Jón Ólafur með dauðann á hælunum

Jón Ólafur kemur glaðbeittur í Jólasveinasetrið á Norðurpólnum til að undirbúa jólavertíðina,...

Núll núll 9 eftir Þorgrím Þráinsson

Sumarið eftir tíunda bekk snýst líf Jóels og vina hans um sumarvinnu, fótbolta og einlæg samskipti.

Sóley eftir Celia Rees

England, 1794. Sóley gerist stigamaður til að sannreyna heilindi elskhuga síns. En fleira knýr hana áfram, hvarf föður hennar og ásakanir um að hann sé föðurlandssvikari...

Afi ullarsokkur - dalur drauganna eftir Kristján Hreinsson

Hér er hún komin, fimmta bókin um indælasta afa allra tíma. Nú segir frá ferð Badda og afa ullarsokks vestur á land til að heimsækja vini sína.

Fimm á Smyglarahæð eftir Enid Blyton

Ein hinna sívinsælu bóka eftir Enid Blyton. Flokkarnir heita Dularfullu bækurnar, Fimm bækurnar, Ævintýrabækurnar og Ráðgátubækurnar.

Leynigöngin eftir Jógvan Isaksen

Þeim Kára, Róa, Beintu og Magnúsi hundleiðist í páskafríinu. En líf vinanna tekur óvænta stefnu þegar þeir, fyrir einskæra tilviljun, verða nánast vitni að því að miklum dýrgripum er stolið...

Tröllafell eftir Katherine Langrish

Peer Úlfsson stendur við líkbál föður síns og telur sig eiga engan að þegar að honum arkar skuggalegur, risavaxinn maður sem kveðst vera Baldur frændi hans.

Frank og Jói eftir Franklin W. Dixon

Frank og Jói eru synir frægs rannsóknarlögreglumanns og eru þeir ákveðnir í að feta í fótspor föður síns en þeir vilja vinna sjálfstætt og án hjálpar hans. Og næg eru verkefnin.

Ekkert að þakka! Eftir Guðrúnu Helgadóttur

Eva og Ari Sveinn komast óvænt yfir tösku sem skuggalegir náungar á flótta undan lögreglu henda út um bílglugga. Óhætt er að segja að innihaldið komi þeim á óvart.

Eyja gullormsins eftir Sigrúnu Eldjárn

Þegar Ýmir og Guðrún ákveða að sigla út á tjarnarhólmann grunar þau ekki hvers konar hættuför þau eru að leggja upp í.



Bókmenntavefurinn
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�