Áhugavert á safninu
Upp með handavinnuna
Á meðan beðið er eftir því að birti aðeins til útifyrir er notalegt að sitja með prjónana, heklunálina eða við saumavélinaog skapa eitthvað nýtt og fallegt. Á Borgarbókasafni er að finna aragrúa bóka og tímarit um ýmis konar handverk. Nú hafa einnig bæst við splunkunýjar og áhugaverðar bækur sem vert er að skoða. Til að fullkomna notalegheitin er hægt að kippa einni hljóðbók með sér og láta lesa fyrir sig á meðan prjónað eða heklað er.

Susie Johns: Crochet for beginners
Eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta heklubók fyrir byrjendur, það er meira segja sýnt hvernig á að halda á heklunál. Bókin geymir 19 einfaldar og skemmtilegar uppskriftir með góðum og skýrum leiðbeiningum (en náttúrulega á ensku og þar er nauðsynlegt að kunna prjóna- og heklumálið vel til að skilja). Fín bók fyrir þá sem langar til að byrja á einhverju einföldu.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Lucinda Guy: Lucinda Guy crochet designs for girls and boys
Þessi bók er fyrir lengra komna, svona miðað við bókina hér að ofan. Í bókinni eru 20 uppskriftir að fötum, töskum og teppum og leikföngum fyrir 2-5 ára börn. Uppskriftunum er skipt eftir árstíðum og eru þær settar fram á skemmtilegan og fallegan hátt.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Debbie Bliss: Essential kids
Samkvæmt bókakápunni er höfundur þessarar bókar fræg fyrir skemmtilegar og flottar prjónauppskriftir. Það ætti heldur enginn að vera svikinn af þessari bók, en í henni eru 20 uppskriftir af peysum, púðum, leikföngum, teppum, töskum og fleira fyrir börn á aldrinum 2-5 ára. Í bókinni eru auk þess góðar leiðbeiningar um t.d. hvernig eigi að fitja upp, fella af, sauma saman, prjóna kaðla o.s.frv.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Lois Daykin: Baby knits
Lois Daykin er ein af þeim sem hannar föt fyrir Rowan prjónablöðin, hér er fagmanneskja á ferð. Þetta er krúttleg bók með prjónauppskriftum að peysum, skóm, göllum o. fl. fyrir börn á aldrinum 0-2 ára. Kosturinn við að prjóna á svona lítil börn er óneitanlega sá að stykkin er frekar lítil og því líklegra að þau verði kláruð :o).
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Lois Daykin: Baby crochet
Þessi bók er ekki síðri en bókin hér að ofan, ótrúlega krúttlegir heklaðir hlutir á yngstu börnin, peysur, húfur, treflar, leikföng, kubbar, vögguskraut og svo mætti áfram telja.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Lene Holme Samsøe: Feminin strik
Þessi bók er semsagt prjónabók á dönsku og eins og titillinn gefur til kynna eru uppskriftirnar miðaðar við konur (karlar ráða samt alveg við þær). Í bókinni eru ákaflega fallegar, rómantískar og fínlegar flíkur, en henta e.t.v. ekki algjörum byrjendum. Uppskriftirnar eru þó mjög skýrar og góður listi yfir skammstafanir og tákn. Svo er hægt að rifja dönskuna upp um leið.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Politikens store strikkebog
Í bókinni eru prjónauppskriftir eftir sex danska prjónahönnuði. Uppskriftirnar eru mjög fjölbreyttar, allt frá pottaleppum upp í ponsjó. Mjög flottar uppskriftir af sokkum og húfum t.a.m. Uppskriftirnar eru skýrt settar fram og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, byrjendur sem lengra komnir.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Ulla Elynder: Sy og strik børnetoj 4-10 år
Í bókinni eru 57 mismunandi snið og prjónauppskriftir að toppum, skyrtum, kjólum, pilsum, buxum, peysum, yfirhöfnum o.fl. fyrir stelpur og stráka á aldrinum 4-10 ára. Uppskriftirnar og sniðin byggjast á 8 einföldum grunnsniðum og síðan er hægt að bæta við frá eigin brjósti. Falleg föt og auðveldar skýringar.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Dorte Lyager: Strik og stress af
Dönsk bók þar sem Dorte Lyager lýsir hvernig það að prjóna hefur hjálpað henni sjálfri og öðrum að lifa af krísur og stress. Í bókinni er að finna einfaldar prjónauppskriftir sem eru róandi þegar stressið er mikið og lífskrafturinn á þrotum.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Ilona Petäjämaa: 19 nydelige sjaler
Bókin er fyrir alla sem eru fyrir handavinnu í “lækre materialer”.
Hér er að finna uppskriftir á alls konar sjölum; létt kasmírsjöl, þykk og hlý sjöl, litrík sjöl, klassisk hippasjöl o.s.frv.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Lene Holme Samsöe: Sødt og blødt – strik til små prinser og prinsesser
Það er ekkert eins notalegt og að prjóna á smábörn! Þessi bók er með einfaldar prjónauppskriftir á 0-3 ára börn, s.s. ullarnærboli, húfur, vettlingar, peysur og yndilsleg teppi, krúttlegan bangsa og ýmislegt annað. Þetta er allt prjónað í mjúku náttúrugarni og í ljúfum pastellitum.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Jytte Slente: Strik på knagerækken
Hér er sýnt hvernig er hægt að prjóna dásamlega trefla, sjöl, frakka og aðra einfalda hluti á snagabretti (svona trésnaga eins og fást í Ikea). Prjónað úr þykku garni og tæknin það einföld að þetta er bæði fljótlegt og fyrir börn.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Anette Danielsen: Hønsefødder og gulerødder – strikkeopskrifter til børn fra 2 til 8 år
Bókinn er eins og vítamínsprauta fyrir prjónaunnendur. Hana prýða 16 flottar uppskriftir með fallegum myndum. Spennandi prjónaupplifun fyrir alla!
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Sys Fredens: Slå om
Hér eru létt sumarsjöl og rómantísk, stílhreinir treflar og ermasjöl, hlý ponsjó og fleira. Allt saman prjónað úr nýju og spennandi garni.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Candi Jensen: Knitting loves crochet
Sjaldan hefur prjón og hekl átt jafn vel saman og í þessari bók, en þar er þessu tvennu blandað saman. Lítil hekluð kirsuber á prjónaða peysu, sæt ömmudúlla á strákapeysuna, krúttleg blóm í prjónaða hattinn og svo mætti áfram telja. Flottar hugmyndir!
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Til baka