Vefsíða Borgarbókasafns

Áhugavert á safninu

Sjálfsmyndasögur


Myndasögudeildir Borgarbókasafns eru frumskógur. Ár hvert eru þar þúsundir hektara höggnir og plægðir svo hægt sé að rækta korn ofaní skepnur merkurinnar. Nei annars, þær eru frumskógur vegna þess að bækur eru búnar til úr trjám, sem greinast frá stofni í greinar og undirgreinar og loks einstaka blöð. Alveg eins og myndasögur. Þessar sex myndasögur tilheyra undirgrein innan undirgreinar myndasagna sem kalla mætti sjálfsmyndasögur, þ.e.a.s. myndasögur þar sem höfundurinn kemur fyrir í eigin persónu og segir frá ævi sinni.

My New York Diary eftir Julie DoucetMy New York Diary eftir Julie Doucet

Doucet er nokkuð vel þekkt innan þessa geira en hefur helst getið sér gott orð fyrir myndasögurnar Dirty Plotte. Hér segir hún meðal annars frá fyrsta árinu í listaskólanum, hvernig hún missti meydóminn og kærastanum sem var svo óþolandi og reyndi svo að fremja sjálfsmorð í íbúðinni hennar. Frásögnin er mjög kómísk og beint áfram, líkt og fleiri höfundar á þessum lista er Doucet ekki í mun að dramatísera baráttu sína við veröldina, eða hefja hana á hærra stig. En myndmálið er aftur á móti hlaðið smáatriðum og skrani, líkt og henni sé mikið í mun að fylla hvern einasta ramma af munum fortíðarinnar. Manni dettur helst í hug kápumyndir bókanna um Bert Ljung hérna í denn, með sínum stöku sokkum og lifrakæfupakkningum.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Stop Forgetting to Remember eftir Peter KuperStop Forgetting to Remember eftir Peter Kuper

Kuper hefur framleitt nokkrar prýðilegar orðlausar myndasögur á borð við The System og Eye of the Beholder - auk þess sem hann hefur skrifað og teiknað Spy vs. Spy fyrir Mad tímaritið síðan 1997 - en hér stendur hann á spjalli við lesandann á rúmum 200 síðum. Í grunninn segir bókin frá daglegu lífi hans sem myndasöguhöfundur í New York, með konu og nýfædda dóttur og myndasögu í smíðum. Inní það blandast sögur úr fortíðinni, aðallega af fremur trámatískum unglingsárum sem hann gerir þó mestanpart grín að. Þar er rauði þráðurinn (örlítið) kynlíf, (heilmikið) dóp og rokk-og-ról, eins og vera ber. Hann er á mörkum þess að vera dísætur (eða dý-sætur?) í lokin -- og þegar hann segir frá árásunum á tvíburaturnana árið 2001 -- en Kuper er það skemmtilegur sögumaður og hugmyndaríkur teiknari að það kemur varla að sök.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Fun Home eftir Alison BechdelFun Home eftir Alison Bechdel

Í örstuttu máli fjallar Fun Home um bernsku og unglingsár höfundarins, dauða föður hennar og hvernig hún komst að því að þau væru bæði samkynhneigð, hann í skápnum alla sína ævi en hún ekki. Í frásögninni leggur hún m.a. út frá pælingum um ljósmyndir, landafræði, arkítektúr, dagbókarskrif, íróníu, tráma og kyngervi; og síðast en ekki síst klassískum, samtíma- og hinsegin bókmenntum, en bókmenntir spila stóra rullu í lífum feðginanna. Þetta tekst Bechdel án þess að taka sig neitt sérstaklega alvarlega, eða að bókin virki ofhlaðin, textinn og myndmálið falla eins og lófi í lófa og leika í höndunum á henni. Þetta er bók sem má kalla djúpa, án þess að maður skammist sín hætishót fyrir að nota þá klisju.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Spent eftir Joe MattSpent eftir Joe Matt

Það hefur alla tíð verið tilhneiging, innan þessarar myndasöguhefðar, að sýna lesandanum meira en nokkur gæti kært sig um að vita um persónulega hagi höfundarins. Joe Matt gengur lengra en flestir aðrir og virðist mikið í mun að mála sem óviðfelldnasta mynd af sjálfum sér. Hér birtist hann okkur sem nískur, smámunasamur gikkur sem hatar allt og alla, kastar vatni í vaskinn heima hjá sér og eyðir heilu dögunum í sjálfsfróun. Hér eru rólegir og ítarlegir kaflar um það þegar hann okrar á vinum sínum (þeim Seth og Chester Brown, sem eru einnig sjálfsmyndasöguhöfundar), eða þegar hann hangir í herberginu sínu að klippa saman senur úr lánuðum klámmyndum. Inn á milli koma afturlit þar sem hann sýnir glefsur úr lífi sínu í barnaskóla, og veltir því fyrir sér hvernig í ósköpunum þessi mannskepna, sem hann er, varð til.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

We Are On Our Own eftir Miriam KatinWe Are On Our Own eftir Miriam Katin

Bækurnar hér á undan (utan My New York Diary) eiga það sameiginlegt að vera eintóna: þær eru ekki svarthvítar en notast við einn lit til áherslu, stemningar eða aðgreiningar. Kuper rauðan og Bechdel og Matt mismunandi græna. Myndmál We Are On Our Own samanstendur af blýantsteikningum sem eru fullar af lífi: kyrrar og rúðustrikaðar eða krassandi hektískar eftir því sem við á. Hún notar líka liti á afmörkuðum stöðum, annaðhvort til að sýna stökk fram í tíma eða til að leggja áherslu á táknræn atriði eins og fána þriðja ríkisins eða Sovjetsins. Sjálf sagan segir frá flótta Katin og móður hennar frá ofsóknum nasista í seinna stríði, og felum þeirra í Ungverjalandi árin '44-'45.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

I Shall Destroy All the Civilized Planets eftir Fletcher HanksI Shall Destroy All the Civilized Planets eftir Fletcher Hanks, ritstjóri og höfundur eftirmála: Paul Karasik

Þessi er nú hálfgert svindl. Bókin er mestanpart samansafn gullaldarmyndasagna eftir mann að nafni Fletcher Hanks. Myndasöguhöfundurinn Paul Karasik safnaði sögunum saman og bjó til útgáfu, en það var hægara sagt en gert því Hanks ,,skrifaði um annars flokks ofurhetjur fyrir þriðja flokks útgefendur", eins og Karasik orðar það. Þær þóttu með öðrum orðum lítt merkilegar og lítill hluti þeirra hefur varðveist, en að mati Karasiks eru þær miklar gersemar.
Eftirmáli Karasiks -- sem er í myndasöguformi -- dregur bókina saman og kippir einfeldningslegum sögum Hanks inní þriðju víddina. Þar segir Karasik frá kynnum sínum af syni Hanks, Fletcher Hanks yngri. Frásagnir sonarins af drykkfeldum og ofbeldisfullum föður sínum varpa nýju ljósi á þessar litríku teikningar af naívum, fasískum ofurhetjum.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Björn Unnar Valsson


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�