Hvernig verða börnin til
Hjartagull eftir Dan og Lotta Höjer
Einu sinni var lítil stelpa sem óx í maganum á mömmu sinni, langt í burtu í fjarlægu landi. Það var hlýtt og notalegt í maganum. Barnið dafnaði vel og fékk fingur og tær, neglur og hár. Svo kom að því að hún var tilbúin til að yfirgefa magann. Pabba hennar og mömmu langaði til að eiga litlu stelpuna sjálf en þau voru fátæk og gátu ekki séð fyrir henni. Annars staðar á jörðinni bjuggu maður og kona sem þráður að eignast barn. Dag nokkurn fengu þau að vita að þessi litla stelpa yrði dóttir þeirra. Þau hlógu og grétu í einu og dönsuðu um íbúðina. Og svo undirbjuggu þau allt til að geta ferðast yfir hálfa jörðina og sótt litlu stelpuna, hjartagullið sitt.
Falleg og ljóðræn myndabók um ættleiðingu barns.
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Til baka