Lífsreynsla 10-15 ára
Maj darling eftir Mats Wahl
Maj var sætasta stelpan í bekknum. Hún fékk alla strákana til að syngja „Oh, my darling"með sérstakri áherslu og innlifun. Í þá daga söng Elvis Presley „Heartbreak Hotel, og stelpurnar bundu hárið í tagl og kenndu strákunum að rokka. Sagan gerist árið örlagaríka er Maj flutti í bæinn og allt breyttist. Harry og Hasse eru bestu vinir hennar og í sumarleyfinu víkja flest önnur áhugamál en hjólreiðatúrar og strandferðir með Maj. Öllum stundum eyða þessir þrír vinir saman, allt þar til daginn sem óveðrið skellur á ...
Er bókin inni? Athugaðu á leitir.is
Til baka