Vefsíða Borgarbókasafns

Menningarmót


Fljúgandi teppi -menningarmót í leik- grunn og framhaldsskólum

Á menningarmótum fá nemendur, foreldrar og starfsfólk tækifæri til að hittast og kynna menningu sína og áhugamál í hvetjandi umhverfi og á  lifandi hátt. Hver þátttakandi er með sitt „svæði“ og kynnir sín áhugamál og sína menningu, sem þarf ekki endilega að vera þjóðarmenning heldur einungis það sem skiptir mestu máli fyrir hvern og einn.
Allir eru þátttakendur og áhorfendur um leið.

Hægt er að panta kynningu á menningarmótsverkefninu og ef óskað er þá er verkefnastjórinn tilbúinn til að leiðbeina og taka þátt í framkvæmd mótsins. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, sem er kennari og verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni, hefur notað menningarmótin með góðum árangri í kennslu bæði í Danmörku og á Íslandi.

Hér má sjá myndir og myndskeið frá menningarmótum í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum og hér má lesa umsagnir kennara og skólastjóra um menningarmótin sem haldin hafa verið í skólum þeirra.

 

Markmið:
Að skapa hvetjandi umhverfi, þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk geta hist og kynnst menningu hvers annars.  
Að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi.
Að skapa vettvang þar sem við getum undrast og hrifast af því, sem er líkt og ólíkt í menningu okkar.
Að þátttakendur mætist í tónlist, dansi, myndlist, bókmenntum, kvikmyndum, matargerð, ævintýrum og goðsögnum, frásagnarlist, leiklist, leik og hreyfingu.
Að allir finni til stolts og gleði yfir eigin menningu og deili þeirri gleði og stolti með öðrum.
Að einstaklingar verði meðvitaðir um gildi eigin menningar við það að  kynna hana fyrir öðrum.
Að þróa hæfileika barnanna til  að taka virkan þátt í samfélaginu og gera sér ljóst að ólík menning geti auðgað eigin menningu.

MenningarmótMenningarmót










Hverjir taka þátt?

Börn, foreldrar, starfsfólk í skólum sem og innflytjendur í íslenskukennslu fá tækifæri til að kynna menningarheim sinn á skemmtilegan hátt. Menningarmótin hafa verið notuð með góðum árangri í tungumálakennslu fyrir fólk af erlendum uppruna bæði í Danmörku og hér á Íslandi.
 

Hægt er að halda menningarmótin á bókasafninu í ykkar hverfi eða í skólanum!
Hafið samband við:
Kristínu R. Vilhjálmsdóttur,
kennara og verkefnastjóra fjölmenningar
kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is

    


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�