Vefsíða Borgarbókasafns

Fréttalisti

19.12.2012

Gítartónleikar í Ársafni

Nemendur frá gítardeild Tónskóla Sigursveins verða á fimmtudaginn kemur í Ársafni.Lesa meira
18.12.2012

Gjaldskrá Borgarbókasafns hækkar 1. janúar 2013

Gjaldskrá Borgarbókasafns hækkar frá og með 1. janúar 2013.Lesa meira
12.12.2012

Sóla skemmtir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Sóla sögukona skemmtir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á aðventunni. Hún segir börnunum sögur af sjálfri sér, jólasveinunum og jólakettinum, sem er víst lokaður inni í garðinum.Lesa meira
11.12.2012

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna

Kynntar verða tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, í aðalsafni, Tryggvagötu 15, miðvikudaginn 12. desember kl. 17.Lesa meira
11.12.2012

Skráning í Ljóðaslamm 2013 stendur yfir

Ljóðaslamm Borgarbókasafns verður haldið í sjötta sinn föstudaginn 8. febrúar næstkomandi. Skráning er hafin og stendur til loka janúar.Lesa meira
11.12.2012

Lokað í söfnum Borgarbókasafns frá kl. 14 þriðjudaginn 11. desember

Öll söfn Borgarbókasafns verða lokuð frá kl. 14 þriðjudaginn 11. desember vegna jarðarfarar Önnu Torfadóttur, fyrrverandi borgarbókavarðar.Lesa meira
06.12.2012

Jólasöngvar, jólaglögg og jólahraðstefnumót í Café Lingua

Jólin nálgast og því verður hátíðarstemmning í Café Lingua. Boðið verður upp á jólaglögg, kaffi og piparkökur, hraðstefnumót og jólasöngva. Á hraðstefnumóti er hægt að kynnast nokkrum tungumálum á örfáum mínútum. Lesa meira
05.12.2012

Lennondagar í Kamesi Borgarbókasafns

Nú standa yfir Lennondagar í Kamesi Borgarbókasafns, í aðalsafni og dagana 6.-8. desember verða sýndar þrjár kvikmyndir sem fjalla um Lennon. Myndirnar eru allar sýndar kl. 15. Lesa meira
04.12.2012

Andlát

Anna Kristjana Torfadóttir, fyrrverandi borgarbókavörður, lést 30. nóvember síðastliðinn á sextugasta og fjórða aldursári.Lesa meira
30.11.2012

Sögustund og föndur í aðalsafni sunnudaginn 2. desember

Sunnudaginn 2. desember kl. 15 verður sögustund í aðalsafni.. Eva Þengilsdóttir les upp úr bók sinni Gerðu eins og ég - Hvati og dýrin. Lesa meira
28.11.2012

Sendu kveðju inn í framtíðina!

Nú er í útstillingu í tón- og mynddeild aðalsafns eitt af nokkrum minningarhylkjum um John Lennon sem gert var 9. október 2010. Lesa meira
27.11.2012

Friðsamleg dansgleði í Viðey, laugardag 1. desember kl. 14

Fátt er betur til þess fallið að sameina kynslóðir og fólk af ólíku þjóðerni en dans, en það er hugmyndin með fjölmenningarlegum viðburði í Viðey laugardaginn 1. desember þar sem ólíkir dansar verða stúderaðir og stignir.Lesa meira
26.11.2012

Bókmenntakaffi í Gerðubergi miðvikudaginn 28. nóvember

Miðvikudaginn 28. nóvember kl. 20 fjallar Jón Björnsson og gestir hans um Ólaf Noregskonung Haraldsson, trúboða, ferðalang, víking, hrotta og dýrling.Lesa meira
22.11.2012

Búningadagur í Gerðubergi og Bjartur í aðalsafni

Laugardagar og sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergssafni. Laugardaginn 24. nóvember verður búningadagur í Gerðubergssafni.Lesa meira
22.11.2012

Café Lingua - lifandi tungumál í aðalsafni

Viltu skerpa á tungumálakunnáttu þinni, miðla íslenskukunnáttu og um leið kynnast nýjum tungumála- og menningarheimum? Finna einhvern til að spjalla við á þínu móðurmáli? Lesa meira
15.11.2012

Bjartur á Borgarbókasafninu

Bókaforlagið Bjartur býður til upplestrar fyrir börn og fullorðna á aðalsafni , Tryggvagötu 15. Lesa meira
14.11.2012

„Doula“ á fjölskyldumorgni í aðalsafni

Soffía Bæringsdóttir, doula og burðarpokasérfræðingur, heimsækir fjölskyldumorgna í aðalsafni fimmtudaginn 15. nóvember kl. 10:45. Lesa meira
13.11.2012

Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember

Að vanda er degi íslenskrar tungu fagnað í söfnum Borgarbókasafns. Söngur, dagbókarbrot, limrur og „opinn hljóðnemi“ er meðal þess sem er á dagskrá.Lesa meira
12.11.2012

Breiðholtsdagar í Gerðubergssafni

Í tilefni Breiðholtsdaga 15. - 18. nóvember býður Borgarbókasafnið í Gerðubergi upp á fjölbreytta dagskrá.Lesa meira
05.11.2012

Tékkneskar bækur í Borgarbókasafni

Tékkneska á Íslandi (TÉKÍS) gefur Borgarbókasafni Reykjavíkur 100 bækur á tékknesku. Lesa meira
30.10.2012

Lokað í öllum söfnum Borgarbókasafns 2. nóvember

Lokað verður í öllum söfnum Borgarbókasafns föstudaginn 2. nóvember vegna starfsdags starfsmanna.Lesa meira
26.10.2012

Lestrarmaraþon framhaldsskólanema

Hátt í 200 framhaldsskólanemar tóku þátt í lestrarmaraþoni sem fór fram í Borgarbókasafninu í dag frá kl. 9 til 21.Lesa meira
25.10.2012

Pub-quiz í Iðu fimmtudaginn 25. október kl. 20

Fimmtudaginn 25. október kl. 20 stendur bókaverslunin Iða, í samvinnu við Borgarbókasafn og Bókmenntaborgina, fyrir fyrsta pub-quiz kvöldinu á kaffihúsinu Mezzo á 2. hæð Iðu í Lækjargötu. Lesa meira
23.10.2012

Fagurhvumsa, yndælingur, gjemla og lafbuxi

Að búa til ný orð yfir orðin „kona“ og „unglingur“ var meðal þess sem nemendur Haga- og Hlíðaskóla gerðu undir handleiðslu Davíðs Stefánssonar, ljóðsskálds, föstudaginn 12. október.Lesa meira
17.10.2012

Gaman saman í tvö ár

Mikill fagnaður var hjá pólskum fjölskyldum í leikskólanum Garðaborg á dögunum þegar haldið var upp á tveggja ára afmæli verkefnisins Gaman saman. Lesa meira
15.10.2012

Vesturbæjarlestur á Lestrarhátíð

Í tilefni Lestrarhátíðar í Reykjavík standa grunn- og leikskólar í Vesturbænum og Borgarbókasafn fyrir Vesturbæjarlestri dagana 15., 16. og 17. október.Lesa meira
08.10.2012

Um hvað verður kosið 20. október - kynning í aðalsafni

Kynning verður í aðalsafni í dag, 8. október, kl. 17.15 á þeim spurningum sem kosið verður um þann 20. október vegna frumvarps um nýja stjórnarskrá.Lesa meira
04.10.2012

Vögguvísur í Söguhring kvenna

Söguhringur kvenna heldur mánaðarlegan fund sinn sunnudaginn 7. október kl. 14. Í tilefni Lestrarhátíðarinnar, sem Reykjavík Bókmenntaborg Unesco stendur fyrir, verða vögguvísur héðan og þaðan úr heiminum teknar fyrir, ræddar og jafnvel sungnar. Lesa meira
03.10.2012

Sögustaðir og skáld - síðustu sýningardagar

Nú stendur yfir sýningin „Sögustaðir og skáld: Frönsk menningararfleifð í túlkun rithöfunda" í aðalsafni Borgarbókasafns.Lesa meira
03.10.2012

Borgarbókasafn og Lestrarhátíð

Í október stendur Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir lestrarhátíð í Reykjavík. Borgarbókasafn tekur virkan þátt í Lestrarhátíðinni með ýmsum hætti. Lesa meira
02.10.2012

Setning geðheilbrigðisviku í aðalsafni

Geðheilbrigðisvika verður sett í aðalsafni, Tryggvagötu 15, fimmtudaginn 4. október kl. 12.15-13. Allir velkomnir!Lesa meira
01.10.2012

Orðið er frjálst - lestrarhátíð sett í Reykjavík

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, setti Lestrarhátíð í Reykjavík í aðalsafni Borgarbókasafns í dag, 1. október. Lesa meira
28.09.2012

Syrpa stuttmynda í Kamesinu

Nú stendur yfir sýning á syrpu stuttmynda í Kamesinu í aðalsafni. Sýningin er í tengslum við RIFF, Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. Lesa meira
24.09.2012

Flaggað á níu tungumálum á heimasíðu Borgarbókasafns!

Nú hafa nokkrir fánar bæst við á heimasíðu Borgarbókasafnsins. Á bak við fánana leynist texti og og lifandi kynningarmyndband um starfsemi safnsins á níu tungumálum.Lesa meira
19.09.2012

Borgarbókasafn á Stæðaæði

Borgarbókasafn tekur þátt í Stæðaæði föstudaginn 21. september milli kl. 15 og 18. Lesa meira
18.09.2012

Colorful Rights – alþjóðleg teiknisamkeppni

Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og næsta sunnudag verður boðið upp á teiknismiðju fyrir börn á aldrinum 3-14 ára. Afrakstur smiðjunnar verður sendur í alþjóðlegu teiknisamkeppnina Colorful Rights.Lesa meira
17.09.2012

Um 900 nemendur í heimsókn á Borgarbókasafn

Um 900 nemendur af höfuðborgarsvæðinu og frá Vestmannaeyjum komu að sjá ljósmynda- og heimildasýningu um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma og Nagasaki sem var á Borgarbókasafni frá því í byrjun ágúst til 13. september.Lesa meira
14.09.2012

Laugardagar og sunnudagar eru barnadagar

Laugardagar og sunnudagar eru barnadagar í Borgarbókasafni. Í Gerðubergi verður boðið upp á búningadag laugardaginn 15. september og sunnudaginn 16. september verður dans, söngur og origami í aðalsafni.Lesa meira
10.09.2012

Lesum blöðin saman!

„Lesum blöðin saman“ er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í aðalsafni Borgarbókasafns og felst í því að starfsmaður bókasafnsins aðstoðar þátttakendur við að fara yfir helstu fréttir og bendir á það sem er í brennidepli hverju sinni.Lesa meira
10.09.2012

Matur út í mýri

Alþjóðleg barnabókmenntahátíðin Mýrin hefst laugardaginn 15. september í Norræna húsinu. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Matur út í mýri"Lesa meira
07.09.2012

Vinningshafi sumarlestursins

Miðvikudaginn 5. september var dregið úr nöfnum allra þeirra sem tóku þátt í sumarlestri Borgarbókasafns og Reykjavíkur Bókmenntaborgar Unesco. Lesa meira
06.09.2012

Sóla, Æringi og bókmenntatónleikar

Í tilefni 25 ára afmælis Kringlunnar býður Kringlusafn upp á dagskrá laugardaginn 8. september. Lesa meira
05.09.2012

Leshringirnir farnir af stað

Leshringir Borgarbókasafns eru farnir af stað eftir sumarfríið. Þeir verða þrír í vetur, glæpasögur og gamalt og gott í aðalsafni og „konu- og karlabækur“ í Ársafni.Lesa meira
05.09.2012

Fjölskyldumorgnar í aðalsafni

Fyrsti fjölskyldumorgun vetrarins í aðalsafni er fimmtudaginn 6. september. Samverustund fyrir þau yngstu og fjölskyldur þeirra verður alla fimmtudaga í vetur milli 10:30 og 11:30. Lesa meira
05.09.2012

Ljósmyndasýning í Kamesinu

Föstudaginn 7. september verður opnuð ljósmyndasýningin „Litið í kringum mig“ í Kamesinu á 5. hæð aðalsafns með myndum eftir Björn Ágúst Magnússon háskólanema. Lesa meira
04.09.2012

Teiknismiðja í Gerðubergssafni

Sunnudaginn 9. september kl. 13 heimsækir litháiski listamaðurinn Kęstutis Kasparavivius Gerðubergssafn. Lesa meira
04.09.2012

Blómalisthefðin Ikenobo, fyrirlestur og smiðja

Laugardaginn 8. september kl. 13.00 mun Yuki Ikenobo, einn þekktasti blómaskreytingameistari Japan, flytja opinn fyrirlestur um blómalisthefðina Ikenobo sem er 550 ára gamalt afbrigði af Ikebana aldagamalli blómaskreytingahefð Japana .Lesa meira
04.09.2012

Nýr borgarbókavörður tekur við

Mánudaginn 3. september tók Pálína Magnúsdóttir við stöðu borgarbókavarðar.Lesa meira
31.08.2012

Mazen Maarouf á Borgarbókasafni

Fimmtudaginn 6. september kl. 17 mun rithöfundurinn Sjón ræða við rithöfundinn Mazen Maarouf um höfundaferil og verk hans. Ljóð eftir Mazen verða einnig lesin á arabísku og í íslenskri þýðingu. Lesa meira
30.08.2012

Söfn Borgarbókasafns opna kl. 11 mánudaginn 3. september

Mánudaginn 3. september mun Pálína Magnúsdóttir taka við stöðu borgarbókavarðar. Af því tilefni opna söfn Borgarbókasafns kl. 11 í stað kl. 10.Lesa meira
24.08.2012

Ekki senda okkur tölvupóst!

Nú er verið að taka upp nýtt tölvupóstforrit hjá flestum stofnunum Reykjavíkurborgar. Það gengur bara ljómandi vel að því frátöldu að aðeins er hægt senda tölvupóst á einstaka starfsmenn en ekki á almenn netföng safnsins.Lesa meira
21.08.2012

Hvað gerir heimili að heimili?

Söguhringur kvenna stóð fyrir dagskrá í Hafnarhúsinu á Menningarnótt þar sem spurningum eins og „hvað gerir heimili að heimili?“ og „hvað gerir heimaland að heimalandi?“ var velt upp.Lesa meira
20.08.2012

Fjölmenni í Borgarbókasafninu á Menningarnótt

Það var margt um manninn á Menningarnótt í Borgarbókasafninu enda lék veðrið við menningarþyrsta gesti borgarinnar.Lesa meira
20.08.2012

Verðlaunahafi vikunnar í sumarlestri Borgarbókasafns

Verðlaunahafi sumarlestursins í síðustu viku var Melkorka Fanný Kristófersdóttir, 10 ára. Hún fékk að launum bókina Ríólítreglan eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttir frá Forlaginu. Lesa meira
17.08.2012

Japönsk menning á Menningarnótt

Japönsk menning verður áberandi í Borgarbókasafninu á Menningarnótt. Grænt teboð, sögustund og Origami-leiðsögn er meðal þess sem boðið verður upp á.Lesa meira
15.08.2012

Uppskeruhátíð sumarlestursins á Foldasafni

Þriðjudaginn 21. ágúst milli kl. 16 og 17 verður uppskeruhátíð sumarlestursins á Foldasafni.Lesa meira
14.08.2012

Borgarbókasafn á Menningarnótt

Borgarbókasafnið verður sem fyrr með fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á Menningarnótt.Lesa meira
10.08.2012

Umræða um hinsegin bókmenntir í aðalsafni

Hópurinn Hallongrottans vänner frá Svíþjóð hefur ferðast milli Hinsegin hátíða á Norðurlöndum til að vekja athygli á hinsegin bókmenntum og nú er röðin komin að Reykjavík. Þau eru hingað komin í tilefni Hinsegin daga og verða í aðalsafni Borgarbókasafns föstudaginn 10. ágúst kl. 15:30. Lesa meira
09.08.2012

Verðlaunahafi vikunnar í sumarlestrinum

Verðlaunahafi sumarlestursins í síðustu viku var Gylfi Hugi Harðarson, 8 ára. Lesa meira
09.08.2012

Marilyn og Greta - sýning á teikningum Kristínar Ómarsdóttur

Nú stendur yfir sýning á teikningum Kristínar Ómarsdóttur af Marilyn Monroe og Gretu Garbo í aðalsafni.Lesa meira
30.07.2012

Bókaormur vikunnar

Einn heppinn lestrarhestur er dreginn út í sumarlestursleiknum okkar í hverri viku. Bókaormur vikunnar að þessu sinni er Haukur Óli, 4 ára.Lesa meira
30.07.2012

Ritsmiðja í aðalsafni

Boðið verður upp á ritsmiðju fyrir 8-12 ára verður í aðalsafni dagana 13.-17. ágúst. Í ritsmiðjunni er lögð áhersla á skapandi skrif barnanna sjálfra. Þátttaka er ókeypis.Lesa meira
27.07.2012

Ólympíuleikarnir í London

Í Kamesinu verður sýnt frá leikunumLesa meira
23.07.2012

Verðlaunahafi vikunnar í sumarlestrinum

Verðlaunahafi sumarlestursins í síðustu viku var Aþena Mist, 7 ára. Hún fékk að launum bókina Dagbók Ólafíu Arndísar eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur frá Forlaginu. Lesa meira
23.07.2012

Hvað viltu lesa næst?

Á Facebook-síðu Borgarbókasafnsins getur þú fengið hugmyndir að lesefni sem tengist hinum ýmsu þemum.Lesa meira
16.07.2012

Leshringur fer á kreik

Þær Sunna og Saga voru með leshring fyrir 12-14 ára börn í Borgarbókasafninu núna í júlí. Krakkarnir lásu bækur, spjölluðu um þær, fengu rithöfunda í heimsókn og fóru í bókmenntagöngu.Lesa meira
11.07.2012

Sögubíllinn Æringi heimsækir Akranes

Sóla og Æringi brugðu sér bæjarleið til Akraness að segja söguþyrstum börnum sögur. Það var auðvitað sól og blíða eins og alltaf þegar Sóla mætir á bæjarhátíðir. Lesa meira
10.07.2012

Bókmenntaganga á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 12. júlí verður Borgarbókasafnið með kvöldgöngu sem ber heitið „Fyrir ofan garð og neðan“.Lesa meira
06.07.2012

Heimsókn frá Rökkurhæðum

Þær Birgitta Elín og Marta Hlín, höfundar bókaflokksins um Rökkurhæðir, ætla að koma í Aðalsafnið mánudaginn 9. júlí kl. 10 og spjalla við krakka um Rökkurhæðabækurnar.Lesa meira
05.07.2012

Ísland er kona – pólsk heimildamynd um hjólaferð um Ísland

Sumarið 2010 fór pólverjinn Piotr Mitko í sex vikna hjólaferð um Ísland. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi en nú er Piotr kominn aftur til landsins með hjólið og heimildamynd um síðustu ferð í farteskinu.Lesa meira
29.06.2012

Reykjavík Safari - kvöldgangan fimmtudaginn 5. júlí

Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og skemmtilegu staðirnir eru? Hvað er ókeypis? Hvað gerist um helgar? Hvað er fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna? Veldu um leiðsögn á spænsku, ensku, pólsku, tælensku og litháísku. Lesa meira
29.06.2012

Bækur um París - umfjöllun á Facebook

Ertu á leið til Parísar eða áttu góðar minningar þaðan? Kíktu þá á Facebooksíðuna okkar. Elsa Guðmundsdóttir bendir á og fjallar um skáldsögur sem gerast í París.Lesa meira
27.06.2012

Kvöldgangan 28. júní

Fimmtudaginn 28. júní kl. 20 verður ljósmyndaganga um gömlu höfnina í fylgd með starfsmönnum Ljósmyndasafnsins. Þróunarsaga hafnarinnar verður rakin með hjálp gamalla ljósmynda. Lesa meira
25.06.2012

Pálína Magnúsdóttir nýr borgarbókavörður

Pálína Magnúsdóttir, bæjarbókavörður á Seltjarnarnesi, hefur verið ráðin í embætti borgarbókavarðar í Reykjavík. Lesa meira
25.06.2012

Fyrsti verðlaunahafi sumarlesturs Borgarbókasafns

Fyrsti verðlaunahafi sumarlestursins er Muhammed Faisal Ólafsson. Lesa meira
25.06.2012

Reykjavík Criminally

Í júlí og ágúst býður Borgarbókasafn upp á glæpasagnagöngur á ensku alla fimmtudaga kl. 17.Lesa meira
22.06.2012

Sigurjón Pálsson hlaut Blóðdropann

Sigurjón Pálsson hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, í ár fyrir skáldsöguna Klæki. Verðlaunin veitir Hið íslenska glæpafélag og er sigurvegarinn valinn af dómnefnd á þess blóðugu snærum. Lesa meira
20.06.2012

Sambandslaust í aðalsafni.

Vinsamlegast athugið að sambandslaust er við aðalsafn, síminn er bilaður.Lesa meira
19.06.2012

Horfðu til himins - kvöldganga 21. júní

Kvöldgangan fimmtudagskvöldið 21. júní er í höndum Minjasafns Reykjavíkur. Athyglinni verður beint upp á við, að ýmsum skreytingum sem prýða hús í miðbænum. Lesa meira
15.06.2012

Blóðdropinn afhentur fimmtudaginn 21. júní

Fimmtudaginn 21. júní verður upplýst hver hlýtur Blóðdropann, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, fyrir bestu glæpasögu ársins 2011. Verðlaunaafhendingin fer fram í aðalsafni, Tryggvagötu 15 og hefst hún kl. 17. Lesa meira
15.06.2012

Svíþjóð - England í háskerpu í Kamesinu í dag

EM er sýnt í háskerpu í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, á opnunartíma safnsins. Í dag hefst útsending kl. 15.30 með EM-stofunni og svo tekur leikur Svíþjóðar og Englands við kl. 16.Lesa meira
14.06.2012

Ítalía - Króatía í Kamesinu í dag kl. 16

EM er sýnt í háskerpu í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, á opnunartíma safnsins. Í dag hefst útsending kl. 15.30 með EM-stofunni og svo tekur leikur Ítalíu og Króatíu við kl. 16.Lesa meira
13.06.2012

Danmörk - Portúgal í Kamesinu í dag kl. 16

EM er sýnt í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, á opnunartíma safnsins. Í dag hefst útsending kl. 15.30 með EM-stofunni og svo tekur leikur Danmerkur og Portúgals við kl. 16. Lesa meira
13.06.2012

Segðu það með þangi

Sýning Salóme Fannberg „Segðu það með þangi“ stendur yfir á Reykjavíkurtorgi í aðalsafni, Tryggvagötu 15. Lesa meira
13.06.2012

Fyrsta kvöldgangan fimmtudaginn 14. júní

Fyrsta kvöldganga menningarstofnana Reykjavíkurborgar verður fimmtudaginn 14. júní og er hún í höndum Listasafns Reykjavíkur. Lesa meira
11.06.2012

Danmörk - Portúgal í Kamesinu í dag.

EM er sýnt í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, á opnunartíma safnsins. Í dag hefst útsending kl. 15.30 með EM-stofunni og svo tekur leikur Danmerkur og Portúgals við kl. 16. Allir velkomnir.Lesa meira
08.06.2012

EM í knattspyrnu

Sýnt verður frá EM í knattspyrnu í Kamesi Borgarbókasafnsins við Tryggvagötu, alla daga á opnunartíma.Lesa meira
06.06.2012

Sóla með sögunámskeið í Vogaskóla

Sóla sögukona ákvað að kenna nemendum 5. bekkjar í Vogaskóla sögulist í maí jafnframt því sem hún og Björk bókavera fóru í leikskóla og sögðu sögur.Lesa meira
05.06.2012

Leshringur fyrir 12-14 ára

Borgarbókasafn býður upp á leshring fyrir fólk á aldrinum 12-14 ára í aðalsafni, Tryggvagötu 15 og hefst hann í byrjun júlí.Lesa meira
04.06.2012

Andrea J. Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir á fundi í Borgarbókasafni

Miðvikudaginn 6. júní verður síðasti kynningarfundur Borgarbókasafns í fundaröð um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Lesa meira
01.06.2012

Hátíð hafsins og Sjómannadagurinn

Í tilefni Hátíðar hafsins og Sjómannadagsins höfum við stillt út ýmsu efni sem tengist sjómennsku, sjómönnum og sjávarplássum í söfnum Borgarbókasfns.Lesa meira
01.06.2012

Sumarið er komið í Borgarbókasafni

Sumarið er komið í Borgarbókasafni og sumarafgreiðslutíminn tekinn við.Lesa meira
30.05.2012

Kvöldgöngur

Borgarbókasafn, Listasafn, Ljósmyndasafn og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur í sumar eins og undanfarin ár. Kvöldgöngurnar verða á fimmtudagskvöldum kl. 20 og er lagt upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17, nema annað sé tekið fram. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Lesa meira
29.05.2012

Ari Trausti, Hannes og Þóra miðvikudaginn 30. maí

Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Fundirnir verða á miðvikudögum kl. 17.15-18.15 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Lesa meira
24.05.2012

Afgreiðslutími Borgarbókasafns um hvítasunnuna

Opið er í aðalsafni og Kringlusafni laugardaginn 26. maí kl. 13-17. Lokað er í öðrum söfnum. Lokað er í öllum söfnum annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí.Lesa meira
21.05.2012

Svanur Kristjánsson fjallar um forsetaembættið

Borgarbókasafnið efnir til kynningarfunda um forsetaembættið og -frambjóðendur. Á fyrsta fundinum mun Svanur Kristjánsson fjalla um forsetaembættið.Lesa meira
18.05.2012

Sumarlestur 2012

Í sumar verður efnt til sumarlesturs fyrir börn og unglinga í öllum söfnum Borgarbókasafns. Fyrir hverja lesna bók er hægt að bæta geisla með nafni lesandans við sól sem mun skína í söfnunum.Lesa meira
18.05.2012

Björk bókavera með sögustund í Gerðubergssafni

Sunnudaginn 20. maí verður Björk bókavera með sögustund í Gerðubergssafni kl. 14. Allir velkomnir.Lesa meira


    Bókmenntir.is
    Rafræna hillan
    Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



    Skipta um leturst�r�