Áhugavert á safninu

Þrír glæpahöfundar

Mig langar að vekja athygli glæpasagnalesenda á þremur ágætum höfundum sem vert er að gefa gaum. 



TemplerPeter Temple
Peter Temple er frá Suður-Afríku en hefur undanfarin ár búið í Ástralíu. Hann hlaut Crime Writers Association Duncan Lawrie Dagger árið 2007 fyrir bókina The Broken Shore. Síðan er allt upp á við hjá þessum ágæta höfundi sem fær mín bestu meðmæli. Titlarnir sem til eru í Borgarbókasafni eru Dead Point, An Iron Rose, In The Evil Day og The Broken Shore. Allar bækurnar eru í aðalsafni. Væntanlegir titlar á næsta ári eftir Temple eru Truth og Shooting Star.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!


 
Michael Robotham
Þessi höfundur er líka frá Ástralíu og hefur vakið talsverða athygli upp á síðkastið. Við eigum þessar bækur; The Night Ferry, Lost, The Drowning Man og Suspect. Allar eru þær í aðalsafni nema Lost sem er í Kringlusafni.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

ConnorJohn Connor
Connor er breskur lögfræðingur sem hefur skrifað fjórar glæpasögur um lögreglukonuna Karen Sharpe. Þær eru allar til í aðalsafni Borgarbókasafns; Falling, A Child’s Game, The Playroom og Phoenix. Sumum kann að finnast dramatíkin í það mesta hérna en allar eru bækurnar hörkuspennandi.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�