Áhugavert á safninu
Guttasögur
Nú er ekki fjallað um splunkunýtt efni á safninu heldur tiltölulega nýtt hugtak í bókmenntum. Hugtakið dicklit eða ladlit (sem ég hef kosið að kalla guttasögur) kom fram á tíunda ártug síðustu aldar sem eins konar mótvægi við chicklit. Eins og nafnið gefur til kynna er hér átt við bækur um karlmenn og sem höfða sérstaklega til karla. Í þessum bókum er gjarnan fjallað um sjálfsmynd karla og leitinni að henni, karlmennskuna, karlmannshlutverkið, vinasambönd karla, aðgerðarleysi karla og ábyrgðarleysi o.fl. Bækur sem gætu fallið undir þessa skilgreiningu eru margar hverjar áhugaverðar og skemmtilegar, og þrátt fyrir titilinn hér að ofan, ekki eingöngu fyrir karla heldur einnig konur.
Nokkrar bækur á Borgarbókasafni sem gætu fallið undir guttasögurnar:
Á íslensku
Bragi Ólafsson: Gæludýrin
Bragi Ólafsson: Hvíldardagar
Hallgrímur Helgason: 101 Reykjavík.
Hanif Kureishi: Náin kynni (e. Intimacy)
Henry Miller: Kyrrðardagar í Clichy (e. Quiet days in Clichy)
John Kennedy Toole: Aulabandalagið (e. A Confederacy of Dunces)
Mikael Torfason: Samúel
Mikael Torfason: Heimsins heimskasti pabbi
Nick Hornby: Saga um strák (e. About a Boy)
Nick Hornby: Fótboltafár (e. High Fidelity)
Shakespeare: Hamlet
Á ensku
Nick Hornby: How to be good
Tony Parsons: Man and boy
Bret Easton Ellis: Less than zero
Charles Bukowski: Ham on Rye
Eru bækurnar inni? Athugaðu í Gegni
Viltu bæta einhverjum titlum við? Sendu póst á: gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is
Guðríður Sigurbjörnsdóttir
Til baka