Nýtt á safninu
Bert og ástin á netinu eftir Sören Olsson og Anders Jacobsson
Þýð.: Jón Daníelsson.
Myndskr.: Kwok-Hei Mak.
Bert hefur lofað sjálfum sér því, að verða aldrei tölvunörd. Aldrei í lífinu! segir hann. Auk þess er heimilistölvan svo gömul að hún er ekki nothæf á netinu.
En á afmælinu sínu fær hann alveg óvænt sína eigin fartölvu! Og skyndilega á hann líka TVÆR kærustur - hina unaðslegu Amöndu og svo aðra á netinu. En internetið er eiginlega bara til í loftinu og er ósýnilegt. Þess vegna er LoverGiiiirl 123 heldur ekki til í alvörunni. Bert þarf sem sagt ekki að hafa slæma samvisku út af þessu, eða hvað?
Er bókin inni? Athugaðu á Leitir.is
Til baka