Ósk einhyrningsins eftir Carol Barton
Ósk einhyrningsins fjallar um Mögdu, sem laumast um borð í undurfallegan bát skammt frá heimili sínu. Hún hefur ekki hugmynd um að ævintýrin eru á næsta leiti. Áður en hún veit af er hún komin til Zavaníu þar sem óskirnar rætast. Þær rætast þó ekki sjálfkrafa – Óskameistarinn þarf að samþykkja þær. En nú er illt í efni; Sebastían, lærlingur Óskameistarans, er í vanda staddur því lítill einhyrningur hefur óskað þess að komast heim. Gæti Magda kannski orðið þeim að liði?
Til baka