Vefsíða Borgarbókasafns

Ljóðaslamm


Ljóðaslamm 2013 - bilun

 

Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins var haldið í sjötta sinn á Safnanótt föstudaginn 8. febrúar í ár. Þema kvöldsins að þessu sinni var BILUN.

Sjáið meira um ljóðaslammið 2013 hér, eða veljið ártal hér til vinstri.

Hér fyrir neðan eru upptökur af atriðum verðlaunahafanna. Það má líka finna þær og brot úr fyrri slömmum á youtube-síðu Borgarbókasafns.

Sigurvegararnir í ár voru þær Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir, Laufey Soffía Þórsdóttir og Margrét Rósa Dóru- Harrysdóttir. Saman mynda þær hljómsveitina Kælan mikla en atriðið heitir Ætli það sé óhollt að láta sig dreyma?

Í öðru sæti höfnuðu þau Drífa Thoroddsen og Brynjar Jóhannesson með atriðið Framtíðar brot úr minni smokkfisks.

Og þriðja sætið vann Valgerður Þóroddsdóttir, atriði hennar nefnist 101 nótt.

 

Almennt um ljóðaslammið:

Ljóðslamm er nú orðin einn af árlegum viðburðum á Borgarbókasafni. Keppnin fer fram á Safnanótt, í aðalsafni og er hún ætluð ungu fólki 15-25 ára. Ákveðið þema er hvert ár og hafa þau verið spenna, hrollur, væmni, sjálfstæði og myrkur. Hægt er að sjá upptökur af slömmum fyrri ára með því að smella á ártölin hér til hliðar.

Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs eða ljóða þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn eða gjörninginn en á ljóðið sjálf. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist og miðað við að flytjandi eða flytjendur fari með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leiklist. Hvort sem er einstaklingur eða hópur getur flutt ljóðið.

Dæmi:

Tónlist (undirspil/millispil)
Rapp
Hljóðmynd (einhverjir hljóðeffektar)
Myndefni (myndband/skyggnur)
Leikrænn flutningur eða dans
Leiklestur


Almenn viðmið fyrir þátttakendur (og dómnefnd):

Hvert atriði taki í mesta lagi 5 mínútur
Ljóðið verður að vera á íslensku
Gæta verður velsæmis í orðbragði og þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og / eða hópum
Texti 40%, flutningur 60%
Tæknimál verða að vera einföld (einn skjávarpi og tjald, ekki eru aðstæður fyrir sviðsmynd nema það sem fólk getur auðveldlega tekið með sér inn á sviðið)
Hámarksfjöldi í hóp: 5 manns.

Nánari upplýsingar fást hjá Birni Unnari Valssyni bjorn.unnar.valsson@reykjavik.is, sími 411 6100.


Til baka



Senda Senda  Prenta Prenta  Senda á Facebook


Bókmenntir.is
Rafræna hillan
Leitaðu að efni og upplýsingum á rafrænu formi Lesa meira um rafænu hilluna



Skipta um leturst�r�