Vefsíða Borgarbókasafns

Heilahristingur - heimanámsaðstoð á bókasafninu


Merki HeilahristingsinsLangar þig að:
-fá aðstoð við heimanám?
-fá stuðning við að halda áfram í námi?
-deila hugmyndum þínum með öðrum og taka þátt í skapandi unglingastarfi eftir skóla?
-efla sjálfstraustið?
-fá aðgang að skemmtilegum bókum, bíómyndum og tónlist?

Hvenær, hvar og hverjir?
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14.30 - 16.00 er boðið upp á ókeypis heimanámsaðstoð á Borgarbókasafninu í Gerðubergi fyrir nemendur í grunnskólum Breiðholts.

Sjálfboðaliðar taka á móti þeim nemendum sem hafa áhuga á að nýta sér aðstoðina á Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Heimanámsaðstoðin er kölluð Heilahristingur því áhersla verður lögð á að virkja nemendurna í námi og að hafa það skemmtilegt saman.


Strákar á bókasafninu














Heilahristingur eða heimanámsaðstoð er eitt af þeim fjölmenningarlegu verkefnum sem Borgarbókasafnið tekur þátt í. Verkefnið felst í að aðstoða börn og unglinga við heimanámið og er að danskri fyrirmynd. Heimanámsaðstoðin er unnið í samvinnu við Reykjavikurdeild Rauða krossins. Verkefnið fékk styrk frá Þróunarsjóði innflytjendamála og nýtur auk þess faglegs stuðnings frá Etadeild Delta Kappa Gamma.

Bæklingur um heilahristinginn á íslensku, pólsku, tælensku, kínversku og spænsku (Word 176 KB)

Viltu kynna þér hina dönsku fyrirmynd?


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna

Tengt efni

Lektiecafe - á dönsku



Skipta um leturst�r�