Áhugavert á safninu
Bækur tilnefndar til Booker verðlaunanna
Þessar sex bækur voru tilnefndar til MAN BOOKER – bókmenntaverðlaunanna 2008 og hlaut Aravind Adiga verðlaunin í ár fyrir bókina
The White Tiger. Í sumum þessara bóka er ekkert til sparað í blaðsíðufjölda sem eru gleðitíðindi fyrir þá sem unna þykkum bókum. Bækurnar eru allar til í aðalsafni Borgarbókasafns.

The White Tiger eftir Aravind Adiga gerist á Indlandi. “Meinlega fyndin en dálítið óöguð fyrsta skáldsaga höfundar. Gogol yrði hrifinn!!!” 336 blaðsíður.

A Fraction of the Whole er fyrsta skáldsaga Steve Toltz sem kemur frá Ástralíu. “Ógleymanleg, ærslafull en um leið hjartnæm fjölskyldusaga”. 720 blaðsíður. (Einnig til í Ársafni.)

The Northern Clemency eftir Philip Hensher. Hensher hefur ritað nokkrar skáldsögur og er kunnur gagnrýnandi og pistlahöfundur. Hann hlaut Somerset Maugham bókmenntaverðlaunin 1996 fyrir bókina Kitchen Venom. “Heillandi saga sem gerist í London, Kalkútta, Pétursborg og Kabúl.” 736 blaðsíður.

The Secret Scripture eftir Sebastian Barry er “hárfín athugun á sálarástandii, trú, fjölskyldu og pólítík” í heimalandi höfundar, Írlandi. The Whereabouts of Eneas McNulty eftir Barry er til í aðalsafni og leikritasafn, Plays, í Kringlusafni 320 blaðsíður.

Sea of Poppies er eftir hinn indversk-bengalska Amitav Ghosh. Í aðalsafni Borgarbókasafns eru til eftir hann The HungryTide, The Calcutta Chromosome, The Glass Palace, The Circle of Reason og Skyggelinier. Umrædd bók er söguleg sjóferðasaga frá tímum hinna svonefndu Ópíumstríða um miðja 19. öld. 480 blaðsíður.

The Clothes on Their Backs er eftir ensku skáldkonuna Lindu Grant. Í aðalsafni Borgarbókasafns eru til bækurnar When I Lived in Modern Times og The Cast Iron Shore eftir hana. Þessi bók fjallar um innflytjendur í Lundúnum á áttunda áratugnum. 293 blaðsíður.
Til baka