Áhugavert á safninu

Norðfjörður, ástsjúkur morðingi og týndur köttur

Ég skal vera dugleg
Ég skal vera dugleg eftir Lovísu Maríu Sigurgeirsdóttur

Fimm ára gömul fer Lovísa heiman úr Hrísey á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri með skaddaða mjöðm. Þar liggur hún í fjóra mánuði innan um eldra fólk og önnur börn, heyrir sögur og kynnist fólki sem hún man alla tíð síðan. Lovísa María vann bókina upp úr minningum sínum en skeytir þar saman tveimur aðskildum tímabilum og skáldar í eyðurnar. Bókin er létt aflestrar með stóru letri og myndum eftir systur Lovísu, persónuleg heimild um spítalavist á sjöunda áratug síðustu aldar.


Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Wind Up Bird ChroniclesThe Wind-up Bird Chronicle eftir Haruki Murakami
Murakami hefur verið óhemju vinsæll síðustu ár, enda þótt hann vilji helst skrifa um það að strauja skyrtur og elda kvöldmat. Í þessari bók, sem er af mörgum talin meistarastykkið, rennur hversdagurinn hægt og rólega saman við fantasíu, og það byrjar allt á því að kötturinn hans Okada gufar upp.
Fjórar bækur Murakamis hafa verið gefnar út á íslensku: Norwegian Wood, Eftir skjálftann, Spútnik-ástin og Sunnan við mærin, vestur af sól (allar í þýðingu Ugga Jónssonar) en Trekkifuglskróníkan er enn óþýdd. Þessi prýðilega enska kiljuútgáfa hlýtur því að vera ljúfur leikur fyrir þá sem þyrstir í meiri Murakami en ganga ekki svo langt að læra japönsku.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

The Winner stands alone
The Winner Stands Alone eftir Paulo Coelho

Farsímajöfurinn Igor Malev flýgur til Cannes til að elta uppi Ewu, fyrrverandi konu sína, og vinna ástir hennar á ný. Ewa er þar á kvikmyndahátíðinni víðfrægu ásamt tískuhönnuðinum Hamid, öll eru þau hluti af því sem Coelho kallar ,,ofurstéttina”, sem gengur um á rauðu teppi og flýgur um í einkaþotum. En þess utan er Igor ástsjúkur morðingi sem hefur einsett sér að drepa slatta af fólki til að koma vitinu fyrir Ewu. Coelho deilir á ofbeldis- og farsímavæðingu, útlitsdýrkun, Hollywood og glamúrfyllerí þeirra sem sletta skyrinu í þessari 26. bók sinni.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Fegurstu Grimmsævintýri
Fegurstu Grimms-ævintýri í íslenskri þýðingu Þorsteins Thorarensen

Grimms-ævintýrin eru sígild og Öskubusku, Rumputuska og Rauðhettu þekkja allir. En það er ekki þar með sagt að allir hafi lesið sögurnar eins og þær birtust í safni Grimms bræðranna, þar sem ævintýrin hafa verið meira áberandi (og e.t.v. aðgengilegri) í endursögnum Disney og annarra minni spámanna síðustu ár. Þessi útgáfa fylgir upprunalega textanum og færir þessi fallegu ævintýri upp á gamla mátann, með tilheyrandi útúrdúrum, vísum og maklegum málagjöldum. Bókin sjálf er myndarlegur gripur með ósköp settlegum myndskreytingum eftir Anastasíu Akrípóvu.

Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Norðfjarðarsaga II
Norðfjarðarsaga II – síðari hluti eftir Smára Geirsson

Norðfjarðarsaga II er beint framhald Norðfjarðarsögu I og segir frá sögu þorps og sveitar frá 1895-1929. Smári rekur sögu kirkjumála, íþróttahreyfinga, kvenfélaga, góðtemplara, verkalýðsbaráttu og heilbrigðismála svo eitthvað sé nefnt, í yfirgripsmiklu og vel framsettu riti. Hér er að finna fjölda ljósmynda eins og vera ber, en auk þess birtir Smári ýmis skjöl og litríkar greinar úr héraðsritum, t.d. fyrsta kaupgjaldasamninginn sem gerður var á Norðfirði og samtímafrásögn af því ,,Þegar seyðfirskir verslunarmenn báru sigurorð af norðfirskum sjómönnum” í knattspyrnu (líkt og segir í fyrirsögn Hænis 31. júlí ’26).
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!




Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�