Vefsíða Borgarbókasafns


Börn, unglingar og fjölskyldur þeirra eru velkomin á söfn Borgarbókasafns og þar er alltaf eitthvað um að vera. Fyrir utan allar bækurnar, bíómyndirnar, tónlistina allt hitt sem er hægt að fá að láni er hægt að skutla sér í næsta stól, FatBoy  eða dýnu og láta fara vel um sig, spjalla eða glugga í bók eða blað. Vantar þig eitthað að lesa? Kíktu á bókalistana okkar!

Á laugardögum og sunnudögum yfir vetrartímann er boðið upp á dagskrá í Bókasafninu í Gerðubergi og aðalsafni fyrir börn og fjölskyldur þeirra og vikulega er boðið upp á fjölskyldumorgna í sömu söfnum fyrir fjölskyldur með börn á aldrinum 0-6 ára.  Í samstarfi við skóla í hverfunum er boðið upp á heimanámsaðstoð í aðalsafni, Bókasafninu í Gerðubergi og í Kringlusafni einu sinni í viku. Fyrir utan þessa föstu dagskrá eru stórir og litlir viðburðir á söfnunum allt árið um kring.

Laugardagar og sunnudagar eru barnadagar
Fjölskyldumorgnar
Heilahristingur - heimanámsaðstoð fyrir börn og unglinga




Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna

Tengt efni




Skipta um leturst�r�