Áhugavert á safninu

Héðan og þaðan

Að þessu sinni er fjallað um bækur héðan og þaðan, íslenskar, erlendar, matreiðslubækur, fræðibækur, list og myndasögur, híbýlabók, katalónskt léttmeti og sitthvað fleira. Allar eiga bækurnar þó það sameiginlegt að vera nýkomnar á safnið.

Book of writers
The Believer Book of Writers talking to Writers.
Ritstjóri Vendela Vida. Believer Books 2005.
Í þessari bók er samansafn 23 viðtala sem rithöfundar hafa tekið við höfunda sem þeir hafa sérstakt dálæti á. Sum þessara viðtala hafa birst í tímaritinu The Believer en önnur koma hér í fyrsta sinn fyrir sjónir lesenda.  Í bókinni má t.d. lesa viðtöl Zadie Smith við Ian McEwan, Jonathan Lethem við Paul Auster, Vendela Vida við Susan Straight og svo mætti áfram telja. Flest viðtölin áttu sér stað augliti til auglitis en þar sem því var ekki viðkomið fóru samskiptin fram í tölvupósti, síma eða með hefðbundnum bréfaskriftum. Áhugaverð og skemmtileg.

Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!

Friðarsúlan í ViðeyFriðarsúlan í Viðey. Imagine Peace Tower. Bókin er gefin út af Íslandspósti í samvinnu við Yoko One 2008.
Eins og nafnið gefur til kynna er hér fjallað um friðarsúlu Yoko Ono. Í bókinni er fjölbreytt efni sem tengist byggingu friðarsúlunnar. Þar er m.a. að finna umfjöllun um hugmynd Yoko Ono að ljóshúsi sem hún setti fyrst fram árið 1964 og sem varð að veruleika í Viðey rúmum 40 árum seinna, sagt frá byggingu friðarsúlunnar, viðtal við höfund frímerkisins sem friðarsúlan prýðir, hugleiðingar um friðarmenningu og vopnahlé og umfjöllun um friðarhugmyndafræði Yoko Ono og Johns Lennon. Bókinni fylgir mynddiskur með viðtali við Yoko Ono, myndum frá vígslu súlunnar, lagi John Lennons Imagine o.fl. Bók fyrir friðelskandi fólk og aðra, ef til vill sérstaklega þá sem eru hlynntir hernaðar- og stríðsbrölti.

Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!

Arf MuseumArf museum. The unholy marriage of art + comics. Craig Yoe. Fantagraphics 2006.
Í þessari bók heldur höfundurinn Craig Yoe verki sínu áfram sem byrjaði í bókinni Modern Arf, þ.e. að safna saman og koma myndasögum og skrípó eftir ýmsa höfunda á framfæri. Bókin geymir myndasögur frá mismunandi tímum, þar er t.d. að finna myndasögur frá miðri 19. öld.  Bókin byrjar á myndasögum og skrýtlum um listasöfn en skiptist síðan í kafla þar sem tekið er fyrir ákveðið efni eða ákveðinn höfundur. Til að mynda eru sýnd dæmi um myndasögur um apa og ungar og fallegar stúlkur, svona Fríða og dýrið dæmi; annar kafli er tileinkaður„Tattons”, þar sem húðflúrun er í aðalhlutverki en samkvæmt höfundi var húðflúrið eina listformið sem var álitið lægra sett en myndasögurnar; hér má einnig sjá óbirtar myndasögur um The Yellow Kid og umfjöllun um áhuga Picassos á myndasögum. Óneitanlega skemmtileg og fróðleg bók, jafnvel fyrir þó sem hafa ekki sérlega gaman að myndasögum. 

Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!

Eldað í dagsins önnEldað í dagsins önn. Stefanía Valdís Stefánsdóttir. JPV útgáfa 2007.
Hér er á ferðinni ákaflega aðlaðandi og fjölbreytt matreiðslubók. Undirtitill bókarinnar er Fljótlegir og hollir heimilisréttir  og er það engar ýkjur. Í bókinni eru ríflega hundrað uppskriftir af ljúffengum, hollum og tiltölulega ódýrum heimilisréttum. Allir réttirnir eru samansettir samkvæmt ráðleggingum Lýðheilsustöðvar og eru uppskriftirnar einfaldar, leiðbeiningar skýrar og henta þær því jafnt byrjendum sem hagvanari eldabuskum. Jamm, jamm – góð bók.

Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!

Og ég skal hreyfa jörðina
Og ég skal hreyfa jörðina. Forngrísku stærðfræðingarnir og áhrif þeirra.
Jón Þorvarðarson. Stæ ehf, 2005.
Stærðfræðiáhugamenn og aðrir verða ekki sviknir af þessari bók en í henni er saga forngrískrar stærðfræði rakin og eins og segir á bókarkápu er það saga sem í mörgum tilvikum teygir sig til nútímans. Í bókinni er ýmsum áleitnum spurningum svarað eins og hvernig standi á því að Pýþagóringar höfðu óbeit á tölunni 17, hvort Guð hafi verið rúmfræðingur og fyrir hvaða sakir Anaxagóras var fangelsaður. Höfundur bókarinnar er stærðfræðingur og greinilega mikill áhugamaður um stærðfræði enda tekst honum að setja efnið fram á mjög skemmtilegan hátt.


Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!

The history of espionage
The history of espionage.
Ernest Volkman. Carlton 2007.
Hér er á ferðinni annað sagnfræðirit sem fjallar um njósnara og njósnastarfsemi frá fornum tímum og fram á 20. öldina. Rakin er saga leyniþjónustumanna, leynilegra aðgerða, bellibragða, fyrirsáta, unninna og tapaðra stríða og sagt frá því hvernig stjórnvöld eyða skilljónum í njósnastarfsemi í nafni öryggis og upplýsingasöfnunar.


Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!

Essential guide for reading groups
Essential Guide for Reading Groups.
Susan Osborne. Bloomsbury, 2008.
Á tímum kreppu og volæðis er fátt betra en að hella sér í lestur góðra bóka (og jafnvel slæmra) og fátt skemmtilegra en að ræða um innihald þeirra við aðra. Í þessari bók eru leiðbeiningar um það hvernig leshringir eru búnir til, hvernig velja eigi bækur og viðfangsefni og hvernig sé best að stjórna umræðum. Einnig eru nokkur þemu tekin fyrir og bent á bækur sem falla undir þau. Auk þess inniheldur bókin umfjöllun um ákveðin verk, skáldrit sem önnur, höfunda þeirra og bakgrunn, því næst lagðar fram tillögur að umræðuefni og loks bent á frekara lesefni. Aldeilis fín bók.

Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!


Marie Claire. ColoursMarie Claire maison. Colour.
Bridget Bodoano. Quadrille Publishing Limited Alhambra House, 2007.
Rautt: örvandi, heitur, ástríðufullur, ógnandi, hættulegur. Fjólublár: ríkidæmi, þroski, andlegur, ódýr, dökkur. Appelsínugulur: kátur, hlýr, lifandi, dóminerandi...
Litir og málning ráða för í þessari híbýlabók. Í henni má m.a. finna umfjöllun um þau áhrif sem litir hafa á nánasta umhverfi okkar og praktísk ráð um hvernig nota má liti svona almennt á heimilum eða til að ná fram ákveðnum áhrifum. Flott bók og flottar myndir sem geta jafnvel orðið örgustu letingjum hvatning til að draga upp málningarrúlluna.

Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!

39+1+1
39+1+1.
Sílvía Soler. Columna 2007.
Les dones ho volem tot: una talla 38, éxit professional , una família feliç, ser independets i ... l’amor. Þetta er semsagt bók fyrir þá sem kunna katalónsku og er svona dæmigerð kvennabók um konur á fertugsaldrinum í tilvistarkreppu.  Katalónskt léttmeti í hnotskurn.





Er bókin inni? Leitaðu í Gegni!


Guðríður Sigurbjörnsdóttir



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�