Rosalegar risaeðlur
Hin ýkta og ægilega veröld risaeðlanna í öllu sínu veldi birtist hér í bókinni Rosalegar risaeðlur eftir Robert Mash.
Risaeðlurnar voru einhverjar ótrúlegustu skepnur sem jörðin hefur alið. Þær komu fremur sakleysislegar fram á sjónarsviðið fyrir um 230 milljónum ára og þróuðust síðan í illvíg óargadýr með svo stóra kjálka að þær hefðu getað gleypt fullvaxinn mann í einum munnbita.
Í Rosalegum risaeðlum segir frá methöfunum á meðal risaeðlanna, allt frá tröllinu argentínueðlu, sem vó jafn mikið og tuttugu fílar, til hins smávaxna ránkrílis sem lifði á kjöti og var minna en hæna. Hér má lesa um brynvarðar risaeðlur með válegar vígtennur, krókbognar klær, hnausþykkar hauskúpur og hárbeitt horn. Við fræðumst um uppruna eðlanna og sérkenni, lifnaðarhætti og óvini, hnignun og aldauða.
Fjöldi vasa, flettiglugga og annarra nýjunga gera bókina að einstæðum grip sem hægt er skoða tímunum saman.
Karl Emil Gunnarsson þýddi.
JPV útgáfa gefur út.
Til baka