Vefsíða Borgarbókasafns

Áhugavert á safninu

Nýtt og enn betra líf


Margir nota tækifærið þegar nýtt ár rennur upp til gera jákvæðar breytingar á lífi sínu, s.s. að taka upp heilsusamlegra eða einfaldara líf, losa sig við gamla lesti, verða betri manneskja og svo mætti áfram telja. Undirrituð hefur t.d. strengt þess heit árum saman að byrja að nota tannþráð... og það verður heitið í ár :o).

Hér er bent á nokkrar bækur sem gott er að fletta og jafnvel lesa þegar skipulagning nýja lífsins hefst. Vel að merkja er þetta aðeins brot af þeim bókum sem til eru á Borgarbókasafni um heilsu, hreyfingu og mataræði.

LÍF ÁN STREITU
Sjálfsagt eru það margir sem setja sér það markmið að lifa rólegra og einfaldara lífi á nýju ári. Hér eru ábendingar um nokkrar bækur sem hægt er að læra af.

Ryd op i dit livRyd op i dit liv. Werner Tiki Küstenmacher
Það eru sjálfsagt margir sem myndu vilja laga aðeins til í lífi sínu og gera það einfaldara. Í þessari bók er það kennt í sjö þrepum, allt frá því að snurfusa aðeins í kringum sig til þess að taka sjálfan sig vel í gegn. Bókin er upphaflega gefin út í Þýskalandi og samkvæmt bókarkápunni hefur hún verið á metsölulista þar frá því hún kom út. Segir það ekki allt sem segja þarf um þessa bók?





Slowing down the speed of life


Slowing down to the speed of life
. Richard Carlsson
Ert þú á stöðugum hlaupum, hefurðu ekki tíma til neins og líður þér eins og þú sért alltaf á síðustu stundu? Nútímalíf einkennist af miklum hraða og spennu og kemur það niður á heilsu okkar og hamingju. Samkvæmt þessari bók er til leið út úr þessum vítahring, án þess þó að fækka verkefnum eða fórna einhverju. Í bókinni eru kynntar einfaldar æfingar til þess að róa hugann og halda sjálfum sér í núinu.







Relax
Relax. Beverly Jollands
Hér eru aftur á móti kenndar ýmsar aðferðir við að slaka á og takast á við stressið þegar það er alveg að buga mann. Léttar æfingar, hugleiðsla og ákveðnar fæðutegundir geta gert kraftaverk.






Ráðist gegn streitu
Ráðist gegn streitu. K.R.S. Edstrom
Þetta er ein af 50 mínútna bókunum sem gerðar eru fyrir fólk sem hefur ekki mikinn tíma til að sökkva sér niður í lestur þykkra eða flókinna bóka. Hér eru grundvallaratriðin tekin fyrir og gagnlegar aðferðir kenndar.








BURT MEÐ REYKINN
Að hætta að reykja er sjálfsagt eitt af algengustu áramótaheitunum. Hér eru tvær bækur sem eru gagnlegar í baráttunni við reykinn.

Þú getur hætt að reykja

Létta leiðin til að hætta reykingum


Þú getur hætt að reykja. Guðjón Bergmann
Létta leiðin til að hætta reykingum. Allen Carr
Báðar þessar bækur byggja á reynslu höfundanna sem eru fyrrverandi stórreykingamenn. Aðferðir þeirra eru mismunandi en ganga reyndar báðar út á að einfaldast sé bara að hætta og það án allra hjálpartækja.



FRESTUNARÁRÁTTUNNI ÚTRÝMT
Frestunarárátta er útbreitt fyrirbæri og vafalaust margir sem vilja losa sig við hana.
Overcoming procrastinationÁ morgun segir sá lati
Hér eru 2 bækur sem taka á þessu vandamáli, Overcoming Procrastination eftir Dr. Windy Dryden og Á morgun segir sá lati. Listin að framkvæma strax eftir Rita Emmett. Þegar búið er að lesa þær ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að takast á við markmiðin; hætta að reykja, út að hlaupa, borða minna og lifa reglulegu og stressfríu lífi.





HEILSUSAMLEGRA MATARRÆÐI
Eftir að hafa gúffað í sig guðdómlegum mat svo dögum skiptir líður mörgum eins og velfylltum kalkúni og strengja þess hátíðlega heit að nú skuli mataræðið tekið í gegn á nýju ári.

Kend din mad
Kend din mad. Sådan får du en sundere livsstil. Gerda Rerup
Þessi bók er fín fyrir þá sem vilja breyta mataræði sínu. Í henni er fjallað á einfaldan og skýran hátt um hvað maturinn gerir fyrir líkamann, hvernig hægt er tryggja að öll næringarefni séu til staðar, hvernig lesa á innihaldslýsingar og hvernig hægt er að breyta um mataræði. Áhersla er lögð á að þetta sé nú svosem allt á manns eigin ábyrgð.





Quick and Easy Healthy EatingQuick and Easy Healthy Eating
Þegar frestunaráráttan, stressið og reykleysið er alveg að fara með mann er freistandi að hringja bara eftir pizzu. En það er ástæðulaust ef þessi matreiðslubók er við höndina. Hún er stútfull að léttum og heilsusamlegum máltíðum, sem tekur ekki nema örskotsstund að töfra fram.








Eating for better health
The Plant Programme - Eating for Better Health: Recipes for Better Health. Jane Plant
Jane Plant hefur um langt skeið rannsakað tengsl á milli krabbameins og mataræðis. Hún hélt m.a. fyrirlestur hér á landi um þetta efni á síðasta ári. Í þessari bók fjallar hún einkum um brjóstakrabbamein og krabbamein í blöðruhálskirtli og hvernig hægt er að sporna við þessum sjúkdómum með réttu matarræði. Bókin er full að góðum og einföldum uppskriftum sem allir geta nýtt sér.





You are what you eat


You are what you eat. Cookbook.
Gillian McKeith
Þar hefurðu það, þú ert það sem þú borðar. Gillian Mckeith er einn af heilsugúrúunum sem boðar nýtt og betra líf með breyttu mataræði. Hún leggur ekki áherslu á að svelta sig heldur að borða mikið en rétt. Í þessari bók eru yfir 200 uppskriftir að fjölbreyttum og góðum mat sem allir ættu að geta ráðið við.





HREYFING
Þegar nánast eina hreyfingin undanfarnar tvær vikur hefur falist í því að teygja sig í konfektskálina eða koma sér í næsta boð fyllast margir óþreyju og dreymir um að hreyfa sig einu sinni eða tvisvar duglega.

Pilates


Pilates : creating the body you want.
Anna Selby
Pilates nýtur nokkurra vinsælda um þessar mundir. Hér eru sýndar pilates æfingar skref fyrir skref og stuðla æfingarnar að sveigjanleika, bæta lögun líkamans og skapa tilfinningu fyrir vellíðan og jafnvægi. Kenndar eru aðferðir til að bera sig vel og höfuðið hátt dags daglega. Æfingar eru einfaldar og ættu að henta vel flestum.





Running and WalkingRunning and Walking for Women Over Forty. Katherine Switzer
Eins og titillinn gefur til kynna eru hér kenndar léttar aðferðir við að ná sér á strik í skokkinu. Þó bókin sé ætluð konum yfir fertug geta allir nýtt sér hana og e.t.v. ekki síst þeir sem eru ekki vanir að hlaupa mikið útivið.







Thai Chi
Complete Book Of T'ai Chi.
Tan Hong og Stewart McFarlane
Að öllu jöfnu er litið á T'ai Chi sem röð hægra hreyfinga frekar en bardagalist. T'ai Chi byrjaði þó upphaflega sem bardagalist og í þessari bók eru báðir þættir teknir fyrir. Sýndar eru 37 æfingar sem hægt er að nýta sér til að öðlast líkamlega og andlega hreysti og síðan er stuttur kafli um hvernig hægt er að nota T'ai Chi í sjálfsvörn. Í bókinni eru ítarlegar myndir af æfingunum.





Walking
Walking: A Complete Guide to the Complete Exercise.
Casey Meyers
Meyers, höfundur þessarar bókar, er mikill talsmaður göngu og vill halda merki hennar hátt á lofti. Hann vill leiðrétta þann misskilning að göngur séu aðeins fyrir þá sem ekki geti annað vegna heilsuleysis. Hann er þeirrar skoðunar að ganga geri nákvæmlega sama gagn og skokk eða hlaup, nema að því leyti að göngumenn sleppi við meiðslin sem hlauparar þurfa að glíma við. Meyers, minn maður ;o).







Svöm dig i form


Svøm dig i form. Carol Hicks
Það er nú fátt dásamlegra en sundlaugarnar á Íslandi enda margir sem nýta sér þær. Hér eru á ferðinni leiðbeiningar um helstu sundaðferðir, sundtök og - tækni auk þess sem sérkaflar eru fyrir þá sem ætla að byrja að stunda sund eftir veikindi, barnsburð eða á gamals aldri. Nauðsynlegt er að lesa bókina vel áður en maður stingur sér út í - hún er sko ekki vatnsheld.

Guðríður Sigurbjörnsdóttir

Senda á Facebook
Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�