ÆringiSími í sögubíl: 664 7718

Æringi, sem er litli bróðir bókabílsins Höfðingja, heimsækir leikskóla Reykjavíkur og býður börnunum í sögustund.

Ævintýralegar myndir prýða bílinn en efnt var til samkeppni meðal myndlistarmanna um skreytingar á sögubílinn og bar Brian Pilkington sigur úr býtum. Sögubíllinn er ekki bara ævintýralegur að utan heldur einnig að innan, dökk flauelstjöld og stjörnur í lofti skapa skemmtilega og spennandi umgjörð um sögurnar.

Hægt er að panta sögubílinn í heimsókn til dæmis í stofnanir, hverfishátíðir eða aðra viðburði í borginni.

Viltu taka þátt?
Sögubílsstjórinn auglýsir sérstaklega eftir eldri borgurum sem langar að koma í bílinn og segja þeim yngri frá atburðum eða aðstæðum úr eigin bernsku. Það verður ánægjulegt að brúa kynslóðabilið í sögubílnum.

Allar nánari upplýsingar veitir Ólöf Sverrisdóttir í síma 6647718, olof.sverrisdottir@reykjavik.is  

Hekla hf og Þróunarsjóður leikskólaráðs veittu styrk til að koma sögubílnum í gang. 



Til baka


Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�