Áhugavert á safninu
Uppskerutíð
Bráðlega fer sá tími í hönd að hægt verður að fara í berja- og sveppamó og taka upp brakandi ferskt grænmeti úr garðinum eða af svölunum. Svo er það bara spurningin um hvað eigi að gera við þetta allt saman. Hér eru ábendingar um nokkrar bækur og heimasíður sem ættu að koma að gagni þegar um er að ræða sultu- og saftgerð, meðhöndlun og geymslu grænmetis sem og annarra matvæla, sveppatínslu og fleira.

Helga Sigurðardóttir: Matur og drykkur
Þetta er biblía eldabuskunnar og bók sem ætti að vera til að hverju heimili. Í bókinni er m.a. að finna allt um sultugerð, meðferð grænmetis og annarra matvæla að ónefndum góðum og klassískum uppskriftum. Mér til óblandinnar ánægju sá ég að búið er að gefa þessa mikilvægu bók út aftur og nú get ég loksins eignast hana (og skilað eintakinu sem ég er búin að vera með í láni í fjölda ára :o)).

Nanna Rögnvaldsdóttir: Matarást: alfræðibók um mat og matargerð
Hér er önnur bók sem ætti að vera til að í hverju eldhúsi. Troðfull af fróðleik og girnilegum og oft framandi uppskriftum.

Hildur Hákonardóttir: Ætigarðurinn: handbók grasnytjungsins
Í þessari bók fjallar Hildur um flest það sem nýta má úr náttúrunni, villt jafnt sem ræktað og gefur góð ráð og girnilegar uppskriftir. Gagnleg og notaleg bók sem einnig er geysilega skemmtileg aflestrar.
Politikens syltebog
Hér er ekki um sultaða pólitík að ræða, þó það væri e.t.v. ekki svo slæm hugmynd, heldur er hér gömul og góð bók á dönsku útgefin af hinu virta forlagi Politiken. Hún geymir ógrynni uppskrifta af alls konar sultum og pikklesum úr berjum og grænmeti ásamt góðum ráðleggingum og uppskriftum.
Sultun og djúpfrysting og Þurrkað, saltað og fryst
Þessar eru báðar frá 9. áratug síðustu aldar og í þeim er að finna ýmsar gagnlegar aðferðir til þess að nýta mat sem best og geyma ásamt girnilegum uppskriftum að sultum, pikklesi, kryddjurtaediki, berjasnöfsum og fleira
.

Sigríður Kristjánsdóttir: Frysting matvæla
Þetta litla kver sem Kvenfélagasamband Íslands gaf út fyrir rúmum tuttugu árum leynir á sér. Í því er að finna upplýsingar um hvernig best sé að frysta ýmsar matvörur, kjöt, grænmeti, ber, kökur og tilbúna rétti, hvernig hluta eigi skrokka niður, hversu stór heimilisfrystirinn eigi að vera o.s.frv. Gagnlegar ráðleggingar, ekki síst á sparnaðartímum sem þessum.
Ása Margrét Ásgrímsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir: Villtir matsveppir á Íslandi
Þetta er sú bók sem flestir hafa nýtt sér í sveppatínslunni undanfarin ár. Í henni eru greinagóðar lýsingar á sveppategundum og ljósmyndir af þeim. Einnig fylgja upplýsingar um vaxtarstað og ábendingar um meðferð og geymslu sem og tillögur um notkun hverrar tegundar fyrir sig. Þetta er ákafleg gagnleg bók og handhæg sem yfirleitt sést ekki inn á bókasöfnunum í ágúst. Til gamans má geta að annar höfundur bókarinnar, Guðrún Magnúsdóttir, vinnur á aðalsafni.

Ása Margrét Ásgrímsdóttir: Matsveppir í náttúru Íslands
Hinn höfundurinn, Ása Margrét Ásgrímsdóttir, hefur nú bætt um betur og gefið út bókina Matsveppir í náttúru Íslands. Þessi bók er ekki síður handhæg við sveppatínsluna, í henni eru nákvæmar lýsingar á um þrjátíu tegundum íslenskra matsveppa ásamt girnilegum uppskriftum.

Helgi Hallgrímsson: Sveppakverið. Ítarleg bók um greiningu á íslenskum sveppum og þá aðallega matsveppum.
Helgi Hallgrímsson, náttúrufræðingur, var frumkvöðull í því að rannsaka og greina íslenska sveppi. Í inngagni bókarinnar nefnir hann að sveppir hafi notið lítillar virðingar á Íslandi sem sjáist best í nafngiftinni gorkúla en þeir séu hins vegar „sannkölluð náttúrudjásn eða luxus naturae“. Bókin er fræðilegs eðlis og eru í henni mjög ítarlegar upplýsingar um sveppi, ættir þeirra og ættkvíslir á Íslandi. Þannig að ef fólk vill ekki eingöngu tína sveppi og matreiða heldur fræðast meira um þá, þá er Sveppakverið rétta bókin.
UPPLÝSINGAR Á VERALDARVEFNUM
Berjavinir
Á þessari síðu er mikill fróðleikur um ber, berjatínslu, berjalönd, sultu- og saftgerð og jafnvel þær reglur sem nauðsynlegt er að hafa í heiðri þegar að berjatínslu kemur.
Himneskt
Hér er hollustan í fyrirrúmi, sultur og fleira á nýstárlegan hátt.
Heilsubankinn
Hér er að finna upplýsingar um sveppatínslu og meðferð sveppa ásamt fjölda uppskrifta.
Flóra Íslands
Á þessari síðu eru ítarlegar upplýsingar um fjölda tegunda sveppa, matsveppi sem aðra ásamt myndum af þeim. Mikið af þeim upplýsingum sem eru á síðunni eru frá komnar frá Helga Hallgrímssyni.
Íslenskt.is
Á síðunni íslenskt.is er mikill fróðleikur um grænmeti og meðhöndlun þess og uppskriftir að góðum og girnilegum réttum.
Guðríður Sigurbjörnsdóttir
Til baka