Áhugavert á safninu

Tælandi sakamál?

Fyrir áhugafólk um krimma er ekki úr vegi að benda á þrjár glæpasögur sem gerast í Bankok og nágrenni. Höfundurinn, John Burdett, býr þarna sjálfur og lýsir skemmtilega lífi spilltra og óspilltra lögreglumanna, gleðikvenna og fleiri sem við sögu koma. Karmalögmál Búddismans eru ofarlega á baugi hjá aðalsöguhetjunni sem ber nafniðSonchai Jitpleecheep. Hann er sonur Bandaríkjamannns og taílenskrar móður sem rekur hóruhús. Þar vinnur Sonchai af og til á milli þess sem hann reynir að leysa hin ýmsu morðmál sem upp koma í bókunum. Þetta eru vel skrifaðar bækur með ágætis húmor og gott ef maður fræðist ekki bara heilmikið um land og þjóð. Allar bækurnar eru til í aðalsafni og eitthvað af þeim má finna í Ársafni, Gerðubergi, Kringlu- og Foldasafni.

Ingvi Þór Kormáksson, Borgarbókasafni



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�