Hlutverk, leiðarljós og markmið
Hlutverk
Borgarbókasafn Reykjavíkur er upplýsinga- og menningarstofnun sem starfar í samræmi við gildandi lög um almenningsbókasöfn.
Leiðarljós til 2010
Borgarbókasafn Reykjavíkur standi jafnfætis bestu almenningsbókasöfnum heimsins hvað varðar búnað og þjónustu og efli menningu í alþjóðlegu umhverfi.
Meginmarkmið
1. Borgarbókasafn sé aðgengilegt öllum borgarbúum
Leiðir:
Bókasöfn og bókabíll myndi þjónustunet um borgina
Afgreiðslutími henti vinnandi fólki
Líkamlega fötluðum sé tryggt gott aðgengi og safnið bjóði heimsendingarþjónustu þeim sem ekki geta komið á safnið vegna fötlunar, öldrunar eða annarra aðstæðna
Heimasíða safnsins sé ævinlega með greinargóðar og réttar upplýsingar um starfsemi safnsins
Með þjónustusamningi Borgarbókasafns við Bókasöfn Mosfellsbæjar og Seltjarnarness fái íbúar þeirra hverfa þar sem ekki eru rekin bókasöfn á vegum Borgarbókasafns sömu þjónustu og sama aðgang og aðrir borgarbúar. Bókasafn í Árbæjarhverfi hefji starfsemi.
2. Heimsóknir í Borgarbókasafn séu hluti af daglegu lífi borgarbúa
Leiðir:
Húsnæði sé aðlaðandi og vel við haldið
Borgarbókasafn veiti einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum faglega upplýsingaþjónustu
Í safninu séu aðgengilegar upplýsingar og kynningarefni um líf og starf í Reykjavík. Gestir geti fengið aðstoð við leit á vef Reykjavíkurborgar. Í einstökum söfnum liggi frammi kynningar- og upplýsingaefni viðkomandi hverfis
Borgarbókasafn sé hvarvetna markvisst kynnt sem vettvangur menningar, fræðslu og afþreyingar fyrir alla
Boðið sé upp á dagskrár fyrir alla fjölskylduna
3. Starfsemi Borgarbókasafns einkennist af víðsýni og virðingu gagnvart fólki af ólíkum uppruna.
Leiðir:
Samstarf sé haft við Alþjóðahús í Reykjavík og ólík menning kynnt sérstaklega
Teymi um sérþjónustu starfi innan bókasafnsins
Safnkostur á erlendum tungumálum sé á boðstólum. Samstarf verði haft við önnur almenningsbókasöfn landsins um það hvernig staðið verði að framboði á efni á tungumálum sem fámennir hópar skilja
Byggt verði upp alþjóðlegt barnabókasafn (með gjöfum) í samstarfi við aðra
4. Heimsóknir í Borgarbókasafn séu hluti af menningaruppeldi barna og unglinga
Leiðir:
Boðið sé upp á safnfræðslu skólanema og góð tengsl séu við skóla í Reykjavík
Sögustundir fyrir lítil börn séu fastir viðburðir og einnig sé boðið upp á aðra viðburði eins og t.d. brúðuleikhús og tónlist
Boðið sé upp á sérstök námskeið eins og ritsmiðjur fyrir börn og unglinga
Boðið sé upp á safnkost við hæfi barna og unglinga
Lögð sé áhersla á lestrarhvatningu og upplýsingalæsi barna og unglinga
5. Íslenskar bókmenntir séu kynntar jafnt innan lands og utan
Leiðir:
Bókmenntavefurinn, bokmenntir.is og literature.is, sem kynnir íslenska rithöfunda samtímans á íslensku og ensku sé haldið stöðugt við
Haldnar verði dagskrár sem tengjast bókmenntum og samstarf haft við aðra t.d. varðandi bókmenntahátíðir og kynningu á samtímabókmenntum
Kynntar verði íslenskar bókmenntir í safninu og eftirspurn almennings eftir íslenskum skáldritum fullnægt
Safnið taki þátt í menningartengdri ferðaþjónustu með því að kynna íslenskar bókmenntir fyrir erlendum ferðamönnum
Sögustaðir bókmennta í Reykjavík verði merktir
6. Safnkostur uppfylli óskir og þarfir viðskiptavina
Leiðir:
Safnkostur uppfylli ítrustu kröfur um gæði og fjölbreytni bæði hvað varðar efni (fræðsluefni, skáldskap) og form (prentað, rafrænt). Safnkostur miðist við almenning á öllum aldri. Við val á safnkosti sé tekið sérstakt tillit til þarfa fatlaðra
Stærsti hluti safnkostsins sé til útláns en aðstaða sé í safninu til að nýta annað efni t.d. á Netinu
Starfsmenn kappkosti að fylgjast vel með útgáfu innan lands og utan. Almenn þátttaka starfsmanna í vali á safnkosti stuðli að fjölbreytni
Viðskiptavinir geti lagt fram tillögur um kaup á safnefni
Sérfræðingar verði fengnir til aðstoðar við val á safnefni
7. Borgarbókasafn hafi á að skipa ánægðum og hæfum starfsmönnum sem sinni störfum sínum á framúrskarandi hátt
Leiðir:
Sameiginleg fræðsla fyrir alla starfsmenn sé reglubundin og þeir hvattir til einstaklingsbundinnar símenntunar við hæfi. Nýliðar fái góða leiðsögn og þjálfun Starfsmenn fái tækifæri til að fara í vistaskipti og stunda fræðilegar rannsóknir og nám sem tengist starfsemi safnsins
Starfsmenn hafi áhrif á störf sín eftir því sem við verður komið og geti samræmt einkalíf og starf
Starfshandbók á innri vef tryggi að starfsmenn sinni störfum sínum af öryggi og fagmennsku. Verkferlar séu skráðir
Starfsmannavelta sé lág
8. Starfsemi Borgarbókasafns sé lýðræðisleg og opin og starfsmenn ásamt borgarbúum hafi áhrif á hana
Leiðir:
Þátttaka starfsmanna í hópvinnu og fundum sé almenn og þeir setji þannig sameiginlegt mark á starfsemi og stefnu safnsins
Innra upplýsingaflæði safnsins sé fullnægjandi, t.d. gegnum innri vef og póstlista
Starfsmenn eigi greiðan aðgang að yfirmönnum
Fundargerðir og annað er varðar starfsemi safnsins séu öllum starfsmönnum aðgengilegar
Rýnihópar borgarbúa séu starfandi
9. Fjármunum sé vel varið
Leiðir:
Rekstrarkostnaði sé haldið innan ramma
Rekstrarkostnaður sé samanburðarhæfur við bestu almenningsbókasöfn á Norðurlöndunum
Þjónustusamningar séu yfirfarnir með reglulegu millibili
Velta safnkosts sé góð
Lög um almenningsbókasöfn nr. 36/1997.
Yfirlýsingu Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco) um almenningsbókasöfn frá 1994.
Samþykkt um Borgarbókasafn Reykjavíkur
Til baka