Röskva hefur alist upp við erfiðar fjölskylduaðsæður og á þá heitustu ósk að hverfa.
Tvíburarnir Sophie og Josh eru komin heim til San Francisco, ráðvilltari en nokkru sinni fyrr.
Galdramaðurinn vondi, Malvel, stal gullnu töfrabrynjunni og dreifði hlutum hennar víðs vegar um Avantíu.
Englafoss er fallegt bæjarnafn en smábærinn er dauðanum merktur. Nótt eina draga óútskýrðir kraftar sex stúlkur inn í yfirgefinn skemmtigarð.
Þegar foreldrar Dagnýjar og Sabrínu Grimm hverfa á dularfullan hátt eru þær sendar til ömmu sinnar sem þær héldu að væri dáin!
Fallöxin er fjórða bók sænska rithöfundarins Kim M. Kimselius um ævintýri unglingana Ramónu og Theó sem flakka um tímarúmið og upplifa sögulega atburði í eigin persónu og á staðnum.
Þetta er síðasta bókin í bókaflokknum sem nefnist Eragon. Hinar þrjár eru Eragon, Öldungurinn og Brísingur.
Kolfinna er fimmtán ára og með höfuðið fullt af spurningum: Hvers vegna að eiga vængi ef maður má ekki nota þá?
Daginn sem Bergur vaknar skín gamalkunnug sólin hátt á lofti en allt annað er framandi.
Breki, Sirja og Ragnar ættu að njóta seinustu áhyggjulausu daganna í sumarsólinni en framtíðin ber annað í skauti sér.
Katniss Everdeen hefur sloppið lifandi frá tvennum Hungurleikum en líf hennar er dýru verði keypt. Tólfta umdæmi er brunnið til grunna en Kapítól hefur ekki enn svalað hefndarþorsta sínum …
Eftir að hafa sigrað í Hungurleikunum og skilað bæði sér og Peeta, félaga sínum úr Tólfta umdæmi, heim í heilu lagi ætti Katniss að vera himinlifandi.
Kristófer er 14 að verða 15. Það er komið vor í Rökkurhæðum og strákarnir fagna því að geta fært parkouræfingarnar út undir bert loft.
Við fyrstu sýn eru Rökkurhæðir eins og hvert annað úthverfi. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að svo er ekki því þar er ýmislegt ótrúlegt á seyði.
Við fyrstu sýn eru Rökkurhæðir eins og hvert annað úthverfi.
Æsispennandi ævintýrabækur sem hafa farið sigurför um heiminn.
Hulduheimar er fyrsta bókin af fimm í flokki spennandi ævintýrabóka fyrir börn og unglinga á öllum aldri. Bækurnar fjalla um ævintýri þrettán drekakríla sem reyna að finna lausn á dularfullum veikindum móður sinnar, veikindum sem læknar Hulduheima virðast ekki geta fundið lækningu við.
Í framtíðarríkinu Panem keppa 24 ungmenni árlega í svokölluðum Hungurleikum, sem ganga út á það eitt að lifa af. Þegar Katniss býður sig fram sem keppanda í stað systur sinnar er hún viss um að hún sé að ganga í dauðann.
Eftir að hafa þvælst á milli munaðarleysingjaheimila árum saman lenda Kata, Mikael og Emma á furðulegum stað og gera á skömmum tíma þrjár merkar uppgötvanir.
Valva er mesta vandræðanorn sem sest hefur á skólabekk í Nornaskóla Teklu. Þrátt fyrir góðan ásetning tekst henni alltaf að koma sér í klandur.
Nicolas Flamel fer huldu höfði í London. Máttur hans fer þverrandi og eigi að takast að yfirbuga óvininn verður hann að finna einhvern til að kenna tvíburunum töfra vatnsins.
Í rykfallinni verslun í New York fær Rúnar dularfullan pakka sem hann er beðinn að fara með heim til Íslands.
Vinkonurnar Lára og María ...
Þrettán ára stúlka flýr úr lokaðri og ofverndaðri veröld út í harðan veruleikann þar sem nýr heimur bíður hennar og kynngimögnuð atburðarás fer af stað.
Sjálfstætt framhald af Galdrasteininum sem kom út 2009.
Í þessari lokabók Bartimæusar-þríleiksins tvinnast á ný saman örlög þríeykisins Bartimæusar, Nathaniels og Kittyar.
Fimmta bindið í spennandi flokki um verndarvætti í illum álögum.
Einvígi varúlfs og dreka. Skrímslabræðurnar Skúli og Skjöldur.
Eftir æsispennandi flótta frá Bandaríkjunum lenda tvíburarnir Sophie og Josh í heimaborg gullgerðarmannsins, París.
Skyggnir, hesturinn hennar Láru, breytist í fagran einhyrning þegar hún fer með töfraþulu. - Tvær vinkonur Láru koma í heimsókn. Þær villast í skóginum. Það er hríðarbylur og kuldi...
Þjófadrengurinn Lee Raven stal óvart svolitlu sem hann ætlaði alls ekki að stela. Lee stal nefnilega bók sem hefur verið til í þúsundir ára og sem geymir allar heimsins sögur.
Fjórða bókin um Molly Moon en þær hafa slegið í gegn hjá krökkum á öllum aldri. Molly ákveður að leita tvíburabróður síns, sem var rænt þegar hann var bara ungbarn.
Fjórða bindið í spennandi flokki um átök við verndarvætti í illum álögum. Pilturinn Tom og stúlkan Elenna takast á við kynjadýrið kentár.
Nicolas Flamel var einn færasti gullgerðarmaður miðalda. Samkvæmt opinberum gögnum dó hann árið 1418 en gröfin hans er tóm.
Þriðja bindið í ævintýraflokknum Á háskaslóðum sem fer nú sigurför um heiminn. Taran, stúlkan Eilonwy og félagar lenda í miklum hættum - enn á háskaslóðum.
Hrollvekjandi framhald Verndargripsins frá Samarkand. Nathaníel glímir við hina viðsjárverðu Kittý en þegar óþekkt ógn steðjar að verður hann að vekja upp vandræðagripinn snjalla, Bartimæus.
Einn morguninn vaknar Erla við það að allir í kringum hana eru farnir að rífast. Á svipstundu hefst ofurspennandi ævintýri þar sem hún og vinir hennar reyna að aflétta álögum hins dularfulla galdrasteins.
Albertína býr í skrýtnum heimi sem hinn ógurlegi Gullbanki er langt kominn með að sölsa undir sig.
Eltingarleikur í gegnum skóginn leiðir Taran langt að heiman og í miklar hættur því að hið illa er á kreiki í landi hans.
Þriðja ævintýrasagan í vinsælum bókaflokki eftir verðlaunahöfundinn Sigrúnu Eldjárn. Á Eyju Sólfuglsins, þar sem sólin skín og íbúarnir svífa um á fljúgandi teppum...
Leikvangurinn og Ættbálkastríðið eru fimmta og sjötta sagan í þessum bókaflokki. Hér mætast ættbálkar Tayklaníu á leynda leikvellinum...
Spennandi saga um hinn ævintýragjarna unglingspilt Jack Sparrow úr Sjóræningjum Karíbahafsins.
Þegar Ormar Níðingsson dó varð heimurinn öruggur á nýjan leik. Eða svo héldu að minnsta kosti Valkyrja og Skelmir...
Will Burrows er fjórtán ára strákur sem býr hjá foreldrum sínum í Lundúnum. Hann á sér óvenjulegt áhugamál...
Fimmta og síðasta bókin í bókaflokknum um Galdrastelpurnar sívinsælu.
Þriðja bókin um drekariddarann Eragon. Fyrri bækurnar tvær eru Eragon - afrleifð og Öldungurinn. Í þessari bók bíða þeirra Eragons og drekans Safíru...
Meggí hefur mikið dálæti á bókum, en þau feðgin hafa ekki lesið saman síðan móðir hennar hvarf á dularfullan hátt...
Þriðja bindið í spennandi flokki um átök við verndarvætti í illum álögum.
Artemis Fowl er enginn venjulegur drengur og lendir stöðugt í svæsnum ævintýrum...
Ósk einhyrningsins fjallar um Mögdu, sem laumast um borð í undurfallegan bát skammt frá heimili sínu. Hún hefur ekki hugmynd um að ævintýrin eru á næsta leiti...
Hvernig getur hundur breyst í styttu? Það er eitthvað meira en lítið skrýtið...
Meg hefur lent á glapstigum og þegar hún tekur þátt í að ræna gamlan mann deyr hún fyrir slysni...
Létta að lesa. Þrír venjulegir krakkar, Jared, Simon og Mallory Grace, hafa farið inn í annan heim, án þess að yfirgefa þennan. Bækurnar um þessa krakka eru alls sjö.
Láru Foster hefur lengi langað til að eignast hest. Draumur hennar rætist loks þegar foreldrar hennar flytjast í sveit...
Kvöldið sem slysið varð, kvöldið sem þau gerðu hlé á spilamennskunni til að sækja Veru í vinnuna, var Signý loksins búin að finna nafn á persónuna sína.
Borgarbarnið Alexander fer með ömmu sinni, heimsfrægum vísindamanni, inn í frumskóga Amason. Þar er mikill mannfjöldi saman kominn og allir leita að dularfullu skepnu.
Kappinn Hrólfur leitar vísdómsbókarinnar til að geta kveðið niður forna afturgöngu sem ógnar Humlabyggð. Þetta er mikil háskaför, m.a. á slóðir sjóræningja, en heima bíður unnustan Silkisif.
Artemis Fowl er ekki nema tólf ára en afburðagreindur og bráðsnjall glæpamaður. Hann gerir sér samt ekki grein fyrir hvað hann er að ráðast í þegar hann rænir álfi, Hollý Short varðstjóra í BÚÁLF.
Ránið, er þriðja sjálfstæða sagan um Kötlu. Katla ætlar að dvelja hjá vinkonu sinni yfir þjóðhátíð. Margt fer þó öðruvísi en ætlað er og gegn vilja sínum færist Katla aftur til ársins 1627...
Lýra elst upp í Jórdanarskóla á Englandi í fullkomnu öryggi. Einn daginn fara börn að hverfa, þar á meðal besti vinur Lýru.
Lucien liggur mikið veikur á sjúkrahúsi í London þegar pabbi hans færir honum skrautlega bók frá Feneyjum til að stytta honum stundir. En bókin gerir miklu meira en það...
Ljónið, Nornin og skápurinn er fyrsta Narníubókin sem allir aðdáendur fantasíubóka þekkja. Hún fjallar um fjögur börn sem í leik opna gamlan fataskáp sem svo leiðir þau inn í töfralandið Narníu.
Sagan Ljónadrengurinn segir af óvenjulegum dreng sem getur talað tungumál kattardýra og lendir í ógleymanlegum ævintýrum á ferðalagi með farandsirkusi.
Kóralína er nýflutt með foreldrum sínum í íbúð sem hefur tuttugu og níu glugga og fjórtán dyr. Þrettán dyranna er hægt að ganga í gegnum en þær fjórtándu opnast að hlöðnum vegg.
Þegar hinn ungi Jonathan Harker kemur í draugalegan kastala Drakúla greifa í Transylvaníu hefur hann ekki hugmynd um hvað bíður hans. Skelfilegir atburðir eru í nánd.
Ávítarabækurnar fjalla um Dínu, ellefu ára telpu, sem hefur erft augu og hæfileika móður sinnar. Með augnaráðinu einu saman...
Abarat er óborganlegt ævintýri sem segir frá ferðalagi stúlkunnar Candy Quackenbush til eyjaklasans Abarat.