Áhugavert á safninu

Múminálfar, drekar og Dilbert

Það er margt spennandi af nýju efni á safninu og hér verður aðeins tekið fyrir brot af því sem er nýkomið í útlán.

Moomin. The Complete Tove Jansson Comic StripMoomin. The Complete Tove Jansson Comic Strip. Tove Jansson. Drawn & Quarterly 2008.

Hér er komið þriðja bindið af myndasögunum um hinar vinalegu persónur úr Múmíndal. Tove Jansson gerði þessar myndasögur samhliða því sem hún skrifaði sögurnar um múminálfana. Hún skrifaði þær á ensku og birtust þær upphaflega í London’s Evening News á sjötta áratugnum. Myndasögurnar voru svo fyrst gefnar út á bók árið 2008 og er ætlunin að bindin verði fimm. Fyrsta og annað bindi eru að sjálfsögðu til á Borgarbókasafni.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!


Paint Effects. Stamping, stenciling, texture, freehand.
Paint Effects. Stamping, stenciling, texture, freehand.
Hilary Mandleberg. Thunder Bay Press, 2005.

Málning skiptir sköpun eins og sannast í þessari bók. Í henni er að finna leiðbeiningar um tæki og tól, mikilvægan undirbúning, hvernig flikka má upp á gömul (eða ný og ljót) húsgögn, hvernig skreyta megi heimilið með munstri og fallegum litum og búa til listaverk á einfaldan hátt.

Er bókin inni. Athugaðu í Gegni!




Dóttir hennar, dóttir mín
Dóttir hennar, dóttir mín
. Dorothy Koomson. Halla Sverrisdóttir þýddi. Forlagið 2009.
Kamryn Matika er í góðu starfi, einhleyp og barnlaus. Hún vinnur frá morgni til kvölds og skemmtir sér þess á milli. En svo fær hún afmæliskort sem sem hristir heldur betur upp í henni og þarf hún að taka miklar og afdrifaríkar ákvarðanir sem kollvarpa lífi hennar. Konubók.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!




Million MenusMillion Menus. Mix and Match One Million Three Course Meals
. Parragon, 2006.

Vel skipulögð bók í þremur pörtum, efst eru forréttir, svo aðalréttir og neðst eftirréttir og er hægt að raða þessu saman á mismunandi hátti. Samkvæmt titlinum eiga þetta að vera milljón mismunandi útgáfur af matseðlum. Það hljómar nú eins og miklar ýkur, en hver nennir að telja? Það sem máli skiptir er að uppskriftirnar eru girnilegar, auðveldar og aðgengilegar og svo er það spennandi að fletta tilviljanakennt upp í bókinni og fá út óvæntan þriggja rétta matseðil.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Dilbert


Dilbert and the Way of the Weasel.
Scott Adams. Harper Business, 2002. Óhæfir stjórnendur, óheiðarlegir forstjórar, kúgaðir og illa innrættir samstarfsmenn og fleira til. Ekki beinlínis björt mynd sem dregin er upp af samskiptum á vinnustað í bókunum um Dilbert, en engu að síður óborganlega fyndin.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!




Incognegro


Incognegro. A Graphic Mystery. Texti: Mat Johnson. Teikningar: Warren Pleece.
Incognegro er glæpasaga í myndasöguformi. Sagan gerist á 4. áratug síðustu aldar og fjallar um óhuggulegar aftökur hvítra manna á svertingjum. Sagan segir frá Zane Pinchblack blaðamanni sem skrifar í Incognegro dálkinn á New Holland Herald, harlemsku dagblaði. Pinchblack, sem er svertingi, er svo ljós á hörund að með smáhjálp virðist hann vera hvítur og notfærir hann sér það í vinnu sinni. Kápumyndin ein vekur manni hroll.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

The Secret history of Dragons
The Secret History of Dragons.
Jessica Renison. Kandour Ltd., 2007.
Ef þú ert að velta því fyrir þér hversu lengi drekar lifa, hvort þeir geti talað, hvað ákveði litinn á þeim, hvort þeir séu góðir eða slæmir eða einhverju öðru sem viðkemur drekum þá finnur þú svörin við spurningum þínum í þessari bók. Í henni eru allar upplýsingar um dreka, m.a.s. orðabók yfir tungumál þeirra. Höfundurinn er, samkvæmt bókakápu, nærsýnn og reyndur könnuður sem hefur ferðast um jörðina þvera og endilanga í leit að goðsögulegum verum.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�