókasafnsins Tryggvagötu 15, laugardaginn 26. nóvember kl. 14. Þeir félagar Gímaldin og Skúli mennski flytja lög af nýútkomnum geisladiskum sínum Búgí og Þú ert ekki sá sem ég valdi.Lesa meira
21.11.2011

Nokkrar glóðvolgar í bókakaffi

Fjallað verður um glóðvolgar og nýútkomnar bækur í bókakaffi í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi miðvikudaginn 23. nóvember kl. 20.Lesa meira
21.11.2011

Nýr leitarvefur

Landskerfi bókasafna kynnti nýjan leitarvef „leitir.is“ þann 11. nóvember síðastliðinn. Á vefnum býðst aðgengi á einum stað að fjölbreyttum safnkosti bókasafna á Íslandi og efni valinna sérsafna.Lesa meira
19.11.2011

Origami og krakkabíó

Að venju er eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Gerðubergssafni og aðalsafni á sunnudaginn.Lesa meira
18.11.2011

Fyrirgefningaveggur

Nú er hægt að fyrirgefa eitt og annað á fyrirgefningaveggnum sem settur hefur verið upp í aðalsafni, en veggurinn er framlag Málamyndahópsins sem er að semja leikrit um hugtakið fyrirgefningu. Lesa meira
17.11.2011

Hver var Jónas?

Leikin heimildarmynd um Jónas Hallgrímsson verður sýnd í Kamesinu laugardaginn 19. og sunnudaginn 20. nóvember kl. 15.Lesa meira
17.11.2011

Kellíngabækur, lestur úr barnabókum, jóga og nudd

Það verður mikið um að vera í Gerðubergi laugardaginn 19. nóvember. Í tilefni "kellíngabóka" sem eru á dagskrá í Menningarmiðstöðinni verður boðið upp á dagskrá fyrir börn og fullorðna í Gerðubergssafni.Lesa meira
16.11.2011

Til hamingju Kristín Marja!

Kristín Marja Baldursdóttir hlaut í dag, á degi íslenskrar tungu, Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar.Lesa meira
16.11.2011

Dagur íslenskrar tungu í aðalsafni

Börn frá leikskólunum Drafnarborg og Dvergasteini sungu fyrir gesti og aðstandendur nokkur íslensk falleg lög.Lesa meira
11.11.2011

,,Barn ert þú í hjarta"

Sóla sögukona í Gerðubergssafni sunnudaginn 13. nóvember.Lesa meira
11.11.2011

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu er miðvikudagurinn 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Í Ársafni verður dagurinn haldinn hátíðlegur, eins og undanfarin tvö ár, með maraþonlestri allan daginn frá kl. 11-18. Lesa meira
09.11.2011

Bókamessa í Bókmenntaborg

Helgina 12. – 13. nóvember standa Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir bókamessu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og í Iðnó. Lesa meira
08.11.2011

Jóladiskarnir dregnir fram

Þó enn sé nokkuð langt til jóla er búið að finna til jóladiskana í aðalsafni og stilla þeim út í tón- og mynddeildinni á 5tu hæð. Lesa meira
08.11.2011

Lifandi bókasafn miðvikudaginn 9. nóvember

Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS standa fyrir lifandi bókasafni miðvikudaginn 9. nóvember á 1. hæð Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, frá kl. 16.00-18.00 í tilefni að alþjóðlegum degi gegn rasisma og fasisma. Lesa meira
07.11.2011

Flóð í Foldasafni

Lítilsháttar flóð varð í Grafarvogskirkju á föstudaginn og náði vatnið m.a. inn í húsnæði Borgarbókasafns sem staðsett er á neðri hæð kirkjunnar.Lesa meira
04.11.2011

Búningar og föndur á sunnudaginn

Sunnudagar eru barnadagar í Gerðubergssafni og aðalsafni og þá er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra.Lesa meira
02.11.2011

Upp með hendur!

Söguhringur kvenna býður upp á kynningu á lopaprjóni og hekli. Íslenskar og pakistanskar hendur leiða þátttakendur í gegnum kynninguna auk þess sem hægt verður að glugga í bækur og tímarit um handavinnu. Lesa meira
01.11.2011

Hvað er í fréttum? - Þjónusta við innflytjendur

Langar þig að lesa íslensku blöðin og skilja hvað er að gerast á Íslandi? Komdu á Borgarbókasafnið alla fimmtudaga kl. 17.30 og lestu blöðin með okkur!Lesa meira
27.10.2011

Krummi krunkar úti

Bára Grímsdóttir og Chris Foster verða með skemmtilega og fræðandi dagskrá um krumma fyrir eldri börn leikskóla og yngstu börn grunnskóla sunnudaginn 30. október kl. 15. Allir velkomnir. Lesa meira
26.10.2011

Lokað föstudaginn 28. október

Lokað er í öllum söfnum Borgarbókasafns föstudaginn 28. október vegna málþings starfsmanna. Verið velkomin í söfnin á laugardaginn.Lesa meira
22.10.2011

Töfrandi kettir

Sýningu á myndum eftir rithöfundinn Vigdísi Grímsdóttur í aðalsafni, Tryggvagötu 15 lýkur nú um helgina.Lesa meira
19.10.2011

Fjölskyldumorgnar á bókasafninu

Flore Nicolas, jurtalæknir AYURVEDA, mun segja frá því hvernig hægt sé að forðast og lækna kvef barna með kryddjurtum, matvörum og öðru, á fjölskyldumorgni í Gerðubergssafni, miðvikudaginn 26. okt., klukkan 10:30.Lesa meira
17.10.2011

Berlín og Bláir englar - síðasta sýningarhelgi

Nú fer hver að verða síðastur að sjá myndirnar á þýsku kvikmyndahátíðinni í kamesi aðalsafns Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Yfirskrift hátíðarinnar eru Berlín og Bláir englar.Lesa meira
13.10.2011

John Lennon / Plastic Ono Band í kamesinu á laugardag

Í tilefni komu Yoko Ono Plastic Ono Band á Iceland Airwaves – og útstillingar í tón- og mynddeild safnsins á einu af þremur minningahylkjum sem gerð voru í fyrra um John Lennon og friðarboðskap hans – verður myndin John Lennon / Plastic Ono Band sýnd kl. 15 og kl. 16 í aðalsafni á laugardag.Lesa meira
09.10.2011

Leshringurinn "Gamlar og góðar"

Leshringurinn "Gamlar og góðar" byrjar aftur í aðalsafni í lok október. Leshringurinn verður þriðja þriðjudag í mánuði og hefst hann kl. 17.15.Lesa meira
07.10.2011

Backbeat og Nowhere Boy í kamesinu um helgina

Í tilefni sýningarinnar Baby's in Black og afmæli John Lennons 9. október verður stillt út efni um og eftir Bítlana og John Lennon á 5. hæð aðalsafns Borgarbókasafns og sýndar kvikmyndir í sýningarsalnum kamesi. Lesa meira
06.10.2011

Ragnheiður Þóra Grímsdóttir sagnaþula í Gerðubergssafni

Sunnudaginn 23. október kl. 14 segir Ragnheiður Þóra Grímsdóttir sagnaþula börnum og fullorðnum sögur í Gerðubergssafni. Lesa meira
06.10.2011

Tomas Tranströmer fær Nóbels-verðlaunin í bókmenntum 2011.

Sænski rithöfundurinn, skáldið og þýðandinn Tomas Tranströmer fær Nóbels-verðlaunin í bókmenntum 2011. Þetta var tilkynnt í Stokkhólmi nú klukkan ellefu. Lesa meira
06.10.2011

Nýr leshringur í Borgarbókasafni

Í nóvember mun fara af stað leshringur í Foldasafni. Gert er ráð fyrir 7-12 manns og eru ekki gerðar sérstakar kröfur um kunnáttu eða menntun, aðeins einlægan áhuga og tíma. Lesa meira
06.10.2011

Sindri Freysson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, veitti í í gær, 5. október, í Höfða Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2011. Besta ljóðahandritið að mati dómnefndar var Í klóm dalalæðunnar eftir Sindra Freysson. Lesa meira
05.10.2011

Spilastund og sagnaþula

Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergi og nú er spennandi sunnudagur framundan fyrir börn og fjölskyldur þeirra.Lesa meira
05.10.2011

Kynning á frumvarpi til stjórnskipunarlaga

Fjórði kynningarfundur Borgarbókasafns á frumvarpi til stjórnskipunarlaga verður mánudaginn 31. október kl. 17.15. Allir velkomnir! Lesa meira
30.09.2011

Æringjasögur- og myndir

Nú stendur yfir sýning á Æringjasögum og - myndum í Foldasafni. Sögurnar eru skrifaðar af leikskólabörnum og myndskreyttar af nemendum í 10. bekk.Lesa meira
26.09.2011

Út úr býflugnabúinu. Hádegisspjall um Irène Némirovsky

Fimmtudaginn 29. september kl. 12.15 mun Friðrik Rafnsson spjalla við gesti um fransk-úkraínsku skáldkonuna Irène Némirovsky og verk hennar. Lesa meira
26.09.2011

Mátti kerlingin ekki skrifa í friði?

Miðvikudaginn 28. september mun Marín G. Hrafnsdóttir, bókmenntafræðingur og langömmubarn skáldkonunnar Guðrúnar frá Lundi, segja frá lífi og list ömmu sinnar í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.Lesa meira
26.09.2011

Riff í kamesinu

Í samvinnu við RIFF-kvikmyndahátíðina sem nú stendur yfir, sýnum við úrval stuttmynda frá ýmsum löndum í kamesi aðalsafns, Grófarhúsi.Lesa meira
23.09.2011

Sögustund og föndur á sunnudegi

Björk bókavera verður með sögustund í Gerðubergssafni sunnudaginn 25. september kl. 14. og Kristín Arngrímsdóttir sér um föndur í aðalsafni kl. 15. Allir velkomnir.Lesa meira
22.09.2011

Heilahristingur

Heilahristingur hefst aftur um miðjan september og verður þjónustan núna í boði í Gerðubergssafni, Kringlusafni og í aðalsafni Tryggvagötu. Lesa meira
16.09.2011

Origami og krakkabíó á sunnudaginn

Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergssafni og þar er alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Lesa meira
13.09.2011

Stæðaæði

Föstudaginn 16. september kl. 14-18 mun Borgarbókasafn taka þátt í Stæðaæði á Laugaveginum. Stæðaæði er verkefni sem Samtök um bíllausan lífstíl standa fyrir í samvinnu við Reykjavíkurborg um að nýta bílastæðin undir allt annað en bíla.Lesa meira
13.09.2011

Ertu 18 ára eða eldri?

Viltu leggja þitt af mörkum, auka við reynslu þína og kynnast um leið skemmtilegum krökkum?Lesa meira
12.09.2011

OrðUm Reykjavík

Reykjavík er full af orðum og sögum fólksins sem í henni býr. Í samvinnu við Urb.is vill Bókmenntaborgin Reykjavík fanga þessi orð með því að safna sögum borgarbúa á þennan vef. Lesa meira
12.09.2011

Viltu losna við sektir?

Frá og með 12. september sendir Borgarbókasafn út áminningarbréf um skiladag til þeirra sem eru með netfangið sitt skráð.Lesa meira
09.09.2011

„Hún er að fara á ball“

Bókmenntaganga með íslenskum rithöfundum laugardaginn 10. september. Lagt af stað frá Grófarhúsi kl. 20.00. Allir velkomnir!Lesa meira
09.09.2011

OrðUm Reykjavík

Reykjavík er full af orðum og sögum fólks sem í henni býr. Föngum þessi orð og sögur í ritsmiðjum Borgarbókasafns laugardaginn 10. september! Allir velkomnir.Lesa meira
07.09.2011

Rafrænar bókmenntagöngur Borgarbókasafns ræstar

Þann 7. september ræsti borgarstjóri rafrænar bókmenntagöngur Borgarbókasafns á vefnum Borgargöngur.is.Lesa meira
05.09.2011

Bókmenntaborgin, Bókmenntahátíð og Borgarbókasafn

Það verður mikið um að vera í vikunni. Bókmenntaborgin Reykjavík tekur virkan þátt í Bókmenntahátíð, sem sett er miðvikudaginn 7. september og spilar Borgarbókasafnið þar stórt hlutverk. Lesa meira
05.09.2011

Til hamingju Kristín Arngrímsdóttir!

Bókin Arngrímur apaskott og hrafninn eftir Kristínu Arngrímsdóttur, starfsmanns Borgarbókasafns, er ein þeirra bóka sem valin hefur verið á Heiðurslista alþjóðlegu IBBY samtakanna. Lesa meira
05.09.2011

Borgarstjóri í opinberri heimsókn

Borgarstjórinn okkar, Jón Gnarr, heimsótti stofnanir Menningar- og ferðamálsviðs síðastliðinn föstudag ásamt aðstoðarmanni sínum, Birni Blöndal.Lesa meira
02.09.2011

Ég skrifa á brennheitu hrauni...

Miðvikudaginn 7. september kl. 17:00 var sýning um ævi og ritverk fransk-úkraínsku skáldkonunnar Irène Némirovsky (1903-1942) opnuð í Borgarbókasafninu, Tryggvagötu 15. Yfirskrift sýningarinnar er „Ég skrifa á brennheitu hrauni...“ Lesa meira
02.09.2011

Söguhringur kvenna byrjar á sunnudaginn

Fyrsti Söguhringur kvenna verður sunnudaginn 4. september kl. 14. Allar konur velkomnar!Lesa meira
01.09.2011

Borgarbókasafn fær góða gjöf

Enski listamaðurinn, Sylvia Hikins, færði Borgarbókasafni málverk að gjöf í dag. Málverkið nefnir hún "The Punishment of Katla" og er gerð þess tengd þjóðsögunni um Kötlu.Lesa meira
30.08.2011

Vetratími hefst 1. september

Vetrartími Borgarbókasafns gengur í garð fimmtudaginn 1. september. Opið verður lengur á virkum dögum og aftur verður opið um helgar í söfnunum.Lesa meira
29.08.2011

Vetrarstarfið að fara í gang

Nú er vetrarstarfið óðum að fara í gang í Borgarbókasafni. Fjölskyldumorgnar, sunnudagar eru barnadagar pg Söguhringur kvenna eru meðal þess sem byrja á næstu dögum.Lesa meira
29.08.2011

Útlánstími bóka aftur í 30 daga!

Það eru sjálfsagt margir sem gleðjast yfir því að nú er útlánstími bóka aftur kominn í 30 daga! Lesa meira
25.08.2011

Frá uppskeruhátíð sumarlestursins á Foldasafni

Sumarlesturinn á Foldasafni gekk vonum framar í ár en um helmingi meiri þátttaka var í ár en í fyrra. Við á Foldasafni vorum mjög ánægð að sjá hvað það komu margir krakkar að ná sér í lesefni í sumar. Af því tilefni slógum við upp veglegri uppskeruhátíð þar sem 10 heppnir krakkar fengu verðlaun við hátíðlega athöfn.Lesa meira
18.08.2011

Ánægður þátttakandi í bókmenntagöngu

Borgarbókasafni barst indæll tölvupóstur frá konu sem tók þátt í bókmenntagöngu sem safnið býður upp á vikulega á ensku fyrir ferðamenn og aðra. Lesa meira
12.08.2011

Nú uppfærum við!

Dagana 15. - 17. ágúst verður gagnagrunnurinn Gegnir lokaður vegna kerfisuppfærslu. Lesa meira
10.08.2011

Sögubíllinn og Sóla í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Fimmtudaginn 11. ágúst verður sögubíllinn Æringi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Sóla sögukona kemur og segir börnum og fullorðnum sögur og leyfir börnunum að koma í bílinn.Lesa meira
08.08.2011

„Þessi ör fíni halli“ - síðasta Kvosarganga sumarsins

Næstkomandi fimmtudag, 11. ágúst kl. 20 munu Minjasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafn og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir sameiginlegri kvöldgöngu um Laugaveginn og nágrenni. Lesa meira
08.08.2011

Uppskeruhátíð sumarlestursins á Foldasafni

Fimmtudaginn 18. ágúst, á afmæli Reykjavíkurborgar, mun Foldasafn halda uppskeruhátíð sumarlestursins. Hátíðin verður frá 16-17. Lesa meira
08.08.2011

Ensku göngurnar slá í gegn

Á fimmtudögum kl. 17 býður Borgarbókasafn upp á bókmenntagöngur á ensku fyrir ferðamenn og fleiri. Göngurnar njóta sífellt meiri vinsælda og mættu t.a.m. 40 manns í síðustu göngu!Lesa meira
08.08.2011

Reykjavík útnefnd Bókmenntaborg UNESCO

Reykjavíkurborg hefur verið útnefnd ein af Bókmenntaborgum UNESCO. Tilkynning þess efnis barst borgarstjóra og Menningar- og ferðamálasviði borgarinnar í gær, þann 4. ágúst 2011. Lesa meira
08.08.2011

Níutíu manns í bókmenntagöngu!

Um níutíu manns mættu í kvöldgöngu úr Kvosinni síðastliðinn fimmtudag, 4. ágúst en gangan var í umsjón Borgarbókasafns.Lesa meira
02.08.2011

Reykjavík bókmenntanna

Fimmtudagskvöldið 4. ágúst kl. 20 býður Borgarbókasafn til kvöldgöngu þar sem Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur rekur slóð bókmennta í miðbænum og bendir á mismunandi birtingarmyndir borgarinnar í skálskap af ýmsum toga og frá ólíkum tímum. Lesarar með henni verða Einar Ólafsson og Sunna Björk Þórarinsdóttir. Lesa meira
28.07.2011

Opnunartími um verslunarmannahelgi

Öll söfn Borgarbókasafns verða lokuð sunnudag 31. júlí og mánudag 1. ágúst. Kringlusafn og aðalsafn, Tryggvagötu, verða opin frá 13-17 laugardaginn 30. júlí.Lesa meira
12.07.2011

Kátir eru krakkar

Fimmtudagskvöldið 14. júlí kl. 20 býður safnið til bókmenntagöngu í miðborginni fyrir alla fjölskylduna. Rithöfundarnir Þórarinn Leifsson og Margrét Örnólfsdóttir mæta og einnig verða bækur fleiri vinsælla höfunda kynntar á söguslóðum sínum. Lesa meira
07.07.2011

Bókmenntagöngur á ensku alla fimmtudaga

Borgarbókasafnið stendur fyrir miðborgargöngum á ensku kl. 17 alla fimmtudaga í júlí og ágúst. Markmiðið er að kynna íslenskar bókmenntir fyrir ferðamönnum og öðrum áhugasömum á lifandi og skemmtilegan hátt og um leið brot úr sögu Reykjavikur. Lesa meira
27.06.2011

Grænar og góðar nú líka í Ársafni

Nú hefur Ársafn bæst í hóp þeirra útibúa sem bjóða upp á „grænar og góðar″ bækur og fást þær nú í öllum söfnum Borgarbókasafns. Lesa meira
27.06.2011

Maddama, kerling, fröken, frú

Næsta Kvosarganga er fimmtudaginn 30. júní og er hún í umsjón Minjasafns Reykjavíkur.Lesa meira
23.06.2011

Björk bókavera í Fjölskyldu- og húsdýragerðinum

Björk bókavera verður í Sögubílnum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn föstudaginn 24. júní og segir sögur af Jónsmessunni.Lesa meira
23.06.2011

Útilistaverk við Sæbraut í Kvosargöngu

Í Kvosargöngunni fimmtudaginn 23. júní leiðir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, göngu um strandlengjuna og ræðir ýmis listaverk sem bera þar fyrir sjónir.Lesa meira
22.06.2011

Yrsa Sigurðardóttir hlýtur Blóðdropann

Íslensku glæpasagnaverðlaunin, Blóðdropinn, voru afhent í aðalsafni Borgarbókasafns síðdegis í gær. Þau féllu í skaut Yrsu Sigurðardóttur, fyrir spennu- og hryllingssöguna Ég man þig.Lesa meira
21.06.2011

Ritsmiðjan í Gerðubergssafni 7. – 10. Júní 2011

28 börn á aldrinum 8 til 12 ára tóku þátt í ritsmiðjunni í Gerðubergssafni í ár. Gerður Kristný rithöfundur leiðbeindi börnunum og voru þau mjög sátt við að hafa alvöru rithöfund til aðstoðar.Lesa meira
15.06.2011

Jón Sigurðsson og Reykjavík í Kvosargöngu

Önnur Kvosarganga sumarsins er fimmtudaginn 16. júní og er hún í boði Minjasafns Reykjavíkur. Lesa meira
15.06.2011

Nú skönnum við!

Nú er boðið upp á skönnun á ljósmyndum, skjölum og öðrum gögnum í aðalsafni gegn vægu gjaldi. Skanninn er staðsettur á 1. hæð hjá húsverðinum.Lesa meira
10.06.2011

Afgreiðslutími um hvítasunnuhelgina

Opið verður í aðalsafni og Kringlusafni frá kl. 13 - 17 laugardaginn 11. júní. Lokað verður í öllum söfnum á hvítasunnudag, 12. júní og annan í hvítasunnu 13. júní. Lesa meira
09.06.2011

Fyrsta Kvosarganga sumarsins

Fyrsta Kvosarganga sumarsins verður fimmtudaginn 9. júní kl. 20. Gangan er í boði Ljósmyndasafns Reykjavíkur.Lesa meira
07.06.2011

Sumarlestur hafinn í öllum deildum Borgarbókasafns

Í sumar geta börn tekið þátt í sumarlestri í öllum deildum Borgarbókasafns. Tilgangurinn er að hvetja börn til að lesa yfir sumarið og viðhalda þannig þeirri lestrarfærni sem þau hafa þegar öðlast í skólanum.Lesa meira
03.06.2011

Ástralskur sagnamaður í aðalsafni

Þriðjudaginn 31. maí mætti ástralski sagnamaðurinn Glenn B. Swift í aðalsafn Borgarbókasafns og sagði yfir 70 nemendum í 4. bekk í Melaskóla sögur.Lesa meira
30.05.2011

MENNINGARKORT REYKJAVÍKUR – Tilboð 2fyrir1!

Menningarkortin eru á tilboði til 17. júní. Ekki missa af þessu góða tækifæri. Menningarkortið veitir ótakmarkaðan aðgang að sýningum, bókum, fróðleik og mörgu fleira. Lesa meira
27.05.2011

Alex Cross´s Trial

Þorkell Már Ingólfsson, bókavörður í Ársafni, er mikill aðdáandi James Patterson og skrifar hér um bækur hans. Lesa meira
26.05.2011

Þorgrímur Þráinsson í verðlaun

Miðvikudaginn 25. maí var Þorgrímur Þráinsson „afhentur“ Laufeyju Lín Bing Jónsdóttur.Lesa meira


    Bókmenntir.is
    Rafræna hillan
    Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



    Skipta um leturst�r�