Fara beint í leiðarkerfi vefsins.
Vefsíða Borgarbókasafns
Fréttalisti
13.08.2010
Kvöldganga í Vogahverfi
Þann 29. júlí síðastliðinn var haldið í bókmenntagöngu frá Sólheimasafni, undir yfirskriftinni „Hús skáldanna“. Í göngunni var staldrað við heimili ýmissa rithöfunda...
26.02.2010
Ást og húmor í Söguhring kvenna
Á konudaginn bauð Söguhringur kvenna uppá notalega stemningu á bókatorgi aðalsafns Borgarbókasafns í Tryggvagötu. Í stað hefðbundins blómvandar spruttu orðablóm á safninu og fræddust gestir um húmor, ást og líf kvenna í ólíkum menningarheimum.
03.11.2009
Tölum saman
Mikið fjölmenni og mikil gleði var á aðalsafni sunnudaginn 1. nóvember þegar eins árs afmæli Söguhrings kvenna var fagnað.
09.09.2009
Sunnudagar eru barnadagar
Nú er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sunnudögum klukkan þrjú í aðalsafni.
09.09.2009
Myndasögusýning og smiðja
Laugardaginn 10. október kl. 15 opnar sýning á þýskum myndasögum í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi. Sérstakur gestur sýningarinnar verður myndasöguhöfundurinn Line Hoven
08.09.2009
Okkur vantar bækur!!!
Viltu losa þig við bækur á erlendum tungumálum sem þú ert búin/n að lesa og fá aðrar í staðinn?
08.09.2009
Fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafni
Þriðjudaginn 15. september fór Borgarbókasafnið af stað með fjölskyldumorgna þar sem fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára er boðið að koma og eiga saman góða samverustund á bókasafninu.
07.09.2009
Lokað í Kringlusafni
Lokað er í Kringlusafni vegna talningar dagana 7.-9. september.
06.08.2009
Lokað í Gerðubergssafni til 17. ágúst
Lokað hefur verið í Gerðubergi undanfarnar tvær vikur og stóð til að opna safnið mánudaginn 10. ágúst.
06.08.2009
Kvöldganga úr Kvosinni í kvöld kl. 20.00
Næstsíðasta skipulagða kvöldgangan úr Kvosinni á þessu sumri er í boði Minjasafns Reykjavíkur.
05.08.2009
Dásamlegur bóksali í Kairó
Almennt er starfsmönnum Borgarbókasafns ekki ráðlagt að taka vinnuna með sér heim og alls ekki í frí.
04.08.2009
Getraun ágústmánaðar
Nú fer hver að verða síðastur til að taka þátt í getraun mánaðarins sem að þessu sinni tengist íslenskum bókmenntum og kvikmyndahetjum í gervi söngelskra kúreka.
04.08.2009
Lausn á getraun júlímánaðar
Í getraun júlímánaðar var spurt um skyld nöfn á alþekktum skúrkum og svörtum sauðum og nöfn þeirra verka sem þeir tengjast.
04.08.2009
Ánægður þátttakandi í bókmenntagöngu
Bókasafninu barst tölvupóstur frá ánægðum ferðamanni sem tók þátt í einni af ensku bókmenntagöngunni sem bókasafnið býður upp á yfir sumartímann.
30.07.2009
Sögubíllinn Æringi á ferðinni um helgina
Æringi verður í Húsdýragarðinum um verslunarmannahelgina og fram í næstu viku.
27.07.2009
Sumarlokun í Gerðubergssafni
Lokað verður í Gerðubergssafni til og með 10. ágúst.
24.07.2009
Bókmenntavefurinn í felum
Bókmenntavefurinn er lokaður eins og er og verður fram yfir helgi.
24.07.2009
Sumarlokun í Ársafni og Kringlusafni
Lokað verður í Ársafni og Kringlusafni þessa viku og næstu.
21.07.2009
Reykjavík safarí - vel heppnuð sameiginleg ganga
Síðastliðinn fimmtudag mættu hátt í sextíu manns í kvöldgöngu í Kvosinni, til að fræðast um miðborgina á pólsku, tælensku, ensku og spænsku.
14.07.2009
Reykjavík safarí
Fimmtudaginn 16. júlí bjóða menningarstofnanir Reykjavíkurborgar til kvöldgöngu úr Kvosinni þar sem menningarlífið í miðborginni verður kynnt á fjórum tungumálum.
10.07.2009
Ævar Örn hlýtur Blóðdropann
Ævar Örn Jósepsson hlaut Blóðdropann í ár, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags.
09.07.2009
Ný lestrardagbók komin í hús
Nú er hægt að nálgast nýja lestrardagbók í öllum útibúum Borgarbókasafns.
30.06.2009
Getraun júlímánaðar
Getraunin tengist að þessu sinni ástardrömum, barna- og unglingabókmenntum, myndasögum, dægurtónlist og vísindamyndum.
30.06.2009
Lausn á getraun júnímánaðar
Í síðustu getraun var spurt um bronslitaða sex feta sögupersónu af enskum aðalsættum, mjóradda íþróttahetju sem túlkaði hana á hvíta tjaldinu og umfjöllun íslenskra skálda um hana.
29.06.2009
Sóla og Æringi á Lækjartorgi
Sóla og sögubíllinn Æringi verða á Lækjartorgi þriðjudaginn 30. júní kl. 12.00-13.00.
29.06.2009
Lokað í Foldasafni og Sólheimasafni
Lokað verður í Foldasafni og Sólheimasafni frá 6. - 19. júlí að báðum dögum meðtöldum. Nú er tækifæri til að birgja sig upp af bókum, tónlist og bíómyndum
26.06.2009
Hundadagar
Næsta kvöldganga úr Kvosinni er á vegum Minjasafns Reykjavíkur fimmtudaginn 2. júlí kl. 20.00
24.06.2009
Ritsmiðjur í Borgarbókasafni
Mikið hefur verið skapað og skrifað í söfnum Borgarbókasafns undanfarnar tvær vikur.
24.06.2009
Reykjavík Literally
Borgarbókasafnið stendur fyrir miðborgargöngum á ensku alla fimmtudaga í júlí og ágúst. Markmiðið með göngunum er að kynna íslenskar bókmenntir fyrir ferðamönnum og öðrum útlendingum
23.06.2009
Kennileitin í Kvosinni
Í hvaða búning hafa skáld og rithöfundar fyrr og nú klætt Esjuna, Austurvöll, Arnarhólinn, umhverfi læksins og fleiri staði í og við miðborgina?
22.06.2009
Sóla og Æringi í Húsdýragarðinum
Núna eru Sóla og sögubíllinn Æringi á leið í Húsdýragarðinn og verða þar með sögustundir sem tengjast dýrum
18.06.2009
Ritsmiðja í aðalsafni 22.-26. júní
Enn er laust í ritsmiðju í aðalsafni vikuna 22.- 26. júní. Ritsmiðjan er ætluð 8-12 ára börnum.
16.06.2009
Fljúgandi teppi í leikskólanum Fellaborg
Í síðustu viku vann leikskólinn Fellaborg að verkefninu Fljúgandi teppi sem er eitt af fjölmenningarlegum verkefnum Borgarbókasafnsins.
16.06.2009
Kvosin brennur - Miðbæjarbrunar í máli og myndum.
Fimmtudaginn 18. júní verður önnur Kvosarganga sumarsins og er hún í umsjón Ljosmyndasafns Reykjavíkur.
12.06.2009
Erlendir gestir í heimsókn
Síðastliðinn mánudag kom stór hópur kvenna sem búsettar eru á hinum Norðurlöndunum í heimsókn á Borgarbókasafn til að kynnast fjölmenningastarfsemi safnsins.
11.06.2009
Ummmmm í söguhring kvenna
Söguhringur kvenna var haldinn sunnudaginn 7. júní. Carmen de Sarabia og María Helena Sarabia frá Kólumbíu elduðu mat frá heimslóðum sínum með dyggri aðstoð viðstaddra.
08.06.2009
Sigurvegarar í myndasögusamkeppni
Þorgrímur Kári Snævarr hlaut sigurverðlaun í myndasögusamkeppni Borgarbókasafns og Myndlistaskólans í Reykjavík.
05.06.2009
Kólumbískur matur í söguhring kvenna!
Næsti söguhringur kvenna verður sunnudaginn 7. júní kl. 14.30. Carmen de Sarabia og María Helena Sarabia frá Kólumbíu munu kenna okkur að elda ljúffenga rétti frá heimaslóðum sínum. Allar konur velkomnar!
04.06.2009
Lausn á getraun maímánaðar
Í síðasta mánuði var spurt um einkaspæjara og tvo rannsóknarlögreglumenn og aðstoðarmenn þeirra.
04.06.2009
Getraun mánaðarins
Nú eru síðustu forvöð að taka þátt í getraun mánaðarins sem að þessu sinni tengist sögupersónu, kvikmyndahetju, íslenskum bókmenntum og Ólympíuleikum:
03.06.2009
Sumarlestur í Borgarbókasafni
Í sumar geta börn tekið þátt í sumarlestri í öllum söfnum Borgarbókasafns.
28.05.2009
Ingvi Þór hlaut Gaddakylfuna
Við á Borgarbókasafninu erum afar stolt af Ingva Þór Kormákssyni, sem tók við Gaddakylfunni, smásagnaverðlaunum Hins íslenska glæpafélags og tímaritsins Mannlífs, úr hendi Geirs Jóns Þórissonar þann 27. maí.
28.05.2009
Sjáðu Húmor og Amor í kringum þig og festu á mynd
Dagana 2. - 5. júní verður ljósmyndafjör fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar í Miðborg/Hlíðum.
26.05.2009
Afgreiðslutími um Hvítasunnuna
Opið verður laugardaginn 30. maí í aðalsafni og Kringlusafni frá kl. 13-17.
22.05.2009
Húmor og amor í fornum ritum
Leiklesin dagskrá á LANDNÁMSSÝNINGUNNI í Aðalstræti sunnudaginn 24. maí kl. 14.00.
20.05.2009
Kvöldgöngur úr Kvosinni
Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum í sumar.
18.05.2009
Ritsmiðjur í Borgarbókasafni
Skráning er hafin í ritsmiðjur sem Borgarbókasafn býður börnum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í.
12.05.2009
Sumartími á Borgarbókasafni
Sumarið er gengið í garð á bókasafninu og þar með einnig sumarafgreiðslutími safnanna.
12.05.2009
Innkaupatillögur
Finnst þér eitthvað vanta á safnið, s.s. ákveðna bók, tónlist, bíómynd eða eitthvað annað?
08.05.2009
Getraun maímánaðar
Getraunin snýst að þessu sinni um glæpasagnapersónur. Bókaverðlaun fyrir rétt svar!
07.05.2009
Lausn á getraun aprílmánaðar
Getraun aprílmánaðar reyndist svolítið snúin því ekkert rétt svar barst.
30.04.2009
Söguhringur kvenna á sunnudag
Næsti Söguhringur kvenna er sunnudaginn 3. maí kl. 15.00-16.30 á aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, 6 hæð!
29.04.2009
Sjálfboðaliðar óskast
Viltu leggja þitt af mörkum, auka reynslu þína og kynnast um leið skemmtilegum krökkum?
28.04.2009
Börn og fullorðir í tungumálakennslu hópast í kynningar á Borgarbókasafni
Á síðustu 10 dögum hefur fólk af erlendum uppruna sem stundar íslenskunám streymt í aðalsafn Borgarbókasafns.
27.04.2009
BUS STOP
Ljósmyndasýningin Bus Stop opnar 28. apríl í aðalsafni Borgarbókasafns Tryggvagötu 15, kl 17.
27.04.2009
Bókaverðlaun barnanna og sólarhátíð
Bókaverðlaun barnanna voru veitt á sólarhátíð á sumardaginn fyrsta í aðalsafni Borgarbókasafns, en verðlaunabækurnar eru valdar af börnum á aldrinum 6-12 ára.
22.04.2009
Vika bókarinnar 21.-26. apríl
Það verður mikið um að vera í viku bókarinnar í Borgarbókasafni; starfsmenn stilla út uppáhaldsbókum, þjóðsögur og ævintýri í brennidepli í Kringlusafni, óséðar bækur til útláns fyrir börn og Sólarhátíð á sumardaginn fyrsta.
22.04.2009
Söngur, þjóðsögur og ævintýri Í Kringlusafni
Í Kringlusafni er vakin athygli á þjóðsögum og ævintýrum í viku bókarinnar sem stendur nú yfir.
08.04.2009
Rausnarleg gjöf frá Goethe stofnun
Áhugamenn um þýsku og þýska tungu og menningu ættu nú að kætast því Borgarbókasafni barst veglegur pakki frá Goethe stofnuninni í Kaupmannahöfn.
07.04.2009
Lausn á getraun marsmánaðar
Í getraun síðasta mánaðar var spurt um snoppufríða kvikmyndaleikara og myndir sem þeir höfðu leikið í.
06.04.2009
Getraun aprílmánaðar
Getraunin snýst að þessu sinni um tónlist og íslenskar bókmenntir. Spurt er um bræður þrjá í skugga ofurfrægra bræðra. Bræðurnir þeir slógu í gegn í þremur af þekktustu böndum Bretlands á sjöunda áratug síðustu aldar.
06.04.2009
Afgreiðslutími um páskana
Öll söfn Borgarbókasafns verða lokuð 9.- 13. apríl að báðum dögum meðtöldum. Verið velkomin á safnið þriðjudaginn 14. apríl.
02.04.2009
Söguhringur kvenna sunnudaginn 5. apríl
Söguhringur kvenna verður sunnudaginn 5. apríl. Yfirskrift söguhringsins að þessu sinni er: Heima/að heiman.
02.04.2009
Sunnudagar eru barnadagar
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og næsta sunnudag, 5. apríl, verður þrjúbíó. Allir velkomnir.
29.03.2009
Sunnudagar er barnadagar
Fullt var út úr dyrum í sögustund í barnadeild aðalsafns sunnudaginn 29. mars. Sigrún Jóna Kristjánsdóttir sagði sögur og notaði brúður til að gera frásögnina lifandi.
29.03.2009
Fljúgandi teppi - menningarmót í Hlíðaskóla
Nemendurnir í 4. bekk í Hlíðaskóla sýndu aldeilis hversu mikið ríkidæmi er í margbreytileika mannslífsins fimmtudaginn 26. mars.
27.03.2009
Vegleg gjöf
Tveir starfsmenn Kínverska sendiráðsins, þau Guo Baoqi og Lei Yunxía færðu Borgarbókasafni höfiðnglega bókagjöf síðastliðinnn miðvikudag, 25. mars.
27.03.2009
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og næsta sunnudag, 29. mars, mun Sigrún Jóna Kristjánsdóttir vera með brúðusögustund.
23.03.2009
Móðurmálskennsla og leikir á Borgarbókasafni
Borgarbókasafn og Tungumálaver Laugalækjarskóla eru nú í samstarfi og er heimsókn á bókasafnið hluti af móðurmálskennslu nemenda.
20.03.2009
Sóla sögukona í Foldasafni
Sóla sögukona heimsækir Foldasafn, laugardaginn 21. mars kl. 15.00 þar sem hún mun bregða á leik, syngja og segja sögur. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
17.03.2009
Fyrirgefðu stytturnar - síðasta sýningarhelgi
Guðjón Ketilsson myndlistarmaður sýnir í Artótekinu. Sýningin nefnist: Fyrirgefðustytturnar.
16.03.2009
Upplestur á Norðurbrún
Deildarstjóri hjá Þjónustumiðstöð aldraðra að Norðurbrún, hafði samband við starfsmenn í Sólheimasafni til að athuga hvort safnið hefði einhvern til að lesa upp fyrir aldraða á Þjónustumiðstöð.
16.03.2009
Getraun mánaðarins
Þá er komið að getraun marsmánaðar sem snýst um kvikmyndir. Um er að ræða þrjá hæfileikaríka kvikmyndaleikara sem allir slógu í gegn í hlutverkum ungra óróaseggja.
16.03.2009
Bókaormaeldi í Gerðubergi
Laugardaginn 21. mars verður ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi.
13.03.2009
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni
Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og sunnudaginn 26. apríl kl. 15.00 verður föndrað undir leiðsögn Kristínar Arngrímsdóttur, myndlistarmanns.
10.03.2009
Skiptibókamarkaður í Gerðubergi
Í Gerðubergssafni hefur verið starfræktur um tíma skiptibókamarkaður á bókum á erlendum tungumálum.
09.03.2009
Áslaug Jónsdóttir las fyrir börnin
Sunnudaginn 8. mars las rithöfundurinn Áslaug Jónsdóttir úr skrímslabókum sínum á aðalsafni og fylgdist fjöldi barna og fullorðinna hugfanginn með.
09.03.2009
Lausn á getraun febrúarmánaðar
Febrúargetraunin var nokkuð snúin því aðeins barst eitt rétt svar. Getraunin tengdist hryllingsmyndum og hljómað svona með réttum svörum:
09.03.2009
Húmor&Amor
Húmor&Amor er verkefni á vegum menningarstofnana Reykjavíkurborgar, Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, Ungmennaráðs Miðborgar og Hlíða, Alþjóðahúss og Hins Hússins.
27.02.2009
Öskudagur í aðalsafni
Á öskudag var straumur barna í aðalsafn. Þau komu til að hvíla sig á göturöltinu og næra sig á afurðum dagsins. Sum komu gagngert til að syngja sem var þegið með þökkum.
26.02.2009
Sýning í Artóteki
Föstudaginn 13. febrúar kl. 17:00 opnaði ljóðskáldið Kristín Svava Tómasdóttir sýningu á listaverkum sem hún valdi úr Artóteki Borgarbókasafns í Grófarhúsi.
26.02.2009
Ársafn fagnar 5 ára afmæli
Á konudaginn, sunnudaginn 22. febrúar, voru 5 ár liðin frá því að Ársafn var formlega opnað.
26.02.2009
Sóla Grýludóttir í Æringja
Sögubíllinn Æringi heldur áfram ferð sinni um borgina og er nú að fara aðra umferð á leikskóla borgarinnar. Nú er það Sóla sem segir sögur.
23.02.2009
Ljóðaslamm 2009
Hér má sjá myndir sem teknar voru á Ljóðaslammi Borgarbókasafnsins á Safnanótt 13. febrúar síðastliðinn.
17.02.2009
Dularfullir atburðir á Borgarbókasafni
Í tilefni af áttræðisafmæli Tinna standa Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlistaskólinn í Reykjavík fyrir myndasögusamkeppni fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára á vormánuðum 2009.
14.02.2009
Sigurvegarar í Ljóðaslammi 2009
Borgarbókasafn Reykjavíkur hélt keppni í ljóðaslammi annað árið í röð á Safnanótt föstudaginn 13. febrúar.
12.02.2009
Bókaverðlaun barnanna
Viltu taka þátt í að velja bestu barnabók liðins árs? Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabækur ársins 2008.
10.02.2009
Áhugasamir gestir í kynningu á aðalsafni
Í morgun komu sex palestínskar konur sem eru í íslenskunámi í Alþjóðahúsinu í kynningu á Borgarbókasafni.
10.02.2009
Brúðuleikhússýning og -smiðja í Gerðubergi
Á heimsdegi barna á Vetrarhátíð verður mikið um að vera í Gerðubergi og býður Borgarbókasafnið upp á brúðuleikhússýningu um Mjallhvíti.
09.02.2009
Heilahristingur í uppsiglingu
Heilahristingur er heimanámsaðstoð fyrir ungmenni af erlendum uppruna í 8. til 10. bekk Fellaskóla og Hólabrekkuskóla og verður starfræktur í Borgarbókasafninu í Gerðubergi á þriðjudögum kl. 15:15 til 16:45.
04.02.2009
Fleiri gestir og meiri útlán
Töluverð aukning var í heimsóknum og útlánum í Borgarbókasafni á síðasta ári miðað við árið 2007.
02.02.2009
Lausn á getraun janúarmánaðar
Viðbrögð við janúargetraun Borgarbókasafnsins voru stórfín og bárust mörg svör sem flest voru rétt.
02.02.2009
Getraun mánaðarins
Þá er komið að getraun febrúarmánaðar. Unnendur hryllingsmynda ættu að kætast að þessu sinni því getraunin tengist þessari gerð kvikmynda.
21.01.2009
Ljóðaslamm á Borgarbókasafni 13. febrúar
Enn er hægt að skrá sig í ljóðaslamm Borgarbókasafnsins en skráningarfrestur hefur verið framlengdur til 31. janúar.
20.01.2009
Sólheimasafn lokað 21. janúar til kl. 16.00
Sólheimasafn verður lokað miðvikudaginn 21. janúar til kl. 16.00 vegna viðgerða. Verið velkomin í safnið klukkan fjögur.
19.01.2009
Sjálfboðaliðar óskast
Sjálfboðaliðar óskast fyrir heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn af erlendum uppruna. Heimanámsaðstoð fyrir nemendur af erlendum uppruna hefst nú í byrjun febrúar.
15.01.2009
Kristín Geirsdóttir í Artótekinu
Sýning á verkum Kristínar Geirsdóttur myndlistarmanns í Artóteki á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 hefur verið framlengd til 8. febrúar.
12.01.2009
Getraun mánaðarins
Borgarbókasafn bryddar upp á þeirri nýbreytni á nýju ári að bjóða upp á mánaðarlega getraun. Dregið verður úr réttum lausnum í lok hvers mánaðar og fær vinningshafinn gjafakort fyrir nýju bókasafnsskírteini eða endurnýjun á því gamla.
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi
Lei�arkerfi vefsins
Afgreiðslutími
Söfn og bílar
Gjaldskrá
Börn&unglingar
Þjónusta
Um safnið
Fl�tilei�ir
Skráðu þig á póstlista
Hafðu samband
Veftré
Skipta um leturst�r�
A-
A+
Tungum�l
Polski version
English version
Icelandic version
Danish version
Spanish version
Lithauen version
French version
Russian version
Thailand version
�� ert h�r
Forsíða
::
Fréttir
::
Fréttir - nánar
Leitarvefur sem býður upp á leitir í fjölbreyttum safnkosti bókasafna og efni valinna sérsafna