Söguhringur kvenna

Sögur, sköpun og samvera í fjölmenningarlegu andrúmslofti.
Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni bókasafnsins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna og er markmið hans að skapa vettvang þar sem konur skiptast á sögum, persónulegum eða bókmenntalegum. Hann er ætlaður konum sem hafa áhuga á frjálslegri samveru sem byggir meðal annars á því að konur deila menningarlegum bakgrunni sínum með öðrum. Í söguhringnum gefst konum af erlendum uppruna einnig tækifæri til að tjá sig á íslensku, æfa tungumálið og fræðast um íslenska menningu, bókmenntir og siði.
Söguhringur kvenna er haldinn í aðalsafni, Tryggvagötu 15, fyrsta sunnudag í mánuði kl. 14.00. (Hér má nálgast þessar upplýsingar á mörgun tungumálum, pdf 1,77mb)
Söguhringurinn er undir leiðsögn Kristínar R. Vilhjálmsdóttir, kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is og Joanna Ewa Dominiczak, joanna@womeniniceland.is..
Hér má sjá myndir úr Söguhring kvenna
Markmið með söguhringnum er:
Að styrkja tengsl kvenna á Íslandi
Að skapa vettvang þar sem konur geta skipst á sögum, hvort sem er persónulegum eða bókmenntalegum
Að nota listræna sköpun til að stuðla að félagslegum tenglsum milli kvenna
Að skapa skilyrði fyrir frjálslega samveru þar sem konur geta deilt menningarlegum bakgrunni sínum gegnum frásögn, tónlist, texta, dans, matseld, kvikmyndir og fleira
Að styrkja erlendar konur til að tjá sig um ýmis málefni á íslensku
Að styrkja virðingu fyrir mismunandi menningarheimum
Annað sem söguhringurinn býður upp á er:
Að lesa dagblöðin saman
Að fara saman á menningarviðburði
Að fara út í náttúruna
Að fá rithöfunda/listamenn í heimsókn
Framtíðarsýn söguhringsins er:
Að lesa (og e.t.v. skrifa) ljóð eða annan texta á íslensku og ræða innihaldið
Að taka fjölskylduna með, að því marki sem hópurinn ákveður
Vilt þú fá þessar upplýsingar í bæklingaformi (PDF 0.85MB)?
Umfjöllun um söguhring kvenna í tímaritinu 19. júní 2009
Til baka