Áhugavert á safninu
100 bækur sem þú verður að lesa
Í tilefni Bókasafnsdagsins nú fyrir skemmstu tók starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri saman -- með aðstoð starfssystkina á landsvísu -- lista yfir ríflega 100 íslenskar bækur sem þú, lesandi góður, verður að lesa. Hundruð tilnefninga bárust frá bókavörðum nær og fjær og hér er listinn í heild sinni.
Fyrir neðan listann finna plakat sem starfsfólk Amtsbókasafnsins útbjó með titlum þessara 115 bóka, og auk þess einskonar tékklista á excel-formi sem skipulegir lesendur geta eflaust nýtt sér.
- Að breyta fjalli eftir Stefán Jónsson (1987)
- Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson (1927; ísl. þýðing 1939)
- Afleggjarinn eftir Auði Övu Ólafsdóttur (2007)
- Á eigin vegum eftir Kristínu Steinsdóttur (2006)
- Benjamín Dúfa eftir Friðrik Erlingsson (1992)
- Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju (2010)
- Borgin bak við orðin eftir Bjarna Bjarnason (1998)
- Brekkukotsannáll eftir Halldór Laxness (1957)
- Bréf til Láru frá Þórbergi Þórðarsyni (1924)
- Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi (1946-51)
- Edda Snorra Sturlusonar (13. öld)
- Egils saga (13. öld)
- Elías eftir Auði Haralds og Valdísi Óskarsdóttur (1983)
- Elsku besta Binna mín eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur (1997)
- Engin spor eftir Viktor Arnar Ingólfsson (1998)
- Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson (1993)
- Ertu Guð, afi? eftir Þorgrím Þráinsson (2010)
- Ég heiti Blíðfinnur en þú mátt kalla mig Bóbó eftir Þorvald Þorsteinsson (1998)
- Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón eftir Vigdísi Grímsdóttur (1989)
- Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar eftir Guðberg Bergsson (1997)
- Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson (1976)
- Ferð án fyrirheits eftir Stein Steinarr (1942)
- Fjallkirkjan eftir Gunnar Gunnarsson (1923; ísl. þýðing 1941)
- Flateyjargáta eftir Viktor Arnar Ingólfsson (2002)
- Fólkið í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur (2004)
- Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur (1987)
- Furðustrandir eftir Arnald Indriðason (2010)
- Gangandi íkorni eftir Gyrði Elíasson (1987)
- Garðurinn eftir Gerði Kristnýju (2008)
- Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson (1988)
- Gerpla eftir Halldór Laxness (1952)
- Grafarþögn eftir Arnald Indriðason (2001)
- Grandavegur 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur (1994)
- Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson (1986)
- Gunnlaðar saga eftir Svövu Jakobsdóttur (1987)
- Gæludýrin eftir Braga Ólafsson (2001)
- Halla og heiðarbýlið eftir Jón Trausta (1906-1911)**
- Harðskafi eftir Arnald Indriðason (2007)
- Harmur englanna eftir Jón Kalman Stefánsson (2009)
- Heimskringla eftir Snorra Sturluson (13. öld)
- Heimsljós eftir Halldór Laxness (1937-40)
- Himnaríki og helvíti eftir Jón Kalman Stefánsson (2007)
- Híbýli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson (1995)
- Hrafninn eftir Vilborgu Davíðsdóttur (2005)
- Hús úr húsi eftir Kristínu Marju Baldursdóttur (1997)
- Hvunndagshetjan eftir Auði Haralds (1979)
- Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness (1943-6)
- Jón Oddur og Jón Bjarni eftir Guðrúnu Helgadóttur (1974)
- Kaldaljós eftir Vigdísi Grímsdóttur (1987)
- Karitas : án titils eftir Kristínu Marju Baldursdóttur (2004)
- Konur eftir Steinar Braga (2008)
- Kvæðasafn Snorra Hjartarsonar (2006)
- Leigjandinn eftir Svövu Jakobsdóttur (1969)
- Lífsins tré eftir Böðvar Guðmundsson (1996)
- Ljóðmæli eftir Jónas Hallgrimsson (1947)
- Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur (2010)
- Mávahlátur eftir Kristínu Marju Baldursdóttur (1995)
- Meðan nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur (1990)
- Missir : stuttsaga eftir Guðberg Bergsson (2010)
- Mýrin eftir Arnald Indriðason (2000)
- Njáls saga (13. öld)
- Nonni og Manni eftir Jón Sveinsson (1914; ísl. þýðing 1925)
- Nornadómur eftir Ingibjörgu Davíðsdóttur (1994)
- Ofvitinn eftir Þórberg Þórðarson (1940-1)
- Óreiða á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur (2007)
- Óvinafagnaður eftir Einar Kárason (2001)
- Piltur og stúlka eftir Jón Thoroddsen (1850)
- Punktur, punktur, komma, strik eftir Pétur Gunnarsson (1976)
- Ráðskona óskast í sveit eftir Snjólaugu Bragadóttur (1973)
- Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur (2008)
- Reisubók Guðríðar Símonardóttur eftir Steinunni Jóhannesdóttur (2001)
- Riddarar hringstigans eftir Einar Má Guðmundsson (1982)
- Rökkurbýsnir eftir Sjón (2008)
- Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason (1999)
- Sagan af Heljarslóðarorrustu eftir Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1861)
- Sagan hans Hjalta litla eftir Stefán Jónsson (1948)
- Salka Valka eftir Halldór Laxness (1931-2)
- Saman í hring eftir Guðrúnu Helgadóttur (1986)
- Samastaður í tilverunni eftir Málfríði Einarsdóttur (1977)
- Sandárbókin: pastóralsónata eftir Gyrði Elíasson (2007)
- Sálmurinn um blómið eftir Þórberg Þórðarson (1954-5)
- Sendiherrann eftir Braga Ólafsson (2006)
- Sitji guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur (1983)
- Síðdegi eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur (2010)
- Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness (1934-5)
- Sjáumst aftur eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur (2001)
- Skaparinn eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur (2008)
- Skugga-Baldur eftir Sjón (2003)
- Snaran eftir Jakobínu Sigurðardóttur (1968)
- Sossa sólskinbarn eftir Magneu frá Kleifum (1991)
- Sólon Íslandus eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1952)
- Sólskinshestur eftir Steinunni Sigurðardóttur (2005)
- Sturlunga saga (13. öld)
- Stúlka með fingur eftir Þórunni Valdimarsdóttur (1999)
- Stúlkan í skóginum eftir Vigdísi Grímsdóttur (1992)
- Sumarljós og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson (2005)
- Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma eftir Guðberg Bergsson (1993)
- Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson (2010)
- Svartar fjaðrir eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1919)
- Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson (1929; ísl. þýðing 1938)
- Sænginni yfir minni eftir Guðrúnu Helgadóttur (1987)
- Sögur og ljóð eftir Ástu Sigurðardóttur (1985)
- Tímaþjófurinn eftir Steinunni Sigurðardóttur (1986)
- Tími nornarinnar eftir Árna Þórarinsson (2005)
- Tíminn og vatnið eftir Stein Steinarr (1948)
- Tómas Jónsson : metsölubók eftir Guðberg Bergsson (1966)
- Undan illgresinu eftir Guðrúnu Helgadóttur (1990)
- Veisla undir grjótvegg eftir Svövu Jakobsdóttur (1967)
- Við Urðarbrunn eftir Vilborgu Davíðsdóttur (1993)
- Virkir dagar eftir Guðmund Gíslason Hagalín (1936-8)
- Yosoy eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur (2005)
- Þar sem djöflaeyjan rís eftir Einar Kárason (1983)
- Þar sem vegurinn endar eftir Hrafn Jökulsson (2007)
- Þegar kóngur kom eftir Helga Ingólfsson (2009)
- Þjóðsögur Jóns Árnasonar (1862)
** Halla og heiðarbýlið eftir Jón Trausta (ritnafn Guðmundar Magnússonar) er ritröð sem samanstendur af eftirfarandi sögum: Halla: söguþáttur úr sveitalífinu (1906), Barnið (1908), Grenjaskyttan (1909), Fylgsnið (1910) og Þorradægur (1911).
100 Bækur sem þú verður að lesa (excel skjal)
Plakatið (smelltu á myndina til að stækka):

Til baka