Nýtt á safninu
Svart & hvítt eftir Jónínu Leósdóttur
Að loknu viðburðaríku sumri í Englandi byrjar Anna í framhaldsskóla í Reykjavík. Ýmislegt brýst um í huga hennar eftir Brighton-dvölina en það er þó ekkert á við ringulreiðina sem ríkir í kolli Kötu vinkonu hennar. Kata getur ekki hætt að hugsa um Deepak, indverska strákinn sem hún kynntist í Brighton, en foreldrar hans hafa ákveðið að hann trúlofist ókunnugri stelpu á Indlandi. Svart & hvítt er sjálfstætt framhald unglingabókarinnar Kossar &ólífur.
Er bókin inni? Athugaðu á Leitir.is
Til baka