Skúli skelfir og uppvakningurinn og Skúli skelfir og íþróttadagurinn eru góð viðbót við allar hinar bækurna um Skúa skelfi.
Fjórða bókin um Kidda klaufa og nú fer hann í sumarfrí með fjölskyldunni.
Dularfullur geisli ferðast um borgina að næturlagi og í kjölfarið gerast einkennilegir hlutir.
Tveimur dögum eftir að skóla lýkur birtist amma Ólafíu Arndísar og býður henni með sér í ferðalag.
Fyrst kom Forngripasafnið, næst Náttúrugripasafnið og nú er komin þriðja sagan um Rúnar og krakkana í Ásgarði í bókinni Listasafnið.
Hver býr í kassa og gleypir mús annan hvern sunnudag?
Hvernig ætli sé að eiga brjálaðan uppfinningamann fyrir föður?
Þetta er engin venjuleg kattasaga heldur saga af skemmtilegu samsæri katta og fleiri dýra þegar tilvist aðalpersónunnar Petru Pott er ógnað.
Hér fara æviminningar hundheppna hamingjudýrsins Gríms Fífils. Hann var fuglaveiðihundur sem veiddi aldrei fugla þótt hann gerði stundum flugu mein.
Sóla og Ylur búa á leynilegastasta landsins,Silfurbæ í Sólarfirði. Þar klifra þau í kristalsfjöllum, svamla í heitum sjó og háma í sig sæhestaaugu.
Akureyri. Höfuðstaður Norðurlands. Stærsta borgin utan Reykjavíkursvæðisins. Vetraríþróttamiðstöð Íslands. Fótboltaparadís. Veðravíti
Vetrarfríið er loksins komið! Bert og hljómsveitin hans, Heman Hunters, eiga að spila á torginu og strákarnir eru á fullu í undirbúningi.
Bert hefur lofað sjálfum sér því, að verða aldrei tölvunörd. Aldrei í lífinu! segir hann. Auk þess er heimilistölvan svo gömul að hún er ekki nothæf á netinu.
Æsispennandi saga um magnaða markverði, volduga varnarnagla, klóka kantmenn, fljóta framherja og makalaus mörk.
Forsetinn ætlar til útlanda! Það á að krýna ný konungshjón og prinsessan, vinkona hans, bauð honum í veisluna. En í höllinni er eitthvað dularfullt á seyði.
Hinn illi Mýrgarður barón ætlar að gæða sér á skrímslum - getur Úlfur komið í veg fyrir hina grimmdarlegu veislu, eða endar hann sjálfur sem gómsætur eftirréttur?
Varúð! Ekki fyrir lúða. Úkk og Glúkk eru svölustu hellisbúar steinaldarinnar. Þeir una glaðir við sitt þegar sóðalegt risafyrirtæki úr framtíðinni ræðst inn í líf þeirra.
Það skiptir öllu máli að koma vel fyrir við fyrstu kynni. Þetta veit Halla vel!
Kolkex, Hermann Súkker og Flugan eru ósköp venjulegar húsflugur sem fáir taka eftir og gera sjaldnast neitt merkilegt.
Bráðfyndin saga og sjálfstætt framhald verðlaunabókarinnar Flateyjarbréfin.
Þegar teningarnir taka völdin er sjálfstætt framhald af bókinni Virkisvörðunum sem út kom árið 2008.
Rúnar er nýfluttur í lítið þorp úti á landi þar sem pabbi hans hefur ráðið sig sem safnstjóra.
Vandamál: Bert fær óvænta heimsókn og neyðist til að flytja inn í klæðaskápinn með tölvuna sína og sofa þar á litlum ferðabedda.
Skólinn er búinn og allir fegnir að komast í frí. Allir nema Ólafía Arndís. Hvað ef hún kemst nú ekki upp í sjötta bekk næsta vetur eins og Arnfríður kennari sagði?
Jói Planki er atvinnulaus sjóræningi í leit að vinnu. Svo virðist sem Jói hafi aldrei verið neitt sérstaklega góður í starfi ræningjans; honum líkaði betur að halda sig um borð og sjóða súpu.
Bert er nýbyrjaður í 7. bekk og þá ræður maður öllu! En samt gengur honum illa að ná athygli Samíru.
Forsetinn hefur fengið góða gesti frá útlöndum: Kóng, drottningu og prinsessu!
Fyrsti skólavetur Nonna og Selmu er á enda og sumarið blasir við. Það var fjör hjá þeim í fyrsta bekk en það verður enn meira fjör í fríinu!
Fjóli Fífils, einkaspæjarinn snjalli, er tilbúinn í nýtt verkefni. Að þessu sinni þarf hann að bjarga sjálfum skólastjóra einkaspæjaraskólans úr klóm ræningja.
Stórsniðug saga um forseta Íslands og þrjá forsetaritara, gröfukarla og hjólabrettastelpu, hundrað ára gamla konu með ýlustrá og fleiri litríkar persónur.
Létt að lesa. Bækurnar um Skúla Skelfi eru með vinsælustu bókunum í Borgarbókasafni og handhafi Bókaverðlauna barnanna 2009. Alls hafa komið út 13 bækur um Skúla.
Bert og félagar hans í hljómsveitinni Heman Hunters vita að rokkstjörnur þurfa fyrst og fremst að hafa geðveika sviðsframkomu og geta skrifað flottar eiginhandaráritanir.
Þessi saga byrjar við friðsæla götu í lítilli borg og endar með rosalegum hvelli.
Lífið í Bakkabæ er algjörlega eins og það á að vera. Tumi hefur reyndar áhyggjur af því að mamma eigi engan mann og Vildís systir hans vildi gjarna að hún ætti svolítið meiri peninga.
Fjórða bókin um hugmyndaríka fjörkálfinn Fíusól.
Hiksti Hryllifantur Hlýri III var mjög athyglisverð hetja á víkingaöld. Stríðshetja, einstaklega vopnfimur og áhugamaður um náttúrufræði.
Sögurnar af Frans eftir Christine Nöstlinger eru ljúfar og hver annarri skemmtilegri.
Um miðjan febrúar, þegar langt er til páska og jólin löngu liðin, gera ellefu ára krakkar næstum hvað sem er til að fá frí í skólanum.
Mamma hafði strax efasemdir um að fyrrum fangi væri rétta barnfóstran fyrir okkur systkinin. Samt gat hún ekki vitað hvernig málin færu!
Enn er Fíasól komin á kreik og hressari en nokkru sinni fyrr.
Bert er kominn aftur, jafn frábær og fyndinn og áður. Með sér hefur hann sína tryggu fylgisveina, hinn síhrædda Litla-Eirík og mikilmennskubrjálæðinginn Áka. Bert og kalda stríðið er fyrsta bókin í nýjum bókaflokki um Bert og vini hans.
Kíktu framan á bókina. Þetta er pabbi minn. Þessi með skeggið. Gaurinn með hattinn er Viddi níkótín rannsóknarlögga.