Vefsíða Borgarbókasafns

Áhugavert á safninu

Bull, byltingar og bókmenntir


Bull, byltingar og bókmenntir

Where are we nowHvar við erum núna
Hvar við erum núna (Where We Are Now, Mitchell Beazley 2008) er yfirgripsmikil kaffiborðsbók sem ætlað er að vera einskonar leiðsögn um nútímann, hvar við erum stödd, hver eru helstu átakamálin, hvað er að gerast í heiminum yfirleitt? Bókin er bresk að uppruna og að henni stendur dágóður hópur fólks, bæði höfundar og hönnuðir en hér er mikið lagt uppúr framsetningu með myndum og línuritum af ýmsu tagi. Hér er fjallað um stríð, tónlist, vatn og tækni og allt þar á milli og vefslóðir leiða svo áhugasama lesendur áfram. Í heildina séð virðist þetta nokkuð forvitnilegt stykki, þó vissulega hefði verið áhugavert að sjá hvort nálgunin hefði verið einhver önnur í kjölfar heimskreppunnar á fjármálamörkuðum. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Michael MannMichael Mann
Önnur kaffiborðsbók fjallar um kvikmyndaleikstjórann Michael Mann og er gefin út af hinu ástsæla útgáfufyrirtæki Taschen (2006). Margar konur eru þakklátar Mann fyrir kvikmyndina um síðasta móhíkanann sem skartaði fáklæddum Daniel Day Lewis, en af öðum verkum kappans má nefna hrollvekjuna The Keep, spennumyndirnar Manhunter og Heat, og hina dramatísku reykingabaráttumynd, The Inisider. Mann lætur sér ekki nægja að leikstýra heldur skrifar hann líka handrit og framleiðir, en hér er þó lögð áhersla á leikstjórahlutverkið. Fyrir utan mikið magn af myndum, bæði úr kvikmyndunum og af tökustað, er umfjöllun klipparans um aðferðir og helstu hæfileika Mann og svo er ein sena greind niður í smáeiningar. Þetta virðist því á allan hátt vera afar vönduð bók um ofmetinn kvikmyndagúrú. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Stjórnmál og bókmenntirStjórnmál og bókmenntir
George Orwell gerði engar kvikmyndir, þó sum verka hans hafi verið kvikmynduð, þeirra þekktust eru líklegast Nítjánhundruðáttatíuogfjögur og Dýrabær. Hið íslenzka bókmenntafélag gaf í fyrra (2009) út greinasafn Orwells, undir yfirskriftinni Stjórnmál og bókmenntir. Orwell er af mörgum talinn meistari þess forms sem á ensku nefnist „essay“, og mætti útleggja sem pistil, utan að „essayur“ eru ekki endilega stuttar, eins og orðið pistill gefur til kynna. Hér er að finna fræga grein rithöfundarins um borgarastríðið á Spáni, en um það skrifaði Orwell einnig fræga bók sem gerist að stórum hluta í Barcelona. Í borginni er síðan að finna minnismerki um veru hans þar. Fyrir utan þessa grein kennir margra og forvitnilegra grasa í þessu riti, hér fjallar Orwell um það hversvegna hann skrifar, önnur grein nefnist „Hnignun hins enska morðs“ og ein enn heitir „Góðar vondar bækur“, en það eru bækur sem teljast tæplega til bókmennta en eru samt læsilegar og vinsælar. Þó „essayur“ Orwells séu margar hverjar orðnar nokkuð aldraðar virka þær fullkomlega ferskar.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Allir litir regnbogansAllir litir regnbogans
Stjórnmál og bókmenntir koma einnig við sögu í spánnýrri skáldsögu ungs höfundar, Vignis Árnasonar. Bókin heitir Allir litir regnbogans og ber undirtitilinn: byltingarkennd ástarsaga (2010). Þar segir frá Brynju og Nökkva sem verða par mitt í bankahruni og búsáhaldabyltingu. Bókin fjallar svo um hvernig þau, sem hluti af hópi róttækra ungmenna, lendir í kasti við lögregluna vegna hústöku og mótmæla ýmiskonar. Aftaná bókinni er „byltíngarkennd stafsetníng“ einnig kynnt til sögunnar, en hún dregur mjög dám af stafsetningu Laxness. Vignir Árnason er bráðungur, fæddur 1989, en hefur áður sent frá sér smásögur (sem ekki eru skráðar í gegnir.is) og „greinar sem hafa jafnvel birst í blöðum!“ eins og segir aftaná bókinni. Það er ljóst að kreppan hefur orðið mörgum rithöfundum kveikja að ýmiskonar skrifum og hér virðist komin rödd beint úr grasrótinni. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

On BullshitOn Bullshit
Harry G. Frankfurt er siðfræðingur og heimspekingur sem skrifað hefur bækur með virðulega titla eins og Ástæðurnar fyrir ást og Mikilvægi þess sem skiptir okkur máli. Hvorug þessara bóka er til á Borgarbókasafninu, en hinsvegar er til „essay“ eftir Frankfurt, sem gefin er út í lítilli fallegri innbundinni bók og nefnist On Bullshit (Princeton University Press 2005). Í sjálfu sér hlýtur þetta að vera þarft framtak á þessum tímum þegar bullið veður uppi – og sýnir sig hafa verið við stjórnvölinn ansi lengi. „Alltaf verður bullið bull / þótt búið sé í rímað skart“ sagði Jón úr Vör og þetta kemur æ betur í ljós. Ekki er ritgerð Frankfurts í bundnu máli né rímuð að ráði, en þar fjallar hann um allt það bull sem er í kringum okkur, og við höldum að við þekkjum, en vitum kannski ekki svo mikið um, þegar til á að taka. Hann ræðir ýmsar skilgreiningar og samheitir og bendir á að bull er einskonar form lygi, sem yfirleitt þjónar þeim tilgangi að sá sem bullar er að reyna að komast upp með eitthvað, eða komast ódýrt frá hlutunum – svona einmitt eins og ég geri hér með umfjöllun um þessa bók sem ég hef réttsvo gluggað í. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

úlfhildur dagsdóttir


Senda á Facebook
Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�