Prinsessa í bleiku eftir Meg Cabot

Mía prinsessa á sér einungis eina ósk: Að komast á útskriftarballið með Michael. Því miður bendir fátt til þess að óskin rætist.

Dagbók Kidda klaufa eftir Jeff Kinney

Kiddi er í barnaskóla en hvað getur hann gert? Hér kynnumst við þessum lífsglaða dreng sem er til í allt, þó flest mistakist.

Bókin um allt eftir Guus Kuijer

Verðlaunasaga sem veitir einstaklega skýra sýn á hugsanir og tilfinningar 9 ára drengs í glímu við flókna tilveru.

Þvílík vika eftir Guðmund Brynjólfsson

Þrír vinir eru að ljúka grunnskóla og ætla að fagna því rækilega. En margt getur breyst á einni viku og ýmislegt fer öðruvísi en þeir höfðu ætlað.

Hetjur eftir Kristínu Steinsdóttur

Þórhallur er fluttur með fjölskyldunni til Þrándheims í Noregi. Yfir borginni gnæfir löngu dauður kóngur á súlu – forn hetja. Eða hvað?

Aþena eftir Margréti Örnólfsdóttur

Aþena ætlar að njóta lífsins í sumar en þegar besta vinkonan ræður sig í barnapössun og dularfull skilaboð berast frá ókunnri manneskju taka málin óvænta stefnu.

Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur

Áhrifarík saga um tólf ára stúlku sem þarf að takast á við sáran missi.

Farðu aldrei frá mér eftir Irma Lauridsen

Emelie hittir Chris óvænt eina rigningarnótt þar sem hún liggur á götunni eftir að hafa dottið af hjólinu sínu. Þau verða fljótt óaðskiljanleg.

Edda týnist í eldgosinu eftir Herdísi Egilsdóttur

Sönn spennusaga úr eldgosinu á Heimaey 1973. Þegar íbúarnir flýja með fiskibátum til lands týnir Edda, átta ára, foreldrum sínum.

Svart & hvítt eftir Jónínu Leósdóttur

Að loknu viðburðaríku sumri í Englandi byrjar Anna í framhaldsskóla í Reykjavík. Ýmislegt brýst um í huga hennar eftir Brighton-dvölina en það er þó ekkert á við ringulreiðina sem ríkir í kolli Kötu vinkonu hennar.

Senjorítur með sand í brók eftir Bryndísi Jónu Magnúsdóttur

Í þessari 4. bók Bryndísar Jónu er lesendum boðið með Júlíu og Ástu til Mæjorka. Ferðamottó vinkvennanna er skemmtun og strákaáhyggjuleysi.

Rótleysi, rokk og rómantík eftir Ingibjörgu Reynisdóttur

Um kvöldið þegar Gabríel var inni í herberginu sínu að læra hringdi Teddi. Hann var niðurbrotinn eftir uppákomu helgarinnar.

Rúna - trúnaðarmál eftir Gerði Berndsen

Krissa er þrettán ára og trúir dagbókinni sinni fyrir öllum sínum leyndarmálum. Hún er að byrja í 8.bekk og það skiptir hana miklu máli að falla inn í hópinn.

Maj darling eftir Mats Wahl

Maj var sætasta stelpan í bekknum. Hún fékk alla strákana til að syngja „Oh, my darling"með sérstakri áherslu og innlifun.

Aldrei aftur nörd eftir Thorstein Thomsen

Þegar Álfur mætir aftur í bekkinn sinn eftir nokkurra vikna veikindi er allt breytt. Hann er kominn í botnfallið ásamt Flosa eða Feita eins og hann er kallaður.

Spegill, spegill eftir Cloë Rayban

Justine Duval fer á sýndarveruleikasýningu með hinum trausta og trygga Chuck og festist í víxlveruleika. Allt er þetta frekar annars heims en undarlegast af öllu er að Justine hefur breyst í Jake!

Þegar sálin sér eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur

"Þegar sálin sér" er dulræn saga og kynngi mögnuð. Hún segir frá Auði, stúlkunni sem sá það sem öðrum var hulið.

Emanúel eftir Sören Olsson og Anders Jacobsson

Emanúel er 16 ára og lifir lífinu gegnum myndavélarlinsuna. Hann getur ekki gleymt þessari stelpu. En hvernig á að nálgast slíka fegurðardís ef maður hefur ekkert sjálfstraust?

Leyndardómur ljóssins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur

Fjórir krakkar, þau Tommi, Anna, Harri og Valdís, kynnast í skólabúðum að Reykjum í Hrútafirði. Þar eiga sjöundu-bekkingar frá Reykjavík og Akureyri að dvelja saman í heila víku en strax á fyrsta degi fara undarlegir atburðir að gerast.

Ég er ekki dramadrottning eftir Sif Sigmarsdóttur

Þegar Emblu er tilkynnt að fjölskyldan ætli að flytja til Lundúna ákveður hún strax að grípa til sinna ráða.

Dagbók prinsessu eftir Meg Calbot

Mia er ósköp venjuleg stelpa sem býr í New York með mömmu sinni. Dag einn fær hún þær óvæntu fréttir að faðir hennar sé prins í Genóvíu...

Mánudagar bara einu sinni í viku eftir Iðunni Steinsdóttur

Stundum er haf og himinn milli lífsins í skólanum og heima fyrir og það eru ekki allir sem geta leitað skjóls heima hjá sér eftir taugatrekkjandi skóladag.

Ljót og Lagleg eftir Scott Westerfeld

Tallý hefur verið ljót í mörg ár en eftir örfáar vikur verður hún sextán ára og lagleg eins og besti vinur hennar Peris.

Ef þú bara vissir--- eftir Mörtu Maríu Jónasdóttur og Þóru Sigurðardóttur

Líf Klöru Thoroddsen var fullkomið - eða því sem næst!. Fyrir utan speltsjúka og kaupóða, hormónabrenglaða móður, pabba með sjálfskapaðan athyglisbrest og tvo bræður sem minntu frekar á skæruliða en smábörn, var tilveran bara nokkuð góð ... Þar til allt fór í steik!



Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�